Dagblaðið - 06.06.1977, Blaðsíða 1

Dagblaðið - 06.06.1977, Blaðsíða 1
3. ÁRG. — MÁNUDAGUB6. JÚNÍ 1977— 120.TBI RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12, AUGLÝSINGAR ÞVERHOLTI 11,‘ AFGREIÐSLA ÞVERHQI.TI2 — AÐ ALSÍ MI27022 „Nú horfir deiían verr” —segir Björn Jónsson — „Höfum fikrað okkur nálægt umræðugrundvellinum/' segja vinnuveitendur „Þetta tilboó bætir ekki skap manna. Nú horfir mun siður en áður i deilunni," sagði Björn Jónsson forseti Alþýðusam- bandsins í morgun um tilboð atvinnurekenda í gær. „Tilboðið er viðs fjarri um- ræðugrundvelli sáttanefndar og jafnvel lægra en fyrra tilboð atvinnurekenda," sagði Björn. En Davíð Scheving Thor- steinsson, formaður Félags íslenzkra iðnrekenda, sagði: „Við höfum fikrað okkur mjög nálægt umræðugrundvelli sáttanefndar. Við erum áreiðanlega að nálgast lág- launastefnu ASl." Hann sagði, að miklu skipti, að menn gerðu sér grein fyrir, að vinnuveitr endur miðuðu í tilboði sínu V við, að ríkið gerði meira en sagt hefur verið til hjálpar launþeg- um, því að verðbólgan yrði svo miklu minni, ef að tilboði at- vinnurekenda yrði gengið. „Það er óþarfi að vera að æsa sig strax," sagði Davíð og benti' á, að samningarnir gengju eitt- hvað, því að i gær hefði loks verið samið um sérkröfur vöru- bilstjóra og um 20 hópar i Sambandi byggingamanna hefðu með skilyrðum fallizt á samninga um sérkröfur innan 2,5 prósenta rammans. 5-6% dragast fró vísitölu, segir Björn Björn Jónsson sagði, að miklu munaði á tilboði atvinnu- rekenda og umræðugrund- vellinum, vegna þess að þær 21 þúsund krónur, sem samtals voru boðnar, dreifðust á lengri tíma hjá atvinnurekendum. Svo vildu atvinnurekendur, að fyrstu 1,5% í vísitölunni yrðu óbætt tvisvar á þessu ári, eða samtals 3%. Auk þess ætti launaliður bóndans ekki að bætast, og munaði þar 2-3% eða samtals 5-6%, sem atvinnu- rekendur vildu ekki láta bæta. Þetta yrði að dragast frá kauptilboðinu. Atvinnurekendur buðu i gær 12000 hækkun frá 5. júní, síðan 3000 1. september, 3000 1. janúar og 3000 1. júlí næsta árs. Umræðugrundvöllur sátta- nefndar gerði ráð fyrir 15000 strax og 6000 1. janúar. I fyrra tilboði buðu atvinnurekendur 8500 strax, 2500 1. desember og 2500 1. marz 1978. Atvinnurekendur bjóða nú 820 króna hækkun tyrir hvert vísitölustig, sem verðlag hækkar um, að frádregnum þeim prósentum, sem áður greinir. Eftir 1. marz 1978 verði full vísitölubót. Samnings- tíminn verði til 1. mai 1979. Röð verkfalla framundan Allsherjarverkföll í ein- stökum landshlutum halda áfram næstu daga til 9. júní. Síðan verða starfsgreina- verkföll þannig: mánudag 13. júní: málm- og skipasmiðir og verkamenn, sem við það starfa. Þriðjudag 14.: iðnverkafólk, byggingamenn og verkamenn, sem starfa í byggingariðnaði. Miðvikudag 15. júní: raf- iðnaðarmenn, prentarar og bókagerðarmenn, félög i veitingahúsa- og hótelrekstri. Fimmudag 16. júní: verzlunar- menn. Mánudag 20. júní: fiskiðnaður, vörubílstjórar, hafnarvinna. Allsherjarverkfall um allt land á að hefjast eftir þetta þriðjudaginn 21. júní. Óvenju- legur hótel- gestur Ovenjulegur gestur heimsótti Kristalsal Hótel Loftleiða sl. föstudag. Gesturinn er Alfa Romeo bifreið, sem ekið var inn um glugga hótelsins. Bifrciðin var til sýnis á hótelinu ásamt með öðrum sömu tegundar. — JH. DB-m.vnd Hörður Vilhjálmsson. > Manns saknað Víðtæk leit er nú gerð að tvítugum pilti frá Blönduósi, sem ekkert hefur til spurzt síðan aðfaranótt laugar- dagsins fyrir hvítasunnu. Var pilturinn á dansleik í Húnaveri á föstudags- kvöld og kom til Blönduóss um nóttina ásamt fleiri ungmennum. Var vitað af honum um 5-leytið þá nótt. Á þriðjudaginn i síðustu viku var hans saknað, enda töldu foreldrar hans ekki fyrr ástæðu til að óttast um hann. Á hvílasunnudag kom i ljós að bátshorn á sjávarkambi var horfið, en daginn áður hafði bátur sézt á reki á hvolfi undan Blöndubakka. Á sunnudags- kvöld rak bát þennan ára- lausan upp á Arbakka við Skagaströnd og fannst siðan önnur árin úr bátnum und- an Króksbjargi um miðja vikuna. Óttast menn að pilturinn hafi farið út á bátnum. Allar fjörur hafa verið gengnar tvisvar sinnum og hlutar þeirra oftar. Að ósk lögreglunnar á Blönduósi, sem staðfesti þessar upplýsingar í morg- un, verður nafn piltsins ekki birt að svo stöddu. -ÓV. l| SSHRb. t Sól sunnan heiða en mikill kuldi umalltland Nú er sólin farin að skína á Suður- og Vesturlandi en óvíst er að landsmenn gleðjist yfir veðurbreyting- unni því henni fylgir mikill kuldi. Ekki var nema þriggja stigahiti í Reykjavík í morgun kl. 6 en víðast hvar á Norðurlandi var hiti um frostmark. Á Akureyri hafði snjóað í nótt og jörð alhvít þegar ár- risulustu menn komu á fætur. Snjórinn var þó horfinn um níuleytið. Samkvæmt upplýsingum Knúts Knudsen á Veður- stofunni verður óbreytt veður um allt land, gert ráð fyrir áframhaldandi norðanátt. Bjart verður sunnan- og vestanlands en lítilsháttar él á Norðurlandi og norðan til á Austfjörðum. -A.Bj. Verzlunarmannafélag Suðurnesja lagði niður vinnu hjá vl: STUÐNINGUR ASÍ 0G LÍV VIÐ ÞAÐ ÓUÓS Stuðningur ASl og LIV við þá félaga i Verzlunarmannafélagi Suðurnesja, sem vinna hjá varnarliðsins og eru i verkfalli i dag, virðist vera nokkuð óljós, að því er kom fram í viðtali við Valgarð Kristmundsson, for- mann VS i morgun. Forseti ASt lýsti að vísu yfir stuðningi, án þess að vilja segja hversu víðtækum, og minnti á hugsanlegar afleiðingar verk- fallsins fyrir VS. Formaður LtV vísaði stjórn VS á að tala við Egil Sigurgeirsson liigfræðing um tagalega hlið verkfallsins. Sá lög- fra-ðingur vinnur talsvert fyrir ASl og vísar sambandið á hann þegar liigfræðileg atriði koma upp. Að siign Valgarðs sagði Egill verklallið óliiglegt, en VS menn s,já bó engin riik fyrir slikri fullyrðinu í varnarsamningnum og viðbætinum við hann. Eru nú eitthvað um 300 VS menn i verk- falli á Keflavíkurflugvelli. Eins og komið hefur fram ákvað Verkalýðs- og sjómanna- félag Suðurnesja og einhver fleiri smærri félög að veita undanþágur lil vinnu hjá varnarliðinu gegn því að þeir sem ynnu létu 20% af tekjum sínum í dag renna í verk- fallssjóði. Telja þeir verkföll hjá varnarliðinu ekki skapa neinn þrýsting en VS menn benda á að hér sé um svæðisverkfall að ræða á Suðurnesjum, þótt hermenn gangi inn í störf verkfallsmanna í dag, og ekki verði alvarlegar truflanir á rekstri stöðvarinnar. -G.S. Mikil ölvun í miðborginni um helgina Talsvert var um olvun í miðborginni um helgina sér- staklega á föstudasgskvöld, samkvæmt upplýsingum Erlends Sveinssonar varðstjóra á miðborgarstöð lögreglunnar. Var margt fólk á ferli í miðborginni, — og þurfti að fjarlægja marga vegna ölvunar. Margir lögðu einnig leið sína í bæinn á laugar- dagskvöld en þá var minna um ölvun. -A.Bj. Búið að semja á Þórshöfn —án vitundar allra samningsaðila íReykjavík —sjábaksíðu

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.