Dagblaðið - 28.08.1976, Blaðsíða 5

Dagblaðið - 28.08.1976, Blaðsíða 5
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 28. ÁGÚST 1976. 5 Leyfir útvarpsráð undanþágu til reksturs einkaútvarpsstöðvar? unnið er að kðnnun þess máls „Við Vilhjálmur lögðum fram umsókn til útvarpsráðs um að okkur yrði leyft að gera tilraun með að reka útvarpsstöð í nokkra mánuði. Að sjálfsögðu gerum við okkur grein fyrir þvi að til laga- breytinga þyrfti að koma, ef slíkt yrði gefið frjálst, en við vildum láta reyna á, hvort útvarpsyfir- völdin sæju sér fært að gera slíka tilraun án þess að málið þyrfti að fara fyrir Alþingi,“ sagði Markús Örn Antonsson ritstjðri og borgarfulltrúi í samtali við DB í gær. Hann og Vilhjálmur Þ. Vil- hjálmsson lögfræðingur lögðu þessa tillögu fram til útvarpsráðs fyrir nokkru. í fyrstu grein laga un útvarps- rekstur ríkisins segir meðal annars: „Ríkisstjórnin hefur einkarétt til að reka útvarp á íslandi." Hvergi í lögunum virðist um nokkurn sveigjanleika frá þessari setningu að ræða. Andrés Björnsson útvarpsstjóri sagði í samtali við DB í gær að hann sæi hvergi í lögunum punkt til undanþáguheimildar. „En ég hef falið lögfræðingi útvarpsins,1 Lúðvík Ingvarssyni, að kanna' þetta mál niður í kjölinn,“ bætti hann við. Markús Örn Antonsson tjáði blaðinu að þeir Vilhjálmur hefðu kannað mjög vel rekstur einkaút- varpsstöðva. Til dæmis myndi út- búnaður þeirra kosta minna en að setja á stofn dagblað. Þá hefðu þeir einnig kynnt sér hvaða tækjabúnaður kæmi helzt til greina. „Við stöndum tveir einir að þessu máli eins og er,“ sagði hann, „en ef svo færi að við fengjum leyfi til rekstursins þyrftum við að bæta við okkur mönnum." — ÁT — £K* TVÆR BRÝR ÓNÝTAR OG ÞJÓÐ- ."S53L VEGURINN TALSVERT SKEMMDUR Mikið stórviðri gekk yfir Ólafsvik í fyrrinótt og fylgdi því gífurleg úrkoma svo að vegir í nágrenninu stórskemmdust og einnig götur inni í bænum sjálfum. Bárður Jensson fréttaritari DB i Ólafs- vík tjáði blaðinu í gær að vindhraðinn hefði sennilega komizt upp í 10 til 11 vindstig, þótt minni vindhraði hafi mælzt á Gufuskálum og í Stykkishólmi. Stóð veðurofsinn af suðri. Halalækur í Grundarfirði við Skerðingsstaði gróf allan þjóðveginr. i sundur og fór bíll þar ofan í. Hólsá í Fróðárhreppi gróf frá brúnni á þjóðveginum og mun brúin ónýt. Alvarlegra er ástandið við brúna yfir Hrísá í sama hreppi, því þar hefur þriggja metra kafli grafizt frá öðrum brúarendanum og munu báðir brúarsporðarnir sprungn- ir frá sjálfri brúnni, hún er einnig ónýt. Skv. bráðabirgðaathugun mun taka um tvo mánuði að gera við þessar skemmdir og verður því erfitt um samgöngur milli Ólafsvíkur og Grundar- fjarðar um sinn, en sú leið er hvað mest farin af öllum leiðum á Nesinu. Þá gróf Móðulækur við Djúpudali undir Jökli þjóðveginn í sundur en Fróðárheiði mun hafa sloppið við umtalsverðar skemmdir. Loks varð svo mikið grjóthrun úr Ólafsvíkurenni niður á veginn að hann var ekki farinn í gær nema brýna nauðsyn bæri til. -B.J/G.S. Ekki sjáanlegar veðurfarsbreytingar í nánd — en veðurfrœðingar vestra spá norðanátt hér á þriðjudaginn Hvers vegna er veðrið svona vont á Suðvesturlandi? Þessi spurning hefur heyrzt oft í sumar. Fólk er orðið guggið af sólarleysinu og hálf slappt á taugum. Fyrst voru bundnar vonir við að veðurbreyting yrði í byrjun hundadaga. — Það brást. Þá var öll von sett á lok hundadaga, það brást einnig. Nú einblínir fólk á höfuðdaginn, 29. ágúst. Til þess að fá úr þessu skorið í eitt skipti fyrir öll hringdum við í Borgþór H. Jónsson veðurstofustjóra á veður- stofunni á Keflavíkurflugvelli og bárum spurningunna upp við hann. „Það er vegna þess að það er hæð yfir Vestur-Evrópu og hefur verið þar í meira en mánuð. Þessi hæð beinir öllum lægðunum, sem koma að sunnan og suðvestan, ásamt hlýju og röku lofti, yfir til okkar. Þær eru komnar sunnan að, allt frá milli 30 og 40 gráðu. Hótt á sjötta hundrað nemendur verða i Öldungadeild MH í vetur I vetur verða hátt á fjórtánda hundrað nemendur í Menntaskól- anum við Hamrahlíð. Þar af eru nemendur í öldungadeild skólans á sjötta hundrað. Öldungadeildin verður sett þriðjudaginn 31. ágúst klukkan 17.30. Þá verður stundatafla af- hent svo og próftafla haustannar. Bóksalan verður opin að setn- ingarathöfn lokinni. Kennsla í öldungadeildinni hefst síðan dag- inn eftir. Skólinn verður síðan settur 1. september klukkan 9 og verður þá stundatafla afhent. Kennsla hefst um hádegi þann sama dag. Það er sennilega einnig rakt og hlýtt veður í Austur- Evrópu, þótt við höfum ekki haft fregnir af því. Það eru stórar bylgjur yfir norðurhveli jarðar, ein bylgjan liggur yfir okkur svo kemur hæðarhrygg- urinn og loks önnur lægðar- bylgja. Það sjást ekki nein merki um að veðurfarsbreytingar séu í nánd. Þó höfum við fengið þær fréttir frá Washington, þar sem þeir gera veðurspá fimm daga fram í tímann. Þeir halda því fram að það ætti að vera komin norðanátt hér á landi á þriðjudaginn kemur.“ — Hvernig rætast spárnar frá Washington? „Það er nú upp og ofan. En það eru meira en meðallagslíkur fyrir því að þær rætist, en stundum bregðast þær alveg,“ sagði Borgþór Jónsson veður- fræðingur. -ABj.- it Að vísu er haninn á myndinni ekki vindhani en hani engu að síður. Vonandi er að útivera hans viti á gott veður það sem eftir er af hinu svokallaða sumri sunnanlands og suðvest- an. Myndin er tekin í Mosfells- sveit, á Teigi. (DB-mynd AP.) Upplýsingarnar voru ekki fengnar frá Bergi Guðnasyni I DB 20. ágúst er viðtal við Berg Guðnason lögfræðing á Skattstofu Reykjavíkur. Var hann þar spurður um ýmislegt varðandi það er tekjur væru áætlaðir á menn. I grein þessari var og bent á að telja mætti að 9 aðilar af þeim 37, sem greiddu hæstu opinberu gjöldin, hefðu látið áætla tekjur sínar. Þessar upplýsingar komu ekki frá Bergi. Þær fengust þegar farið var yfir þá liði skattskrárinnar þar sem tekjur koma fram. Þá kom í ljós að tekjur þessara manna virtust enda annaðhvort á sléttri milljón eða hálfri milljón. Bergur vildi ekkert segja um þetta er hann var innfur eftir því hvort þetta fengi staðizt. Og enn síður voru nöfn þessara aðila fengin frá honum. Hann tók það sérstaklega fram að slíkum spurningum gæti hann hvorki svarað játandi eða neitandi, sem starfsmaður skattstofunnar. -BA- ■...y Risíbúð í Hlíðunum Til sölu góð 5 herb.rislbúðíi ágætu standi (90—100 ferm). Geymsluris fylgir. Nánari uppl. í sima 18039. > Bókin íslensk fyrirtaeki veitir aðgengilegustu og víðtækustu upplýsingar um íslensk fyrirtæki, félög og stofnanir, sern eru fáanlegar í einni og sömu bókinni. Islensk fyrirtæki skiptist niður í: Fyrirtækjaskrá, Viðskipta- og þjónustuskrá, Umboðaskrá og lceland today. Viðskiptalegar upplýsingar á ensku um ísland í dag. íslensk fyrirtæki kostar kr. 4.500.—. Sláið upp í ”ÍSLENSK FYRIRTÆKI” og finniö svarið.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.