Dagblaðið - 03.09.1976, Blaðsíða 14

Dagblaðið - 03.09.1976, Blaðsíða 14
14 DAGBLAÐIÐ. — FÖSTUDAGUR 3. SEPTEMBER 1976. " 'M .................................................................................... "■ ' .. "■ Engin ofsakœti í Hölfínni (HZL1 „Milljónaglampinn er nú reyndar horfinn úr augunum, en ég fæ samt borgað fyrir vinnuna mína og vel það,“ sagði Öttar Felix Hauksson, fram- kvæmdastjóri „Rock ’n’Roil Festival”, er DB spurði hann á miðjum hljómleikum, hversu margir miðar hefðu selzt. Þá- voru rúmlega 2000 manns komnir i Laugardalshöllina og fleiri gátu þeir tæpast orðið. t stuttu máli sagt gengu hljómleikarnir vel fyrir sig. Engar teljandi tafir urðu, er skipt var um hljómsveitir og oftast var blessunarlega stutt á milli laga. Sáralítið var um magnaragaul og annan hávaða, sem oft fylgir hljómsveitum, og fagmannsbragur var á tækni- legri hlið hljómleikanna. Annars hófst „Rokkið og rólið” á því að kynnirinn, Helgi Pétursson, gekk fram á sviðið og lagði gestum Hfsreglurnar. Þeir máttu ekki reykja í salnum og áttu að hliðra til fyrir myndatökumönnum sjón- varpsins og svo framvegis. Helgi virinur sér brátt fastan sess sem kynnir á popptón- leikum. Hann virðist þegar hafa tamið sér sérstaka sviðsframkomu. Yfirleitt tyggur hann tyggl- gúmmi 1 gríð og erg, hefur aðra höndina í vasanum og sveiflar hinni eins og Raggi Bjarná, þegar hann er að syngja. Þá virðist orðinn fastur liður hjá Helga að segja tvo brandara á hverju kvöldi; — einn sem allir hlæja að og annan sem aðeins tveir eða þrír skilja. — En nóg um kynninn, — hann stóð sig vel, eins og við var að búast. Hljómsveitin Cabaret fékk það erfiða hlutverk að hefja tónleikana. Hún flutti fimm lög eftir hljómborðsleikara hljóm- sveitarinnar, Valgeir Skag- fjörð. öll voru lögin sæmilega áheyrileg, en þó situr eitt eftir í huganum að hljómleikunum loknum. Það lag nefnist „Senior Miranda.” Aukalagið, Einn var að smíða ausutetur...” var skemmtilega flutt. Það fór þannig fram, að þrír félagar í Cabaret léku það á bassa. Eik var næst á dagskrá og lék nokkur lög af hljómplötu sinni, sem væntanleg er á næstunni. Öll vor.u lögin frumsamin utan eitt, „Stormy Monday,” sem James Brown hefur meðal annarra leikið á hljómplötu. Tóngæðin hjá Eik voru góð. I þeim efnum naut hljómsveitin góðrar aðstoðar Tony Cook upptökumanns sem gerþekkir lög hljómsveitar- innai^og möguleika þeirra. Eftir að Eik hafði lokið leik sínum var hlé. Kynnirinn, Helgi Pétursson, benti fólki á að fara nú fram og kaupa sér pylsur, sem sfðan reyndust ekki falar. Fyrsta hljómsveitin eftir hlé var Fresh. Hún hélt sig fast við „funky“ linuna og fór vel af 'stað með miklum hávaða og krafti. Er líða tók á leik hljóm- sveitarinnar virtist þreyta gera vart við sig og hljómleika- stemmningin, sem meðlimir Fresh reyndu að skapa var að mestu hjöðnuð þegar leik hennar lauk. Þá var komið að Celsíusi. Hljómsveitin hafði undirbúið sitt eigið ljósa„show“ en fékk ekki að nota það þar eð gamall maður með bómull í eyrunum bannaði að slökkt yrði á ljós- kösturunum á sviðinu. Celsíus varð því að sitja við sama borð og aðrar hljómsveitir hvað tilbreytingarlausa lýsingu snerti. Celsfus flutti annars vönduð- ustu tónlist kvöldsins. Að hluta til var hún „funky" en þeir Celsíusarbræður slógu á marg- ar fleiri nótur. Mikið var um „instrumental” lög. Þau, sem voru sungin, voru þó áberandi betri helmingurinn af prö- grammi hljómsveitarinnar. Meðal annars lék Celsfus lagið Love Your Mother, sem var á prógrammi Change. Þetta er mjög grfpandi lag sem hljóm- sveitin ætti að hafa áfram á lagalista sfnum. Paradís rak endahnútinn á tónleikana með nokkrum lög- um sem hún hefur leikið á dansleikjum að undanförnu. Þeirra á meðal voru nokkur lög af plötu hljómsveitarinnar, svo og lOcc lagið Art For Art’s Sake. Aukalag Paradísar hefur lítið heyrzt áður, hvort sem það er nú frumsamið eða fengið að láni. í síðasta lagi Paradísar, Slip Me Five, var notað svonefnt stroboscope. Til þess að það nyti sín varð að slökkva öll ljós í salnum. Það var gert og nú virtist gamli maðurinn með eyrnabómullina ekkert hafa við slíkt að athuga. í heild tókust hljómleikarnir vel. Áheyrendur klöppuðu hljómsveitirnar upp að gömlum íslenzkum sveitaósið og er Paradís hóf leik sinn tróðust ungmennin fremst að sviðinu og voru nærri því búin að troða myndatökumenn sjón- varpsins niður. Þessi upp- troðsla áhorfenda virtist vera mest til málamynda, því að þegar upp að sviðinu var komið stóðu allir eins og nátttröll og góndu á hljómsveitina. Enn er eitt ótalið og er það húsaleiga Laugardalshallar- innar. Höllin tekur 20% prósent af brúttóverði hvers aðgöngumiða, þannig að 400 krónur féllu í hlut hallarinnar af hverjum aðgöngumiða. Ef reiknað er með því að 2000 miðar hafi selzt hefur Laugar- dalshöllin fengið í sinn hlut 800 þúsund krónur. Það verður að teljast dágóð leiga fyrir þrjá sólarhringa. Ef eitthvað er til sem kallast okurleiga er Laugardalshöllin þar stórtæk- ust. Eruð þið ekki sammála, lesendur góðir? —AT rtinum úiniui’ ‘\ !‘x pCt'l»SS"N0g m8ií' ' vW“ itanda sl? ð störfum Rótarar ÁSGEIR TÓMASSON 1 á ilifesÉÍí

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.