Dagblaðið - 24.08.1976, Blaðsíða 1
2. ARG. — ÞRIÐJUDAGUR 24. ÁGÚST 1976 — 186. TBL. RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12, SÍMI 83322, AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA, ÞVERHOLTI 2. SÍMI 27022
UMBODSDÓMARISKIPADUR
(ÁVfSANAMÁLINU (DAG
Sérstakur umboösdómari verður skipaður til að
rannsaka og fara með keðjuávísanamálið.
Yfirsakadómarinn í Reykjavík, Halldór Þorbjörns-
son, hefur óskað eftir því við dómsmálaráðuneytið, að
það skipi sérstakan umboðsdómara í þessu máli.
Hefur ráðuneytið orðið við þessum tilmælum, þar sem
sakadómaraembættið getur ekki með það farið með
nauðsynlegum hraða vegna mikilla anna þess. Er því
með skipun sérstaks dómara stefnt að því, að rann-
sókn þessa máls og allri meðferð verði hraðað svo sem
kostur er. Kemur þá meðal annars til kasta hins
skipaða umboðsdómara að taka ákvörðun um nafnbirt-
ingu þeirra, sem málið tekur til.
Dómsmálaráðherra, Ólafur Jóhannesson, hefur
látið uppi þá skoðun sína, að hann telji nafnbirtingu
nánast óhjákvæmilega. Með henni sé aðeins skýrt frá
staðreyndum, sem þegar liggja fyrir eftir rannsókn
Seðlabankans, hvað sem líði mati dómstóla á sök og
viðurlögum.
bS
' ” --------------------------------------
Skipakaupin:
SEÐLABANKINN TÍNIR SAMAN BROTIN
— baksiða
.— ■ ............................-
Guðmundur
Þórðarson
róðinn um-
boðsdómari
vegna
óvísana-
mólsins
„Ávísanamálið er nú komið í
hendur Guðmundar Þórðar-
sonar fulltrúa skattrannsókna-
stjóra og hann mun hafa að-
stöðu til þess að helga sig því,“
sagði Ólafur Walter Stefánsson
skrifstofustjóri i dómsmála-
ráðuneytinu í viðtali við Dag-
blaðið i morgun.
„Hann mun sjálfur ákveða
hvort nöfn þeirra, er rannsókn
ávisanamálsins beinist að,
verða birt almenningi."
Sagðist Ólafur halda að málið
væri umfangsmikið en ekki
vildi hann tjá sig um það hvort
hver einstök viðskipti þeirra, er
rannsóknin beinist að, myndu
verða skoðuð.
Ekki tókst að ná tali af
Guðmundi í morgun en opin-
berrar tilkynningar um málið
er að vænta frá ráðuneytinu í
dag. — HP.
Þeir voru fljótir að bjarga við málunum, starfsmenn Reykjavíkurborgar, þegar bent var á það í
blöðunum að efni vantaði á starfsvöll í efra Breiðholti. Enda þótt sumarið sé á enda, sumar sem
aldrei kom til okkar að gagni, þá var hafizt handa þar efra, og hér stekkur strákur einn yfir skurð
og skundar í átt að spýtunum, sem eiga eftir að verða hús á vellinum. (DB-mynd Árni Páli).
Sjó bls. 4
Ólœti ó
Upptökuheimilinu
í Kópavogi
Kópavogslögreglan var
kvödd að Upptökuheimilinu
i Kópavogi í gær. Höfðu þar
brolizl út einhver ólæti en
eins og kunnugt er tóku
nokkur ungmenni af heimil-
inu bíl stofnunarinnar.
Var ákveðið að ferðafrelsi
ungmennanna, sem þarna
áttu hlut að máli, yrði tak-
markað. Virðist svo sem það
hafi ekki fallið í góðan jarð-
veg og brauzt út einhver óró-
leiki á upptökuheimilinu.
Lögreglan stiliti þarna til
friðar. _ BA
Þarf Júlíana
■ Hollands-
drottning að
afsala sér
krúnunni?
— Erlendar fréttir ó
bls. 6-7
•
Konur 80%
kennara í
barnaskólum
borgarinnar
— Sjó kjallaragrein
Kóra Arnórssonar
bls. 11
„Hótel Saga"
og „Seðla-
bankinn" taka
ó sig mynd ,
við Krðflu
- bb. 14-15