Dagblaðið - 23.09.1976, Blaðsíða 1

Dagblaðið - 23.09.1976, Blaðsíða 1
tríálst úháð dagblað 2. ARG. — FIMMTUDAGUR 23. SEPTEMBER 1976. — 212. TBL. RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12, SÍMI 83322, AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA, ÞVERHOLTI 2. SÍMI 27022 Sumarloðnuveiðin komst i 70 þúsund tonn i nótt: Hásetarnir grípa milljón á þrem mánuðum — Sigurður RE hœstur með um 9 þús tonn Sumarloðnan hefur reynzt óvæntur gróói fyrir þjóóarbúið og mun óhætt að segja aö útflutningsverðmæti hennar sé orðið á annan milljarð króna og í nótt veiddist 70 þúsundasta tonnið. Hásetarnir á loðnubátunum hafa gert það gott í sumar og þannig má nefna að hluturinn á þeim bát- um, sem komnir eru með fimm þúsund tonn, en nokkrir bátar eru með það og þar yfir, er um milljón og hafa hásetarnir gripið hana upp á tveim pg hálfum til þrem mánuðum. Hásetarnir á Sigurði RE, sem er aflahæstur í sumar með um 9 þús. tonn er farinn að nálgast tvær milljónir. Nú eru aðeins fimm bátar á þessum veiðum, Sigurður, Guð- mundur, Börkur, Súlan og Hákon. Að undanförnu hefur loðnan veiðzt vestar en fyrr í sumar, eða norð-vestur af Vest- fjörðum og er fituinnihald hennar minna en fyrr, eða allt niður í 12% en í sumar fór fituinnihaldið allt upp í 19%, jafnvel heilu farmarnir. Fiskifræðingar telja óhætt að veiða allt að 200 þús. tonnum af sumarloðnu, þannig að aðeins þriðjungur hefur verið tekinn í sumar, en búast má við mun meiri sókn næsta sumar þar sem veiðarnar nú voru nokkurs konar tilraunaveiðar, en árang- ur varð eftir óskum. -G.S. Fulltrúi Islands um óhófleg veizluhöld fulltrúa hjó S.Þ.: ÍSLENDINGAR TVÍMÆLALAUST AFTARLEGA Á MERINNI HVAÐ VEIZLUHÖLD SNERTIR — sœkja þó fjölda boða vegna gagnsemi þess að hitta menn við rólegri aðstœður en fundarhöld Við erum tvimælalaust aftar- lega á merinni miðað við aðra hvað það snertir að efna ti! heimboða enda er það dýrt og við höfum ekki peninga til þess, sagði Ingvi Ingvarsson, fasta- fulltrúi tslands hjá Sameinuðu þjóðunum. DB ræddi við hann t New York í gærkvöld um gagnrýni Kurt Waldheims, framkvæmdastjóra SÞ á óhóf- leg veisluhöld fulltrúa á Alls- herjarþinginu, sem Waldheim sagði koma niður á stundvísi þeirra og afköstum. Einnig gagnrýndi hann innantómt frasamál, sem þingheimur hefði tamið sér og væri al- menningi óskiljanlegt. Ingvi sagðist ekki hafa verið viðstaddur er Waldheim flutti þessa ræðu, en var kunnugt um hana og sagði að þessi veizlu- höld væru óhemju byrði á fasta- fulltrúunum og öðrum fulltrú- um. Sagði hann ókleift fyrir jafn litlar sendinefndir og þá islenzku, að sinna öllum þess- um boðum, en sagði að það gæti óneitanlega verið heppilegt að hitta samstarfsmenn við þær aðstæður að þeir stæðu ekki andspænis hvor öðrum á fundum þingsins. Hann sagði að islenzku sendimennirnir kæmust engan veginn yfir að sækja öll þau boð sem þeim væri boðið í. Þau er ekki yrði komist hjá að sækja væru sótt, önnur ekki. Að lokum benti hann á að ekki væri nema von að Waldheim hafi ofboðið hvað sjálfan sig varðaði, enda væri hann allsstaðar boðinn. Um loð- ið orðalag þingheims, sem al- menningur skildi ekki, eins og Waldheim orðaði það, hafði Ingvi ekki tima til að tjá sig þar sem fundur var að hefjast og hann átti að taka til máls. — G.S. I RANNS0KN HJA LÆKNAFELAGINU — sjó kjallaragrein um valdniðslu menntamólaráðherra — bls. 10-11 Vígðir til vizku Aratugum saman hafa fyrstubekkingar í Mennta- skólanum i Reykjavík hafið vist sína þar með því að vera „tolleraðir“ af eldri- bekkingum. Gengur þetta ekki alltaf átakaiaust fyrir sig og það hefur gerzt, að eftir að einum hefur verið hent upp í loftið, hefur hann gleymzt og næsti maður verið tekinn fyrir með misjöfnum afleiðingum. í gær voru nýliðar „tolleraðir" á Menntaskólalóðinni — og í þetta skiptið lentu allir aftur í öruggum höndum eldri, reynd- ari og vitrari nemenda. -DSB-mynd: SÞ. Lögreglan leggur hald á klámrit Sakadómur rannsakar islenzka klámritaútgáfu Lögreglan í Reykjavik gerði í gær umfangsmikla könnun á klámbókasölu kvöldsöluverzlana. Rikissaksóknari hefur lagt fyrir sakadóm Reykjavíkur að rannsaka það, hvort útgáfa og saia klámbóka og blaða brjóti 1 bága við ákvæói laga og stjórnar- skrárinnar um prentfrelsi. Að beiðni Erlu Jónsdóttur, fulltrúa yfirsakadómarans i Reykjavík, hófst könnun þessi í gær. Tóku lögreglumenn sýnis- horn af þessum ,,bókmenntum“, sem að undanförnu hafa náð meiri grózku en dæmi eru um áður. Eru klámblöð og bækur nú til sölu í nær öllum sælgætis- og kvöldsöluverzlunum á Reykja- víkursvæðinu, og raunar um land allt, og þannig aðgengileg fyrir jafnt börn og unglinga sem fullorðna. Stjórnarskrain kveður á um að ritskoðun og aðrar tálmanir á prentfrelsi megi aldrei leiða í lög. í almennum hegningarlögum eru hins vegar ákvæði þess efnis, að, birtist klám á prenti skuli sá sem ber ábyrgð á birtinu þess, sæta sektum, varðhaldi eða fangelsi. Sömu refsingu varðar að búa til eða flytja inn í útbreiðsluskyni, seija eða útbýta á annan hátt klámritum, klámmyndum eða öðrum slíkum hlutum. Um nokkurt árabil hafa erlend- ar klámbækur verið til sölu í mörgum bókabúðunt hérlendis. Ekki er vitað til neinna afskipta af þeirn innflutningi. en nú verður látið til skarar skríða gegn íslenzkri klámritaútgáfu. að beiðni ríkissaksóknara. -BS. á

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.