Dagblaðið - 20.04.1977, Blaðsíða 1

Dagblaðið - 20.04.1977, Blaðsíða 1
dagblað 3. ÁRG. — MIÐVIKUDAGUR 20. APRÍL 1977. — 89. TBL. itlTSTJÖRN SÍÐUMÚLA 12. SÍMI 83322. AUGLVSINGAR OG AFGREIÐSLA, ÞVERHOLTI 2. SÍMI 27022. - Samningarnir: Atvinnurekendur bjóða fjög- ur prosent kauphækkun e* Atvinnurekendur gefa í skyn, aö þeir séu reiöubúnir að hækka kaup almennt um fjögur prósent I ár og fjögur prósent á næsta ári, að viðbættum verð- lagsuppbótum. Þeir telja, að 4% kauphækkun i ár þýddi með verðlagsbótum, að kaup hækkaði um 26—30 prósent á árinu, en í þeim reikningi er meðtalin sú 7'á prósent kaup- hækkun, sem þegar hefur orðið á árinu. Atvinnurekendur hafna kröfunni um 100 þúsund króna lágmarkslaun en segja, að kjör hinna lægst launuðu ætti að bæta með lengingu vinnutíma þeirra, þannig að tryggðar yrðu 40 stundir fram yfir kaffitíma i stað rúmra 37, sem nú sé. Siðan mæla þeir með skattalækkun- um til að bæta kjör hinna lægst- launuðu. Fjögurra prósenta tilboðið er langt frá kröfum verkalýðs- félaganna, sem segja, að rúm- lega 50 prósent kauphækkun þyrfti til að jafna það, sem tapazt hefur siðustu ár. „Ætli þeir verði ekki komnir I fimm og hálft prósent eftir viku og alveg komið að verkföll- um,“ sagði Guðmundur J. Guð- mundsson, formaður Verka- mannasambandsins, í morgun um tilboð atvinnurekenda. Gekk saman um vinnuvernd Guðmundur sagði að veru- lega hefði gengið saman um vinnuverndarmál á fundum í gær. Rætt væri um, að á vinnu- stöðum, sem væru ólöglegir i þeim efnum, mætti fara i verk- föll og verkafólk héldi samt kaupi í viku, ef ákveðnum skil- yrðum væri fullnægt. Guð- mundur sagði að nokkur bylt- ing væri að verða í vinnuvernd og skilningur atvinnurekenda á þeim málum hefði aukizt mikið. Þá var á fundum i gær fjallað um tryggingar- og veikindamál og gekk nokkuð saman um þau. Samningafundur stóð frá klukkan tvö til sex í gær og hófst klukkan hálftíu í morgun. Sumaríö 77 Dagblaðið öskar lands- mönnum öllum gleðilegs og sólríks sumars Þau eru í sannkölluðu sumar- skapi og brosa blítt. Enda þótt gróður sé ekki farinn að taka við sér að ráði síðasta dag vetrar, þá skulum við vona að ekki verði löng bið á að Iandið færist senn í sumarskrúðann. Myndin var tek- in í ræktunarstöð Reykjavíkur- borgar þar sem fóik var að skoða hortensiur, sem eiga eftir að gleðja augu einhverra í grasgarð- inum í Laugardal í sumar. AfÆ ' r v „Endatafl” kl. 2 á Lof tleiðahóteli: Kapparnir eru ekkert að flýta sér heim — fara nordurtil f jöltefla og skíðaíþrótta — Hort vill láta 1. aprílgabb DB rætast Hort og Spassky setjast saman að taflborðinu á Hótel Loftleiðum í dag kl. 2. Þá fæst úr því skorið hvor þeirra heldur áfram í átt að heims- meistaratign. Sigurvegarinn fær um hálfa milljón í verðlaun en meðan kapparnir hafa setið að tafli síðutu vikurnar hefur gengissigið hækkað þau um 45 þúsund krónur. Séfræðingarnir telja að Spasský sé a.m.k. með aðra hendina á verðlaunun- um og tækifærið sé hans til að komast áfram í keppninni. En hver veit, — Hort er talinn ákveðinn að berjast fram í rauðan dauðann. I kvöld tekur Vilhiálmur Hjálmarsson, menntamálaráð- herra á móti skákköppunum og fylgdarliði þeirra og starfs- mönnum mótsins og fleirum en að því loknu verður haldið á Hótel Borg, þar sem einvígisslit fara fram. Skákmennirnir tveir virðast una sér hið bezta hér á landi og eru alls ekkert á förum. Báðir fara þeir á morgun norður í land til að tefia fjöltefli, Hort til Akureyrar og Spassky til Húsavíkur. Hort hefur hug á að fara á skíði í Hlíðarfjalli og að sögn Gísla Jónssonar hjá Ferða- skrifstofu Akureyrar er fátt því til fyrirstöðu, enda afbragðs skíðafæri nyrðra. Þá hefur Hort hug á því að láta 1. aprílgabb Dagblaðsins rætast Hann vill tefla fjöltefli við 500 manns og ætlar að reyna að slá ein þrjú heimsmet í skáklistinni. Mundi það afrek fljúga víða um lönd og vera skráð í heimsmetabók Guiness. -JBP- A

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.