Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.2003, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 27.05.2003, Blaðsíða 16
16 + 17 FRJÁLST. ÓHAÐ dagblað Útgáfufélag: ÚtgáfufélagiB DV ehf. Framkvæmdastjóri: Örn Valdimarsson Aðalritstjórí: Óli Björn Kárason Ritstjóri: Sigmundur Ernir Rúnarsson A&stoöarritstjóri: Jónas Haraldsson Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaöaafgreiösla, áskrift: Skaftahlíö 24,105 Rvík, sími: 550 5000 Fax: Auglýsingar: 550 5727 - Ritstjórn: 550 5020 - Aðrar deildir: 550 5749 Ritstjórn: ritstjorn@dv.is - Auglýsingar: auglysingar@dv.is. - Dreifing: dreifing@dv.is Akureyrl: Hafnarstræti 82, sími: 462 5000, fax: 462 5001 Setning og umbrot: Útgáfufélagiö DV ehf. Plótugerft og prentun: Árvakur hf. DV áskilur sér rétt til aö birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. DV greiöir ekki viðmælendum fyrir viðtöl við þá eða fyrir myndbirtingar af þeim. Öryggi ráðamanna íslenskir ráðamenn, hvort heldur eru forseti íslands, ráðherrar, alþing- ismenn eða aðrir, hafa sem betur fer getað farið um land sitt án strangrar öryggisgæslu. Ekki hefur verið þörf á lífvörðum sem eru hluti daglegs lífs ráðamanna í öðrum löndum. Við sérstök tækifæri er lögregluvörður hins vegar viðstadd- ur. Nefna má sem dæmi setningu Alþingis og ríkisráðsfundi, t.d. þegar stjórnarskipti fara fram. Við þær aðstæður má segja að lögreglan sé i senn í hlutverki heiðursvarðar og gæti öryggis. Heiðursvarslan hefur sem betur fer verið aðalhlutverk lögreglu- manna við slíkar athafnir en þær kröfur verður þó að gera að lögreglumenn séu snöggir að bregðast við fari eitthvað úrskeið- is. Öryggi viðstaddra ráðamanna skiptir jú meira máli en sýnd- ur virðingarvottur. Þótt menn séu friðsamir hér á landi og kippi sér ekki upp við nærveru æðstu stjórnvalda er dæmi þess að heiöursvörður lög- reglu hafi þurft að grípa inn í við setningu Alþingis þegar maö- ur nokkur sletti skyrblöndu á forseta, ráðherra og þingmenn. Þá þótti lögreglan svifasein en sá atburður gerðist löngu áður en ógn hryðjuverka varð aö þeim vanda sem við þekkjum í dag. Eft- ir atburðina í Bandaríkjunum 11. september 2001 hafa yfirvöld, hvort heldur er hér á landi eða annars staðar, verið varari um sig og hert gæslu. Því kom á óvart hve lögreglumenn, sem stóðu heiðursvörð við forsetasetrið á Bessastöðum við valdatöku nýrrar rikis- stjórnar, voru svifaseinir þegar óboðnir gestir gerðu sig heima- komna þar. Ungir menn, þekktir fyrir sérkennileg uppátæki í unglingaþætti sjónvarpsstöðvar, komu að í eðalvagni í kjölfar ráðherranna. Þeir gengu óáreittir inn í anddyri Bessastaða. Skýringar ungu mannanna á athæfinu voru þær að þeir ætluðu að athuga hversu erfitt væri að komast að ríkisstjórn íslands, hvort eitthvað hefði breyst eftir 11. september 2001. Niðurstaða þessara ungu manna var að ekkert hefði breyst. Þeir hefðu kom- ist óáreittir að ríkisstjórn og forseta heföu þeir viljað. Öryggis- gæslan brást, laganna verðir aðhöfðust lítt eða ekki. Hér er ekki farið fram á þungvopnaða verði við hvert fótmál ráðamanna þjóðarinnar. Vonandi er að þeir geti sem lengst um frjálst höfuð strokiö, líkt og aðrir þegnar. Aðeins það aö athygli lögreglunnar sé vakandi við slík tækifæri, að dómgreindin sé í lagi. Gera verður þá kröfu til lögreglumanna að þeir þekki ráð- herra, jafnvel nýja, frá sprelligosum og geri viðeigandi ráðstaf- anir beiti gosarnir sér. Því er eðlilegt að ríkislögreglustjóri kanni hvað fór úrskeiðis við varðstöðuna á Bessastöðum á fóstudaginn, líkt og hann hef- ur ákveðið. Kúvending ísraelsstjómar Reynslan hefur kennt að taka ber teiknum um jákvæða framþróun í samskiptum ísraels- og Palestínu- manna með varúð. Hinar harðvítugu deilur þjóðanna hafa staðið í áratugi, blóðugar og ilileysanlegar. Friðar- samningar hafa þráfaldlega verið brotnir. Vonir, sem hafa vaknað, hafa dáið jafnharðan. Vopnin hafa verið látin tala, ofbeldið hefur magnast. Þrátt fyrir þessa vondu forsögu er það jákvætt skref að rikis- stjórn ísraels skuli hafa samþykkt svokallaðan Vegvísi að friði fyrir botni Miðjarðarhafsins. ísraelsstjórn skuldbatt sig þar með í fyrsta sinn til að leggjast ekki gegn stofnun sjálfstæðs ríkis Palestínumanna. Þessi stuðningur við Vegvísinn, sem bandarísk stjórnvöld hafa lagt áherslu á að verði samþykktur, er kúvend- ing á afstöðu Sharons, forsætisráðherra ísraels, þrátt fyrir ýmsa fyrirvara. Þung ábyrgð hvílir á herðum Sharons og Abbas, hins nýja forsætisráðherra Palestínumanna, en viðræður þeirra gefa ör- litla von um bót, þrátt fyrir forsöguna. Jónas Haraldsson ÞRIÐJUDAGUR 27. MAÍ 2003_ÞRIÐJUDAGUR 27. MAÍ 2003 Skoðun Fúnasta ríkisstjórn ís- landssögunnar hefur nú veriö mynduö. Það eina sem þessi volaða stjórn mun gera á kjörtímabilinu, ef að líkum lætur, er að drepa þjóðina úr leiðind- um. Eina lífsmark ríkis- stjórnarinnar felst í Þor- gerði Katrínu Gunnarsdótt- ur, sem er vel að sínu embætti komin. Vonandi tekst henni að lífga að- eins upp á þessa örþreyttu ríkisstjórn. Lúnir ráöherramir hafa setiö svo lengi og eru orönir svo samgrónir stólunum sínum aö þeir munu ekki gera annaö en aö liggja á meltunni út kjörtímabilið. Það viröist ein- hvern veginn allt líf úr þeim, nema kannski Halldóri; hann fær að viöra sig aðeins og rölta ofan af Rauðarár- stíg og í stjómarráðið eftir rúmlega ár. Hann kætist aðeins við það. Þjóðinni gefiö langt nef Þjóðin var þegar orðin svo þraut- leið á þessari ríkisstjóm fyrir kosn- ingar að hún veitti henni ærlega ráðningu í kosningunum og fylgið bókstaflega hrundi af henni. En þrátt fyrir aö skíttapa kosningunum hika stjórnarflokkarnir ekki við að gefa þjóðinni langt nef og halda bara áfram eins og ekkert hafi ískorist. Eins og kosningamar hafi hreinlega ekki farið fram. Meirihlutinn sem var ansi rífleg- ur eftir kosningarnar 1999 eða 59,1 prósent, svo ekki sé minnst á kosn- ingamar þar á undan þegar flokk- amir fengu 60,4 prósent samanlagt, hangir nú á horriminni og er aðeins 51,4 prósent. Þessum skilaboðum frá kjósendum var einfaldlega hent beinustu leið í ruslakörfuna. Hagsmunir Davíðs ráða Það er ekki aðeins að þetta sé fer- leg stjórn fyrir þjóðina, heldur er hún líka afar slæm fyrir stjórnar- flokkana - sérstaklega þó fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Eftir flögur ár mun þjóðin senda þessa ríkisstjórn lengst út á hafsauga, það er að segja ef hún lifir leiðindi næstu fjögurra ára af. Þessi stjórn er aöeins góð fyrir tvo menn; þá Davíð Oddsson og Halldór Ásgrimsson. Ríkisstjórn- in er í raun mynduð utan um per- sónulega hagsmuni Davíðs og hent- ar einnig ágætlega fyrir Halldór Ás- grímsson. Vandi sjálfstæðismanna Davíð Oddsson hefur verið einkar sigursæll stjómmálamaöur og mynd- un þessarar fjórðu ríkisstjómar hans er svanasöngur hans í pólitík. Ef honum hefði ekki tekist að mynda nákvæmlega þessa stjórn hefði af- hroð hans í kosningunum verið ber- sýnilegra. Með því að mynda stjórn- ina kemur hann í veg fyrir að raun- verulegir sigurvegarar kosninganna, þeir sem þjóðin kaus til starfa, geti hampað sigri sínum. Með þessu móti getur Davíð setið sem forsætisráð- herra í ríflega ár í viðbót og látið sjálfur af störfum á hundrað ára af- mæli íslensku heimastjórnarinnar. Og gefið dauðann og djöfulinn í hvað verður um Sjálfstæðisflokkinn í næstu kosningum. Það vekur óneitanlega athygli að Davíð mun stíga af stóli forsætisráð- herra mánuði fyrir landsfund Sjálf- stæðisflokksins. Ég hef enga trú á því að maður eins og Davíð nenni að „dingla sér“ í öðru ráðuneyti til lengdar. Davíð er einfaldlega á leið- inni úr pólitík. Þessi stjóm er aðeins góð fyrir tvo menn; þá Davíð Oddsson og Halldór Ásgrímsson Geir tekur út ósigur Davíðs Það kemur svo í hlut Geirs Haarde að stýra flokknum inn í næstu kosn- ingar, og það eftir afhroð í síðustu kosningum og sextán ára stjómar- setu. Þá verður endanlega kominn tími á að gefa Sjálfstæöisflokknum langt frí frá landsijóminni. Nú er Geir margt til lista lagt og er á margan hátt ákjósanlegur for- ystumaður fyrir Sjálfstæðisflokkinn, en hvort nokkur maður ræður við þetta hlutskipti er vægast sagt óljóst. Sérstaklega í ljósi þess að Davíð hefur búið svo listilega um hnútana að hafa af honum eina vopnið sem hugsanlega gæti bitið í þessari vonlausu stöðu - nefnilega að nýr formaður sæki fram úr stóli forsætisráðherra í stjómarráöinu. En ónei; Geir er ætlað að sækja sig- urinn úr utanríkisráðuneytinu. Þannig hefur Davíð bundið eftir- mann sinn í báða skó. Geir mun þá fá það óskemmtilega hlutskipti að taka út ósigur Davíðs Oddssonar í næstu kosningum. Þá verður Davíð víðsfjarri og horfir á aðfarimar i ör- uggu skjóli hinum megin við Amar- hólinn, saddur pólitískra lífdaga. Ósigri Framsóknar frestað Halldór Ásgrímsson er hinn mað- urinn sem græðir á þessari ríkis- stjóm. Hann fær jú að verða forsæt- isráðherra í tæp þrjú ár; eins og hann hefur alltaf dreymt um og metnaður hans stendur til. Og það dugir til að hann verði lukkulegur með þessa raunalegu ríkisstjóm. Það má segja Halldóri til hróss að hann barðist nánast við ofurefli í kosning- unum og tapaði sáralitlu frá kosning- unum 1999 - en nú gleymist oft að þá galt Framsóknarflokkurinn afhroö og tapaði heilum fimm prósentustig- um frá kosningunum 1995, fór úr 23,2 prósentum og niður í 18,4 prósent. Ekkert bendir til að Framsókn muni rétta úr kútnum á þessu kjör- tímabili og pólitísk stjörnuspeki bendir miklu heldur til að í næstu kosningum taki flokkurinn út þann ósigur sem stefndi í framan af ári. Ummæli Óumdeild sannindi „Hægrimenn geta þó hrósað sér af einu. Þeim hefur tekist aö koma oröræðu sinni þannig á framfæri að í huga mjög margra er hún orðin að ópólitískum og óumdeildum sann- indum. Þannig er óttinn við vinstri- stjórnina hreint ekki bundinn við hægrimenn. Hann má finna í öllum flokkum, ekki síst þeim sem vilja sækja inn á miðjuna." Katrín Jakobsdóttir í Morgunblaóinu „Það skiptir máli hvemig for- ystumenn flokka koma fram í fjöl- miðlum. Hinn almenni borgari stendur ekki í því að reyna að kynna sér ítarlega hversu vel eða illa einstakir þingmenn og ráðherr- ar standa. Og ætti erfitt með það, þótt hann reyndi. Það eru nokkur mál sem fréttamenn gera að stór- málum sem ráða miklu um það hvort ráðherra nýtur álits eða ekki. Ef hinn almenni kjósandi ætl- aði sér til dæmis að bera saman Sturlu Böðvarsson og Valgerði Sverrisdóttur þá er ekki ósennilegt að honum dytti fyrst í hug að álver væri væntanlegt austur á firði, en Landssíminn sé ennþá óseldur." Vefþjóöviljinn Vddi mynd eftir Baltasar Ég var ágætur að teikna og skrifa sögur. ...Var tekinn afsíðis í frímínútunum og neyddur til að teikna mynd fyrir húsvörðinn vegna þess að ég var sonur pabba míns og hann'vildi eignast mynd eftir Baltasar. Svo sat ég og svitn- aði og teiknaði hús og sól. Baltasar Kormákur í viötali við Ský Hvernig skal meta vilja kjósenda? „Eðlilegt er að telja fyrst hver frambjóðenda lista fær flest atkvœði í 1. sæti, svo hver fœr flest atkvœði í l.og 2. sæti af þeim sem eftir eru og svo framvegis.“ Kjallari Samkvæmt nýjum reglum um áhrif útstrikana á röö þingmanna þarf minna til en áður til að breyta röð frambjóðenda. Svo dæmi sé tekið þarf að öðru jöfnu aðeins 9,1% kjósenda lista að strika efsta mann út til þess að hann falli um sæti, ef listinn hlýt- ur flmm þingmenn. Skrýtnar útstrikanareglur Þetta þýðir að þótt 90% kjós- enda listans lýsi þeim vilja sínum að frambjóðandi hljóti tiltekið sæti meö því að breyta ekki listan- um geta 10% kjósendanna feflt hann um sæti! Að visu geta stuðningsmenn efsta manns á lista varist útstrik- unum með því að strika mann númer tvö út, svo hann þurfi meira til að hækka og fella efsta mann. Slík regla er þó furðuleg því hugsanlegt er að stuðnings- menn hins efsta kæri sig ekki um að strika aðra út, eða viti ekki að varnar sé þörf. Skemmtilegri kosningar? Mig grunar að þessar nýju regl- ur hafi verið settar til þess að gera kosningar skemmtflegri. Það þyki skemmtilegra ef það er auðvelt að fella menn um sæti með útstrikun- um. Kannski það verði meira fjör á kosninganótt. Slík sjónarmið eiga auðvitað ekki að ráða. Eðlilegast er, að mínu mati, að meirihluti kjósenda lista þurfi að strika frambjóðanda út til að hann falli um sæti að öðru jöfnu. Eðli- legt er að telja fyrst hver frambjóð- enda lista fær flest atkvæði i 1. sæti, svo hver fær flest atkvæði í 1. og 2. sæti af þeim sem eftir eru, og svo framvegis. Furöusjónarmiö Fleiri dæmi eru um að fólk virð- ist telja að sumir kjósendur, jafn- vel lítifl minnihluti þeirra, eigi að hafa meira vægi en aðrir. Ein hug- myndin er að skilaboð kjósenda séu um að breyta eigi til ef stjórn- arflokkar missa fylgi, jafnvel þótt þeir haldi meirihlutanum. Hvað ef fylgi þingmeirihluta minnkaði úr 60% í 55%? Væri hann að fá þau skilaboð frá þjóðinni að hann ætti ekki að vera lengur við völd því 5% hefðu snúið við honum baki? Auövitað ekki. Þeir kjósendur sem skipta um skoðun hafa ekki meira vægi en þeir sem gera það ekki. D’Hondt-regian er góð Þegar þingsætum er skipt á milli flokka er notast við d’Hondt- regluna. Þá er deilt í atkvæða- fjölda lista með sætistölu. Fyrst keppa allir í efsta sæti listanna um fyrsta þingmannssætið, þá gildir hrein atkvæðatala. Þá kepp- ir annar maður á þeim lista sem hlaut fyrsta sætið við afla hina. Áfram gildir hrein atkvæðatala hjá efstu mönnum á öðrum listum en deilt er í atkvæðatölu með tveimur hjá þeim sem er í öðru sæti á listanum sem þegar er kom- inn með mann. Svona er haldið áfram og deilt er í atkvæðatölu hvers lista með 1, 2, 3 og svo framvegis, eftir því hvaða maður á lista þeirra keppir um næsta lausa sæti. Þessi regla er rökrétt. Henni er t.d. beitt svona ef tveir flokkar, annar með 33% og hinn með 67%, keppa um tvö sæti. Fyrsta sætið fær vissulega stærri flokkurinn. Þá er deilt í atkvæðatölu hans með tveimur í keppninni um annað sætið. Þá fær hann 33,5%, þ.e. meira en hinn flokkurinn. Hann fær því einnig annað sætið. Þetta er eðlilegt, því ef atkvæðafjölda flokksins er deilt jafnt á tvo efstu mennina fá þeir hvor um sig fleiri atkvæöi en efsti maður hjá hinum flokknum. Einar Júlíusson, dósent við Há- skólann á Akureyri, mótmælti þessari reglu í grein í DV. Telur hann að réttara sé að nota reglu sem miðast við að lágmarka skekkju, þ.e. mun á hlutfalli at- kvæða og þingmanna. Notaði hann reyndar sama dæmi og er að framan. Því er til að svara að d’Hondt-reglan lágmarkar einmitt slíka skekkju ef fylgi lista er deilt niður. í dæminu er minni skekkja ef tveir þingmenn með 33,5% á bak við sig hvor fá þingsætin tvö sem í boði eru, fremur en sá sem er einungis með 33% á bak við sig. Skilyröiö skapar skekkju Mín skoðun er því sú að d’Hondt-reglan sé sú regla sem best úthlutar lausum sætum í samræmi viö atkvæðafjölda. Henni er nú beitt, bæði í einstök- um kjördæmum til að finna kjör- dæmakjöma þingmenn og á lands- vísu, til að finna hvemig dreifa skuli jöfnunarmönnum á milli flokka til að þingmannafjöldi í heild sé í samræmi við atkvæða- fjölda. Að vísu er það skilyrði fyr- ir úthlutun jöfnunarmanna að flokkur hafi náð 5% á landsvísu. Það skflyrði skapar skekkju sem sterkari rök em fyrir að mótmæla. D’Hondt-úthlutunarreglan veld- ur því að fylgi stærri flokka nýtist venjulega betur en fylgi minni flokka. Það er eðlilegt. Flokkar fá svo til alltaf fleiri atkvæði en þeir þurfa til að ná þingmannafjölda sínum. Þau umframatkvæði skila ekki þingmanni, eðli málsins sam- kvæmt. Slík umframatkvæði eru að jafnaði hlutfallslega færri hjá stórum flokkum. Minni flokkar gætu sameinast til að sameina um- framatkvæði sín í einn pott og má þá jafnvel auka þingmanni eða þingmönnum. +

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.