Dagblaðið - 10.09.1976, Blaðsíða 1

Dagblaðið - 10.09.1976, Blaðsíða 1
t ' ....—................. ASI blandar sér i mólið og vill: W X SJOMENN HRINDI ÞEIRRIVALD- NÍÐSLU SEM ÞEIR ERU BEITTIR Miðstjórn ASl hefur sent frá sér ályktun þar sem harð- lega er mótmælt bráðabirgða- lögum þeim, sem út voru gefin 6. þ.m., og ákveða kjör sjómanna frá 16. febr. s.l. til 15. mai 1977. „Með lögum þessum eru sjómenn þvingaðir til að vinna eftir „kjara- samningum“ sem þeir hafa tví- vegis fellt með atkvæða- greiðslum í félögum sínum og sviptir rétti til frjálsra samninga um kjör sin,“ segir í ályktuninni. ASÍ telur bráðabirgðalögin sérstaklega fordæmanleg, þegar haft er í huga að ekkert verkfall er nú á fiskiskipaflot- anum og ekki hefur enn verið lýst yfir verkfalli, þrátt fyrir skýrar lagaheimildir til slíkra aðgerða. ASÍ telur greinilegt, að „þessi ósvífna árás á sjómanna- stéttina er gerð í skjóli þess, að ekki hefur ríkt nauðsynleg eining í röðum sjómannasam- takanna um kjaramálin og mætti það verða öllum launþegasamtökum áminning um hvers vænta má af óvinveittu ríkisvaldi, þegar samstaða er ekki sem skyldi.“ Vonast ASÍ til að sjómenn styrki samtök sín og hrindi þeirri valdniðslu, sem þeir eru nú beittir. Heitir ASÍ sjó- mannasamtökunum öllum þeim stuðningi, sem það megnar að veita til að þau fái endurheimt samningsrétt sinn, eins og segir í ályktuninni. -ASt. Hannibal ó í erfiðleikum í Selórdalnum Lótin pennavinkona birtist við rúm mitt - ws. 9 ÍSLENZKT LEIKRIT í ABBEY- LEIKHÚSINU - bis. s Eldurinn í ruslaföt- unni afdrifaríkur Eldur kviknaði í ruslafötu í skáp sem var undir borði i eld- húsi á Laugavegi 46b um hádegisbil í gær. Eldurinn brauzt upp í gegnum skápinn og flögraði um veggfóðrið. Varð af þessu töluvert mikið tjón og íbúðin er að sjálfsögðu óibúðarhæf um stundar sakir. Svo virðist sem íbúar hússins, sem er viðbygging, hafi ekki verið heima þegar eldurinn kom upp. Þegar slökkviliðið kom á staöinn varð það að rifa járn- klæðningu þaksins til að komast að hálmi, sem notaður var sem einangrun fyrir húsið. Tókst að ráða niðurlögum eldsins á tiltölulega skömmum tíma. Töluvert mikið tjón varð af eldi, sem læsti sig eftir vegg- fóðrinu eftir gangi og fram í stofu. llins vegar urðu engar skemmdir af völdum vatns. -BA. „Huggun" mætti nefna þessa mynd. íbúi hússins sem eldurinn skemmdi fa-r huggun frá nágranna. -I)B-mvnd Bjarnleifur. Reykjavikurskókmótið: Spennan í hómarki — fjórir efstir og jafnir Spennan var mikil áður en skákin hófst. En sviptingarnar sem urðu milli Friðriks og Tukmakovs margfölduðu spennuna. Ahorfendur voru dasaðir að leikslokum, hvað þá skákmennirnir. En Friðrik tókst að breyta tapaðri stöðu í jafntefli. Þótti það kraftaverki líkast. DB-mynd Bjarnleifur. Spennan í Reykjavíkurskák- mótinu er nú í algeru hámarki og kann næsta umferð að breyta stöðunni mikið því fjórir menn eru nú í fyrsta sætinu með 8‘/$ vinning og á enginn þeirra biðskák. Þeir eru Frið- rik, Najdorf, Timman og Tukmakov. Friórik slapp fyrir horn í gærkvöldi er hann náði jafn- tefli við Tukmakov eftir að vera orðinn manni undir og hafa talið skákina tapaða um tíma. Næst á Friðrik að tefla við Helga Ölafsson. Timman teflir við Inga R.,Najdorf við Tukmakov. I 5. sæti er Westerinen með 7 vinninga, Anthosin í 6. sæti með 6‘A vinning og 2 biðskákir, Guðmundur og Keene í 7—8. sæti með 6!4 vinning, Ingi R. í 9. sæti með 6 vinninga og 2 biðskákir, Matera og Vukcevic í 10. —11. sæti með 5‘/£ vinn- ing, Haukur í 12. sáeti með 4‘A vinning, Helgi í 13. sæti með 3‘A vinning, Björn og Margeir í 14.—15. sæti með 3 vinninga og biðskákir, og Gunnar í 16. sæti með l‘/2 vinning. — G.S'. STORMUR 0G KRISTDAL — sjó kjallara á föstudegi eftir Vilmund Gylfason — bls. 10-11

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.