Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.2003, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 15.12.2003, Blaðsíða 3
MÁNUDAGUR 15. DESEMBER 2003 3 DV Fréttir Verslunin RúmGött Smiðjuvegi 2-Kópávogi Sími 544 2121 Opið til jóla: Laugardaga kl. I I til 16 Sunnudaga kl. 12 til 16 Kjallari Hert öryggisgæsla og þyngri dómar eru ekki lausnin Hverju breytir handtaka Saddams? Heimurinn betri „Vonandi verður heimurinn betri fyrir vikið og friður i aðsigi þarna niður frá." Lilja Björk Ketilsdóttir I kjölfarið á morðinu á Önnu Lindh, utanríkisráðherra Svíþjóð- ar, hafa menn velt vöngum yfir því með hvaða hætti hægt sé að koma í veg fyrir eða minnka líkurnar á voðaverkum af sama tagi. Býsna háværar raddir heyrast sem krefj- ast þess að öryggisgæsla ráðherra og annarra ráðamenna verði hert og þeim fengnir lífverðir. Þá hafa einnig heyrst raddir þess efnis að rétt sé að herða viðurlög við brot- um af þessu tagi. En væri ekki skynsamlegra að ráðast að rótum vandans og taka betur á vanda þeirra sem geðsjúkir eru, en mögu- legt er talið að morðingi Önnu Lindh hafi verið veikur á geði? Fimm ára stúlka stungin til bana í Svíþjóð Daginn eftir morðið á Önnu Lindh barst frétt þess efnis frá Sví- þjóð að geðsjúkur maður um þrí- tugt hefði stungið til bana fimm ára stúlku á skólalóð í Arvika. Mað- urinn hafði verið vistmaður á geð- deild sjúkrahúss í nágrenninnu. Þá beið maður um sjötugt bana í Sví- þjóð í vor þegar geðsjúkur maður á þrítugsaldri drap hann og slasaði fleiri manns. Samkvæmt netmiðli Aftonbla- det eru nú um 1500 geðsjúkir ein- staklingar á götunni í Svfþjóð og er hluti þeirra, eða um 100 einstak- lingar, taldir hættulegir. Ástandið hvað þetta varðar er einna verst í miðborg Stokkhólms. I Aftonbla- det kemur einnig fram að um 10 sinnum líklegra sé að geðsjúkir fremji ofbeldisverk en aðrir og að 30% þeirra geðsjúklinga sem hafa ráðist á fólk geri það aftur. Frá því um 1965 hefur plássum á lokuðum deildum fyrir geðsjúklinga fækkað um 30.000 í Svíþjóð og eru nú 5218. Reynslan af þessu kerfi hefur ekki verið góð því ofbeldi hefur far- ið vaxandi í kjölfarið. TinnaTraustadóttir skrifar um viðbrögð við morðinu á Önnu Lindh í Svíþjóð. Einnig vandamál á íslandi Ljóst er að íslendingar glíma einnig við sama vandamál. Teknar hafa verið saman tölur sem gefa til kynna að um 20 geðsjúkir einstak- lingar séu vistaðir í fengelsum í stað þess að fá meðferð við hæfi. Þá er talið að um 30 manns, veikir á geði, séu á götunni og eigi hvergi höfði sínu að halla. Afleiðingar þessa geta verið skelfilegar; dæmi um það er þegar Steinn Ármann Stefánsson, geðsjúkur afbrotamaður, myrti mann á sjötugsaldri á síðasta ári. Fjórum mánuðum áður hafði faðir Steins sent þremur ráðherrum bréf þar sem hann sagðist óttast að son- ur hans kynni að vinna einhver voðaverk sem ekki yrði hægt að bæta, yrði hann áfram á götunni, og óskaði jafnframt eftir því að lang- tímalausn yrði fundin fyrir Stein og aðra sem búa við svipaðar aðstæður. Aukið forvarnastarf lykillinn Með auknu forvarnarstarfi og meðferðarúrræðum ætti að vera hægt að draga úr afbrotum og sam- félagslegum kostnaði þeim tengd- um. Þá má einnig leiða líkur.af þvf að lækka megi lyfjakostnað, kostnað vegna sjúkrahúsvistar, fækka sjálfs- vígum, draga úr örorkubótum, fækka töpuðum vinnudögum, minnka misnotkun á áfengi og öðr- um vímuefnum og draga úr skaðleg- um áhrifum og sársauka aðstand- enda þess sem í hlut á. Um 10-15 bráðveikir unglingar eru jafnan á biðlista á legudeild barna- og unglingageðdeildar Landspítalans og tugir bíða þess að komast á göngudeild. Verði þessu fólki ekki sinnt sem skyldi eru meiri líkur en minni á að ekki takist að bæta geðheilsu þeirra og koma í veg fyrir óæskilegar eða jafnvel hörmu- legar afleiðingar veikindanna. Á meðan ekki hefur verið unninn bugur á vanda þeirra sem eru á göt- unni og er ekki sinnt sem skyldi er varla annað að gera en að herða ör- yggisgæslu, fjölga í starfsliði lög- reglu og e.t.v. auka viðurlög við brotum þótt skynsamlegast væri að ráðast að rótum vandans og snúa þannig vörn í sókn. DV tekur við lesendabréfum og ábendingum á tölvupóstfanginu lesendur@dv.is. DV áskilur sér rétt til að stytta allt það efni sem berst til blaðsins og birta það í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Sérfræðingur verður i búðinni um helgar til jóla og ráðleggur þér um val á dýnu. Fri heimsending á rúmum á stór-Reykjavíkursvæðinu Klæðskerasníðum dýnur svo að þær henti líkama þínum fullkomlega. Dýnurnar okkar eru Islensk framleiðsla og framleiddar að breskri fyrirmynd. Einnig framleiðum við dýnur í öllum stærðum í eldri hjónarúm eftir þinum óskum. Ekkert er því til fyrirstöðu að hafá tvær dýnur með mismunandi uppbyggingu í sama rúmi. Besta S svseða bylgjunudd Rafmagnsrúmin frá s«m vöi er á. okkur eru með Innbyggt í dýnuna. viðurkenndri svaeðaskiptri (7 svæða) heilsulatexdýnu, vönduðum 28 rimla botni með stillanlegum stífleika og dýnuhaldara. Fáanleg með 5 svaeða bylgjunuddi. ATH 40% afsláttur. Tilboðsverð frá Kr. 7Í.800,- „Hún breytir ekki nokkru og ég hetd að hún skipti engu." Nökkvi Svafarsson „Þetta eru kaflaskil í baráttunni gegn þeirri ógn sem Saddam Husein heur verið gagnvart þjóð sinni og heimsbyggð. Vonandi felur þetta einnig i sérþau skilaboð gagnvart hryðjuverkamönnum í írak að barátta þeirra er fyrirfram töpuð þó hinir sömu geti látið margt illt afsér leiða. Miklu skiptir að Saddam náðist á lífi, ellegar hefði hann líkiega orðið píslarvætti - sem hann verðskuldarekki." Einar Kr. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks Bandaríkjamenn fagna nú handtöku Saddams Hussein. • Pífur • Rúmteppi • Heilsukoddar • Náttborð • Speglar • Skatthol • Kommóður • Kistlar • og fleira... Fyrir skólafólk. Vönduð einstaklingsrúm sem tryggja góðan svefn svo að neminn vakni óþreyttur og til í slaginn.Vönduð íslensk framleiðsla í haesta gaeðaflokki á frábæru verði. 90x200 • Tilboðsverð kr. 29.900,- 120x200 • Tilboðsverð kr. 43.920,- „Andófið í landinu gagnvart hernámsliðinu hefur verið mun meira en sem nemur stuðningi við Saddam Hussein. Pólitísk áhrif þessa eiga enn eftir að koma í Ijós því ekki er vitað hvaða tengsl forsetinn fyrrverandi hefur haft við andspyrnuhreyfingar." Ögmundur Jónasson, þingm.VG „Ég held að það hljóti að breyta talsvert miidu en það gerist ekki strax því hann á sér marga stuðnings- menn. Þegar fram í sækir á þetta eftir að hafa áhriffyrir okkur öll." Sveinsína Jóhanna Jónsdóttir Spurning dagsins I sláturhúsi Ein- hverjar röksemdir fyrir búskap í hverj- um afdal? Undarlegar rök- semdir Kristín Guðmundsdóttir hringdi: Á vef Bændasamtaka fslands var á dögunum birt grein um matvæla- verð á íslandi. Bændur segja landbúnaðarvör- ur ekki vera dýrar, enda verði að setja hlutina í rétt samhengi. Lífs- kjör hér á landi séu almennt góð og af því og laun- um ráðist afurða- verð. Athugasemdir í þessa veru hafa svo sem áður komið frá forystu bænda. Hún hefur verið iðin að koma með alls konar skringilegar röksemdir fyrir því að íslandsverð á matvælum sé eðlilegt og það megi réttlæta. En geta menn á hinn bóg- Lesendur inn komið með einhverjar röksemd- ir fyrir skynsemi þess að halda úti óhagkvæmum búskap í hverjum af- dal? Sníkja milljarða króna á ári til að niðurgreiða framleiðsluna? Láta bændur lepja dauðann úr skel, á sama tíma og forystusveit bænd- anna hefur kontór á dýrasta nóteli á íslandi? GengurJón af göflunum? Kristján Gunnarsson skrifar: Égvar að fylgjast með umræðum á Alþingi á laugardagsmorgun þar sem niðurskurð á Landsspítala - há- skólasjúkrahúsi bar á górna. Mönn- um varð óskaplega heitt í hamsi - og sumum meira en öðrum. Það var engu líkara en Jón Bjarnason væri að farast úr æsingi. Hann æpti, bað- aði út öllum öng- um - og gargaði. Á Hólastað var Jón býsna umdeildur, svo ekki sé fastar að orði kveðið, meðan hann var þar skólastjóri. ... f,... , ... Jomræðustol Þotti hann Ul- iiÆpti og baöaöi út skeyttur gagnvart önum öngum." nemendum jafnt og staðarfólki, svo ýmsum sveið undan og skildu hvorki upp né niður. En ekki virðist maðurinn vera hætishótinu skárri þegar hann kem- ur inn á virðulegustu stofnun lands- ins; sjálft Alþingi við Austurvöll. Fróðleg saga Ólöf Jónsdóttir hafði samband: Ég vil þakka DV fyrir fróðlegt viðtal við Ingibjörgu Sigfúdóttur sem birtist hér í síðustu viku. Þar fjallar hún um reynslu sína af MS- sjúkdómnum sem hún hefur nú þurft að búa við í nærfellt 40 ár, án þess að glata nokkru sinni kjarknum né tapa bjartsýninni. Að leita sjálf lækn- inga, en binda sig ekki endilega á klafa læknisráða - sem eru aldeilis heilög þegar til kaupsins kemur. Og nú er Ingi- björg búin að skrifa bók um reynslu sína af þessum sjúkdómi, sem er í senn lærdómsrík og skemmtileg. Þarna fer kona sem þjóðin getur lært mikið af. Ingibjörg Sigfús- dóttir Kona sem þjóðin getur mikið lært af.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.