Dagblaðið - 02.04.1976, Blaðsíða 12

Dagblaðið - 02.04.1976, Blaðsíða 12
12 DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 2. APRtL 1976. Jón sá beztí! Jóni Sigurössyni voru í gærkvöld afhcnt verðlaun sem bezta leikmanni Íslandsmótsins. Engum þarf að koma það á óvart. — Jón hefur verið maðurinn á bak við veigengni Ármanns í vetur. Curtiss Carter, Trukkur, varð stigahæstur á íslands- mótinu og setti nýtt stigamet — skoraði 451 stig. Fyrir það fékk Trukkurinn veglegan bikar. Jón Jörundsson, ÍR kom út með bezta vítahittni í vetur og hlaut að launum bikar. Jón tók 60 vitaskot — hitti úr 48 sem er 80% nýting. h. halls. • Trukkurinn vann Þóri i hálfleik i leik Ármanns og UMFN f gærkvöld léku Þórir Magnússon og Trukkurinn í firmakeppni KKÍ. Sá er fyrr varð til að skora 15 stig sigraði. t stuttu máii Trukkur vann 15-8, enda varð Þórir alltaf að skjóta af færi en Trukkur setti rass í Þóri og þokaði sér smám saman að körfunni og eftir það var æftirleikurinn t auðveldur þrátt fyrir barsmiðar Þóris. -h. halls. Aukastig fyrir mörk — ó Reykjavikurmótinu í knattspyrnu, sem hefst ó morgun A morgun hefst Reykjavikurmótið i knattspyrnu með leik milli Vals og Arrnanns og hefst hann kl. 14. Upp á ýmsum nýjungum er bryddað, til að mynda er einkunnagjöf frábrugðin því sem nú tfðkast. Fyrir unninn leik fást tvö stig — en fyrir þrjú mörk skoruð eða fieiri næst aukastig, hvort sem lið tapar eða sigrar. Ef iið sigrar 4-1, fær það 3 stig geri lið jafntefli 3-3 fær hvort félag 2 stig og ef lið a vinnur b 5-3 þá fær lið a 3 stig — lið b 1 stig. Sex lið taka þátt í mótinu — 1. deildarlið Þróttar, Vals, Víkings, Fram, KR og svo Armann. Verð miða fyrir fullorðna er kr. 400.-, börn kr. 100 en nýnæmi er að nú miðast aldurstakmark barna við 14 ára en ekki 12 eins og tfðkazt hefur. • Skozkt blaklið kemur á morgun Skozkt blaklið frá Jordan Hill Collage er væntanlegt hingað til iands laugardaginn 3. apríl á vegum blak- deildar Þróttar. Leikmenn liðsins dvelja hér til 12. apríl og munu væntaniega leika við öll 1. deildariiðin í Reykjavík — svo og Reykjavíkurúr- val. Þetta lið er sterkt á skozkan mælikvarða — ofarlega í 1. deildinni skozku og sigraði nýlega í skozku skólakeppninni. Iþróttir íþróttir íþróttir Þó ekki hafi verið nema um 400 manns á úrsiitaleiknum í körfunni í gærkvöld þá létu þeir sannarlega I sér heyra, áhangendur Njarð- víkinga yfirgnæfðu þar aðra. DB-mynd Bjarnleifur. ‘Wk Sp» Hb 1 ¥ j jr#3 ÆF71 Æ* émm. Wfak f jp " - IF' «. «.f. ||* nfj'l. * W ÍV M" Á| Wk ~M I m ?:? Æ ff ^ -*1 , * Mt Im' tjPN* „ ' ik. L1 ^nrTRrWI w yk |. aj ■ iffel fcjjg. m&Pw /jm í'.Jf & HS9 Wm -;;r pp? ír%3íh8B| JWm * V ■ JHL k . flflBP ■ ‘ 'aQBI f Æ . ''ái&fÆWmí IfÍP8^ m m 411 Bikarinn líka Ármanns — í úrslitaleiknum í gœr sigraði Ármann UMFN 98-89 i miklum baróttuleik Armann varði titil sinn sem bikarmeistari og vann um leið bæði bikar og deild í gærkvöld þegar iiðið sigraði Njarðvik i sér- deilis skemmtilegum og á köflum vel leiknum leik. Er upp var stað- ið í gærkvöldi hafði Armann sigrað með níu stiga mun 98-89 en það var ekki fyrr en á tveimur sfðustu mínútunum að sá munur skapaðist. Bæði liðin eiga hrós skilið — Armann, sem lék skín- andi vel og átti sigurinn skilið, og Njarðvik er lék sinn bezta leik í vetur og mér er til efs að nokkurt annað íslenzkt lið hefði getað sigrað UMFN en Armann, í þeim ham sem UMFN var. Njarðvikingar fengu óskastart og komust i 13-3 og síðan 21-15 en Armenningar jöfnuðu sig og eftir 10 mínútna leik skildu aðeins 2 stig 23-21. Hittni beggja liða var slök en hins vegar voru Njarð- víkingar grimmir i fráköstum no yfirleitt höfðu þeir yfir. Þannig höfðu Njarðvikingar náð 8 stiga forskoti eftir 14 mínútur, 36-28, en í hálfleik munaði aðeins einu stigi, — Njarðvík 43 — Armann 42. Síðari hálfleikur er það bezta sem sézt hefur í körfuknattleik i vetur. Geysilegur hraði var í leiknum og bæði lið hittu vel. Lengi vel fór ekki sókn forgörðum hjá liðunum — körfu- knattleikur eins og á að leika hann. Jónas Jóhannsson og Stefan Bjarkason voru óstöðvandi hjá UMFN vel studdir af Brynjari Sigmundss., Kára Marissyni og Gunnari Þorvarðarsyni. — Jónas hitti allt sem undir körfu kom og Stefán hitti mjög vel. Hjá Armanni var Jón allt I öllu, Guö- steinn átti góðar sendingar á Jimmy, sem skilaði boltanum f körfuna. Undir körfunni var Björn Magnússon atkvæðamikill og Haraldur Hauksson skoraði með skemmtilegum langskotum. Já, það bezta sem sézt hefur I vetur, enda lágu áhorfendur ekki á liði sínu. Um 200 manns komu sunnan með sjó og hvöttu sína menn óspart og áttu áhorfendur ekki hvað siztan þátt i að lyfta leiknum upp. Þegar 9 minútur voru af síðari hálfleik var jafnt 70-70 og sjá mátti tölur eins og 74-74, og eftir 15. minútur 80-80. Þegar aðeins tvær og hálf minúta var eftir var staðan 88-86 en Armann reyndist sterkari á endasprettinum, virtist sem taugar Njarðvikinga brystu og lokastaða varð 98-89. Njarðvikingar misstu þarna af fyrsta titli sinum í meistaraflokki en áreiðanlega verður ekki langt að bíða að sá áfangi náist. Þrátt fyrir tap ætla Njarðvíkingar sér í Evrópukeppni bikarhafa þar sem Ármann hafði þegar unnið meistaratitilinn. Ármann hefur nú unnið bæði bikar og deild i ár, aðeins annað liðið til þess að gera það sama árið - KR 1974. Sigurganga Armanns I vetur hefur verið mikil enda hafa Ieikmenn lagt mjög hart að sér og óumdeilanlega hafa Armenningar á að skipa bezta körfuknattleiks- liðinu á tslandi ídag. Jimmy Rogers var stigahæstur Ármenninga með 32 stig, Jón Sigurðsson skoraði 30 stig og Haraldur Hauksson 16. Brynjar Sigmundsson og Stefán Bjarkason skoruðu 24 stig hvor fyrir Njarðvik, Gunnar Þorvarðarson 18. Til þess var tekið hve prúð- mannlega leikmenn komu fram f leiknum og mögl var út i dóma heyrðist varla, nema hjá Jimmy • Rogers — ástæðulaust. h halls. SKIÐASKOLI INGEMARS STENMARK t Áifjrl a’llnn cr a<\ scija n|>|» llögg cóa pi ik í hrckkuna og a*la sii» í að bcyjya. í lyrslu cr rcll art liala prikin staösctt cins ou; scsl á myiulinni. scin cr lcngsl til vinstri. I*cgar l»úió cr aú ná valdi á |>cirri a*nni»ii ipá brcyta staúsctnint»u prikanna cins og scst á næstu inviid, Þaó cr ága’tt ;iú brcytit uin siíkVi prikanna cða stanganna og finna þannig út hvcrnig staðsctning cr bc/.t fyrir rcttan „rythina". Einnig iná fmna mcð þcssuin ;cfinguin hvcr cr þicgilcgasti hallinn á stöngunutn.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.