Dagblaðið - 13.08.1976, Blaðsíða 1

Dagblaðið - 13.08.1976, Blaðsíða 1
friálst, úháð dagblað RITSTJORN SÍÐUMt'LA 12. SÍMI 8:i:i22. AU.GLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA. ÞVERIIOLTI 2. SÍMI 27022 Aðeins hluti „Náttfara- þegar upplýstur ..Það er margt að kanna í þessu máli og fram að þessu er vart hægt að segja að annað hafi farið fram en gagnasöfn- un,“ sagði Haukur Bjarnason rannsóknarlögreglumaður í við- tali við Dagblaðið í morgun, en hann sér um mál „Náttfara". Maðurinn sem handtekinn var i fyrradag var i gær úr- skurðaður í 60 daga varðhald. Hann hefur þegar játað á sig 10—20 innbrot, en situr nú í yfirheyrslum þar sem farið er yfir einstök atriði margra mála. Mál þau sem kennd hafa verið við Náttfara eru mun fleiri en þau, sem hinn liand- tekni hefur þegar játað. Stærsta málið sem játning liggur fyrir um er innbrot í íbúð verzlunarstjóra að nætur- lagi, þar sem stolið var 50 þús. kr. úr veski og lyklum að verzl- un, sem síðan var farið inn í og stolið hundruðum þúsunda. Haukur Bjarnason vildi hvorki játa né neita því, hvort tengsl væru á milli afírrota hins handtekna og innbrotsins í Útsýn, þar sem stolið var gjald- eyri fyrir um milljón krónur. Rannsóknarlögreglan vill með engu móti gefa upp nafn hins handtekna, sem þó hefur játað 10—20 innbrot. Engin rök, sem hald er í, virðast fyrir þeirri neitun. Lýsing á útliti hins handtekna hefur þó verið staðfest. — ASt. Loks samið við verkfrœðinga — samninganef nd borgarinnar klofnaði Loks var í nótt samið í deilu verkfræðinga Reykjavíkur- borgar, sem staðið hefur í um tvo mánuði. Samninganefnd borgarinnar klofnaði að vísu um samninginn, en fullvíst er talið, að hann verði sam- þykktur í borgarráði. Tveir af samningamönnum borgarinnar skrifuðu undir en tveir ekki. Verkfræðingar fá hækkun frá 1. marz síðastliðnum. Samningarnir voru undirrit- aðir með venjulegum fyrirvara um samþykki fundar verk- fræðinga og borgarráðs. Verkfallið hefur valdið verulegum vandræðum I borgarframkvæmdum, þótt aðeins hafi verið um fáa verk- fræðinga að ræða. — HH KEYPTINNISAMVINNU Ekki er útlit fvrir að helgarinnkaupin verði mjög spennandi í dag, þvi ekkert lát virðist vera á vatninu sem hellist yfir okkur úr háloftunum. Þessir öldungar hafa liklega vitað hvers var von og viljað hafa vaðið fvrir neðan sig, þvi þeir virðast búnir að Ijúka sínum helgarinnkaupum af. Ekki er golt að segja um hvað í pokanum er, en ekki skortir samvinnuna þar sem þeir deila þunganum á milli sín. 2. ARG, — FÖSTUDAGUR 13. AtiUST 1976 — 177. TBL. Póstur og sími með „f rífarþega" Um þúsund starfsmenn borga ekkert fyrir síma — eðafá helmings afslátt A milli 800 og 1000 starfsmenn af 1800 starfs- mönnum Pösts og síma um land allt greiða annaóhvort hálft af- notagjald eða ekkert fyrir atnot af símum sínum, að sögn Jóns Skúlasonar póst- og simamála- stjói-a. ..Þetta er í samræmi við reglugerð sem undirrituð er af ráðherra árið 1970 og hefur tiðkazt lengi því það er endur- skoðuð reglugerð frá fyrri árum." sagði Jón í viðtali við Dagblaöið. ,,Um þetta gilda strangar reglur sem starfs- man.iahaldiO sér um að séu haldnar en ég undinita sjálfur þau leyfi sent geí'in eru út.“ Samkvæmt reglugerðinni fær sá. sem unnið hefur hjá Pósti og sima í 24 mánuði, afslátt af halfu afnotagjaldinu. en verður að greiða umfram- símtöl og ske.vti og þess háttar. Sá sem unnið hefur samfleytt hjá f.vrirtækinu í átta ár fær síðan enga rukkun fyrir afnota- gjald af símanum en verður sem fvrr að greiða símtöl fram yfir þau 300 sem innifalin eru'i afnotagjaldinu. Vegna þess að starfsmönnum er ekki send rukkun fyrir afnotagjaldið sleppa þeir einnig við söluskatt- inn sem er 20%. Aðrir sem njóta fríðinda vegna síma eru svo nokkrir félagar í samtökum blindra og fatlaðra en ríkissjóður greiðir símreikninga þeirra og er ráð fyrir þvi gert á fjárlögum. —HP. SKATTSVIK ELDRIEN 6 ÁRAER EKKIHÆGT AÐ KÆRA — sjá bls. 8 Pólitísku dagblöðin skammta sér styrki S|alf — sjá bls. 4 Er „Eldfari kominn á kreik í Reykjavík? — sjá bls. 4 Peking vill rœða og verzla við Formósu — erlendar f réttir bls. 6-7 Þá kippti hann hryggnum ílið— það var œgilegt sagði Ásgeir Sigurvinsson — sjá iþróttir í opnu

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.