Dagblaðið - 25.09.1975, Blaðsíða 1

Dagblaðið - 25.09.1975, Blaðsíða 1
iríálst, úháð dagblað lTárg.— Fimmtudagur 25. september 1975 —14. tbl. Ritstjórn Síðumúla 12 sími 83322, afgreiðsla Þverholti 2 sími 22078. SPARISJOÐSSTJORI GÓMAÐI FALSARANN Avisanafalsara tóksti gær að svikja ilt 100 þúsund kr. úr Sparisjóði Hafnarfjarðar. Hafði hann komizt yfir ávisun upp á 100 kr., sem gefin var út af góð- um viðskiptavini Sparisjóðsins og breytti hann ávisuninni þannig að hún hljóðaði upp á 100 þúsund kr. Upprunaleg ávisun hafði verið framseld af verzlun i Hafnarfirði og ávisanafalsarinn var annar framseljandi hennar. Allt þetta glapti gjaldkera Sparisjóðsins og var ávisana- falsarinn kominn út úr bankan- um meö 100 þúsund kr. er starf- andi sparisjóösstjóra, Þór Gunnarssyni, var sýnd ávisunin. Hann var að tala við rann- sóknarlögregluna um málið er hann sá piltinn i leigubil utan hússins. Þór brá skjótt við tókst að ná út i leigubilinn og pilturinn haföi engu eytt — Sparisjóður- inn fékk aftur sin hundraö þús- un. Þess skal getið að ávisun þessi var gömul, og hafði útgef- anda láðst að dagsetja hana, og verzluninni sem við henni tók e.t.v. ekki þóit ástæða til að innheimta þessar 100 kr, er hún hljóðaði upp á. En falsaranum tókst þó um stund aö gera hana að 100 þúsundum kr. ASt. Dollari dýrari, — en annað lœkkar Islenzka krónan hefur hækkað gagnvart flestum gjaldmiðlum siðustu daga. Orsökin er hækkun dollars, og fylgdi krónan honum eftir að mestu. Þó varð dollar krónu dýrari. A einum degi, milli 22. óg 23. þessa mánaðar varð veruleg sveifla. Pundið féll úr 339,30 krón- um i 336,90.Dönsk króna féll gagn- vart hinni islenzku úr rúmum 26,62 kr. i tæplega 26,45. Norsk króna var á tæplega 28,85 islenzk- ar hinn 22. en fór niður i rúmar 28. 63 hinn 23. Þá féll sænska krónan úr tæpum 36,25 i rúmlega 36,17 islenzkar og finnsk mörk úr tæpum 42,12 i rúmlega 42,05. V-þýzk mörk lækkuðu úr rúmum 61,73 hinn 22. i rúmar 61.43 daginn eftir og þar fram eftir götunum. Þessi hækkun krónunnar gagn- vart öðrum gjaldmiðlum en doll- ar kann að koma nokkuð spánskt fyrir sjónir, meðan sögur um yfirvofandi gengisfellingu hafa magnazt siðustu daga. —HH Vestf irðingar fengu heimsókn í gærdag með flugvél frá flugmála- stjórn, og hana ekki af verri endanum. Vladi- mir Azkenasi er kominn til vestfjarða til að stjórna Sinfóníuhl jóm- sveitinni á ýmsum stöð- um ásamt Guðnýju Guðmundsdóttur. Eins gott að vera vel klædd- ur, hefur píanósnilling- urinn hugsað, og hann hafði rétt fyrir sér. í nótt voru næturfrost um land alltog veitir ekki af góðum skjólflíkum, þegar ferðazt verður milli staða á Vestf jarða- kjálkanum. Páll Pálsson fréttaritari DB á Þingeyri tók myndina við komu tónlistarfólks- ins. MEÐ Skothríð í Lissabon í nótt Byltingarráð hersins i Portú- yfir fjölmiðlum. gerðir róttækra hermanna og hækkun, sem fyrri stjórn gal kemur saman i dag undir Ekki bætir andrúmsloftið, að reiðra flóttamanna frá Angóla. Goncalvesar hafði lofað. miklum þrýstingi frá hægri og herlögregla dreifði fjölda Rúmlega 100.000 verkamenn i vinstri til að reyna að leysa eitt manns i miðborg Lissabon i stáliðnaði gerðu i gær klukku- helzta stjórnmála vandamál gærkvöldi með skothrið. Var stundar verkfall til að leggja á- Sjá grein um ástandið i Portú- landsins, hver skuli hafa yfirráð þar um að ræða mótmælaað- herzlu á kröfur sinar um launa- gal á bls. 8. URSLIT I NESSÓKN Séra Guömundur óskar Ólafsson hlaut 1570 atkvæði, þegar talið var á Biskups- skrifstofu i morgun i Nes- sókn. Séra örn Friðriksson hlaut 1107 atkvæði. 2732 kusu. Langfyrstir, — eins og alltaf fró því við byrjuðum, - íþróttir OPNU Er rafmagns- gjaldskráin ógild? — bls. 4 Nœturfrost ,,1 nótt var frost i tveggja metra hæð, lágmarkið minus 1,3 gráður, en niðri við jörð minus 8 gráður” sagði Markús Einarsson veður- fræðingur á veðurstofunni okkur. Viðast hvar um landið var hitinn i grennd við frost- mark a.m.k. þar sem heið- rikt var. Má búast við, að veðrið verði svipað næstu daga, austanáttin helzt og bjart verður i veðri. —BH

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.