Dagblaðið - 01.04.1977, Blaðsíða 1

Dagblaðið - 01.04.1977, Blaðsíða 1
Srjálst aiiáð daffhlað 3. ÁRG. — FÖSTUDAGUR 1. APRÍL 1977. — 77. TBL. RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12. SlMl 83322. AUGJ.VSINGAR OG AFGRKIÐSLA,. ÞVERIIOLTI 2. SIMI 27022 Hross undir hnífinn — Sjá frásögn og myndiraf „hrossa- lækningum” á baksíðu V-þýzkur herforingi Kom sér upp draugaher — Sjá erl. fréttir bls. 6-7 Kristmann skilur í níunda sinn — baksíða Heimsmet í höllinni \ dag? Hort býður 400-500 íslendingum til f jöltef lis I dag ætlar tékkneski stór- meistarinn Hort að hefja til- raun til að hnekkja þremur heimsmetum á sviði skáklistar- innar. Býður hann 4—500 ís- iendingum til fjölteflis við sig sem hefst í Laugardalshöll kl. 1 í dag. Gildandi heimsmet á þessu sviði á Svíinn Gideon Stahlberg, sem 1940 tefldi við 400 menn og konur í einu og sama fjöltefli í Buenos Aires. Þarf Hort því að tefla minnst við 401 til að hnekkja metinu. Hort hyggst og gera tilraun til að vera skemmri tima en 36 stundir að ljúka fjöltefli við yfir 400 manns. Stahlberg var 36 tíma við fjölteflið 1940 í Buenos Aires. Kom þá nýr keppandi í skarðið fyrir hvern þann er Stahlberg lauk við að afgreiða. Sami háttur verður á hafður í Laugardalshöllinni í dag. Þá hyggst Hort hnekkja meti Bandaríkjamannsins Judy Acres, sem 21. apríl 1973 tefldi samtímis við 117 skákmenn í Portland í Oregon. Til þess að geta betrumbætt síðastnefnda heimsmetið þurfti Hort að fá stað þar sem aðstaða er fyrir 120 taflborð. Fyrir tilstilli Skáksam- bandsins fékkst Laugardals- höllinn til heimsmetstilraun- anna. Verður borðum komið fyrir í aðalsal þannig að þau mynda einskonar áttu. Hefur Hort taflið í miðju áttunnar, fer réttsælis fyrri boga hennar en síðan rangsælis hinn bogann. Er þetta fyrirkomulag einnig hentugt honum þar sem hann þarf þá ekki ætíð að ganga sama hringinn milli keppenda. Möguleikinn á fjórða heims- metinu er fyrir hendi ef Hort nær meira en 379 vinningum miðað' við 400 skákir, en það afrek vann Stahlberg í Buenos Aires 1940. Skáksambandið reynir við heimsmetstilraunir Horts að hressa upp á sjðði sína, sem orðið hafa fyrir nokkrum áföllum vegna frestunar einvig- isins. Tekið verður við frjálsum framlögum. Tekin verða í notkun borðin þrjú sem smíðuð voru fyrir heimsmeistaraeinvígi Fischers og Spasskýs 1972. Þeir sem við þau tefla styrkja Skáksam- bandið með minnst tíu þúsund krónum auk þátttökugjaldsins. í dag klukkan eitt byrja þeir Rolf Johansen stórkaupmaður, Guðlaugur Bergmann í Karna- bæ og Pálmi í Hagkaup við þessi borð, en panta má pláss við þau þá er þau losna með áðurnefndu skilyrði um styrk. Rolf byrjar á borðinu sem Fischer og Spasský tefldu við. Maður frá Pósthúsinu verður í Laugardalshöll eftir eitt í dag með sérstakan póststimpil vegna heimsmetstilraunanna. Skáksambandið selur umslög til fjáröflunar og önnur umslög verða ekki stimpluð. Skáksambandið hefur tvo ljósmyndara í höllinni í dag. Hafa þeir einir rétt til mynda- töku. Taka þeir myndir af öll- um sem óska að fá mynd af sér og'Hort yfir keppnisskák þeirra við heimsmetstilraunirnar. Myndirnar eru í plaströmmum og kosta 1000 krónur. Boris Spassky sem nú er laus af sjúkrahúsi verður í höllinni kl. 2—3 í dag. Áritar hann um- slög með sérstimpli. Gjald er 100 krónur á umslag. Kemst Spassky yfir mjög takmarkaðan fjölda umslaga á þessum stutta tíma. Allir keppendur verða að út- vega skákborð og taflmenn. Penninn, stærsta innflutnings- verzlun á þessu sviði hérlendis opnar leigu- og sölubúð með þessa muni í anddyri hallarinn- ar í dag. Hluti gjalds rennur til Skáksambandsins. Þátttökugjald er kr. 1000 á mann og 500 kr. fyrir 12—14 ára. Yngri en 12 ára komast ekki að. í kvöld kl. 7 flyzt fjölteflið úr aðalsal Laugardalshallar í kjall- ara anddyris, vegna handbolta- leikja í kvöld. Gert er ráð fyrir að Hort verði þá búinn að tefla við allt að 240 manns (tvo full- skipaða hringi). í kjallara verður teflt í nótt og áfram á morgun, unz takmarkinu — minnst 401 keppandi — er náð, hafi Hort úthald til. Skáksambandið væntir aðstoðar ísl. skákunnenda við heimsmetstilraunir Horts og að tékið verði vel í fjáröflunarað- ferðir sambandsins. Telur sam- bandið að heimsmetstilraun- irnar muni enn auka á hróður íslands í skákheiminum. 1 morgun var Penninn að flytja töfl og taflmenn i Laugardalshöll. Penninn var fenginn til þess sem stærsti innflytjandi hérlendis á þessum vörum. DB-mynd Hörður. — nemendur íBreidholti skiptu um skóla ídag „Kennararnir urðu alveg rugl- aðir þegar þeir komu inn í stof- urnar og sáu allt aðra krakka," sagði strákur úr Hólabrekku- skóla, sem hafði mætt í Fellaskóla í morgun. Krakkarnir úr þessum tveim skólum ákváðu fyrir viku að skipta um skóla í dag. Þess vegna var ekki nema von að kenn- ararnir væru ruglaðir i ríminu þegar þeir sáu allt önnur andlit I stofunum. Krakkarnir úr Hólabrekku- skóla þekktu sig vel í Fellaskólan- um vegna þess að þar voruþeir í 8. bekk í fyrra. Þeir sem heimsóttu Hólabrekkuskóla fara þangað væntanlega næsta vetur í 9. bekk. Þetta vár því hálft í hvoru kynn- ingardagur. Kennararnir kenndu ekki mikið í morgun svo krakkarnir sungu bara fyrir þá í staðinn. Einn nemandi var settur í gapa- stokkinn, kannski hefur hann farið út af laginu. -KP Þorkell Þórisson var settur í gapastokkinn. Ástæðuna fengum við ekki að vita, en það fylgdi með að hann væri margfaldur Íslands- meistari i lyftingum i sinum þyngdarflokki. DB-mynd Hörður. Krafla: Óveður hindrar garðagerð Vegna vonzkuveðurs á Kröflusvæðinu hefur ekki verið unnt að hefja byggingu varnargarðs, sem liggja á neðan við Kisiliðjuna í Mývatnssveit, en vinna átti að hefjast í fyrradag. Vegagerðin á Akureyri mun sjá um verkið og eru tæki og vinnuskúrar komin á staðinn. Garðurinn er gerður til að verja byggð i Reykjahlíðar- hverfinu. Hann mun verða um 400 metra langur og liggur nokkuð beint í stefnu norður- suður fyrir neðan Kísiuðj- una. Hann mun liggja á hrauni og þar af leiðandi verður að aka efninu í hann. Verkið mun taka nokkrar vikur og kosta um 6 milljónir. Það er í athugun að gera annan garð sem verja mundi Kísiliðjuna. Hann á að liggja austur úr efnisþrónni. Garður- inn væri þá vörn fyrir hugsan- legt hraunrennsli sem kæmi úr' norðurátt, af Leirhnúkssvæð- inu eða Bjarnarflagssvæðinu. Jón Illugason, oddviti í Reykjahlíð, sagði að fundur hefði verið með landeigendum og þar hafi verið rætt um að hugsanlegt hraunrennsli mundi komast í Grjótagjá. Væri æskilegt að eitthvað yrði gert til að koma í veg fyrir slíkt. Hugsanlegt væri að ýta að baðstöðunum. Einnig var rætt um að athuga gerð varnargarða fyrir Vogahverf- ið. Aðspurður hvort Grjótagjá væri í hættu, brytist gos út og hraun rynni með nýja garðin- um, sagði Jón að líklegast yrði nægur fyrirvari til þess að byggja þar varnargarð, enda brytist eldgos út í talsverðri fjarlægð. -G.S./-K.P. Var Brynjólfi og Einari treystandi? — Sjá föstudags- kjallara Vilmundar Gylfasonar ábls. 10-11 KENNARARNIR URÐU ALVEG RUGLAÐIR

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.