Dagblaðið - 14.06.1977, Blaðsíða 1

Dagblaðið - 14.06.1977, Blaðsíða 1
3. ARG. — ÞRIÐJUDAGUR 14. JUNf 1977 — 126. TBL. RITSTJÓRN SlÐUMULA 12, AUGLÝSrNGAR ÞVERHOLTI 11." AFGREIDSLA ÞVERHOLTI 2 — AÐALSÍMI 2Í022 r „Samningamir á fljúgandi ferö —og klárast eftir nokkra daga”, sagði formaður Félags íslenzkra iðnrekenda ímorgun „Ég held, að samningarnir fari nú á fljúgandi ferð og þetta verði klárað eftir nokkra daga, eftir það sem nú hefur gerzt,“ sagði Davíð Scheving Thor- steinsson, formaður Félags ís- lenzkra iðnrekenda í morgun. „Þróun málanna allra hefur orðið sú.“ Samningunum mundi því ljúka í kjölfar sam- komulagsins á Vestfjörðum. Vinnuveitendasambandið reynir að hindra að vinnuveit endur á Vestfjörðum skrifi undir sérsamkomulag við verkalýðsfélögin þar. Davíð Scheving sagðist telja óheppi- legt, að einhverjir brytu sig úl úr og semdu um ákveðin atriði. Hins vegar mundi ekki skipta öllu hvort undirskrift á Vest- fjörðum verður hindruð eða ekki. Línur hafa verið lagðar og Davíð taldi að með þróun mál- anna almennt i huga mætti álykta að samið yrði næstu sólarhringa. „Ég álít, að þetta komi hreyfingu á málin hjá okkur hér,“ sagði Björn Jónsson, for- seti ASl, í morgun um sam- komulagið á Vestfjörðum. Magnús L. Sveinsson, for- maður Verzlunarmannafélags Reykjavíkur, tók í sama streng. „Valdið liggur hjá hverju félagi," sagði Björn Jónsson, ,svo að þeim er heimilt að semja." Engor breytingar- Mllögur,“ segir Karvel „Ég gerði samninganefnd ASt gréin fyrir samkomulaginu i gær og er nú aftur á leið vestur og hyggst ekki leggja fram neinar breytingartillögur við samkomulagið, þótt ég vilji eklci tjá mig um viðbrögð ASÍ við því,“ sagði Karvel Pálma- son, sem er einn þeirra samningamanna Alþýðusam- bands Vestfjarða sem aðfara- nótt mánudags sl. náði sam- komulagi við vinnuveitendur þar. Kom hann til Reykjavíkur i gær til að gera samninganefnd ASÍ grein fyrir samkomulag- inu. Samningstíminn á Vest- fjörðum er til 31. des. 1978 og á kaupið að hækka um 30 þús. kr. á þeim tíma. 16 þús. strax, 5 þús. 1. jan., 5 þús. 1. júlí og 4 þús. 1. sept. Ekki var skrifað undir þetta samkomulag á fundinum serr samkomulagið tókst á, ASV vildi fyrst kalla saman for- mannafund til að ræða það í stærri hóp. Sá fundur. átti að. vera nú. fyrir hádeji. Er búizt við jákvæðum undirtektum for mannanna. Er þau ummæli Péturs Sigurðssonar, forseta ASV, þess efnis að tortryggni og öfund milli félaga mætti ekki hafa áhrif á gang samninga voru borin undir Karvel sagði hann ekki fjarri lagi að slíkt gæti skeð í vissum tilvikum. HH/GS Þáer það mat- arhléið... Það er oft spenningur í loftinu á mannmörgum vinnustöðum þegar farið er í matarhlé. Stofnað er til frekari kynna — það styttir hinn oft langa vinnudag, þegar ekki er yfirvinnubann. Sumir nota matar- hléið til þess að sóla sig — en aðrir til þess að bæta á sig auka- kílóum. Höfuðborgarbúar geta ekki gert annað við matarhléin sín þessa dagana en að bæta á sig aukakílóunum — því sólin er hul- in bak við skýjaþykkni. Sam- kvæmt upplýsingum veðurfræð- ings er ekki útlit fyrir breytingar á veðrinu sunnan- og vestanlands næstu tvo daga, það verður súld með köflum. En þeir sem búa á Norður- og Austurlandi geta notað sólina því þar er hún og ber með sér hlýju og yl. A.Bj. DB-mynd Ragnar Th. 80 prósent aflansókyn- þroska þorskur Sjá kjallaragrein ábls. 10-11 j AFGREIÐSLUBANN A HAFN- IR 0G TOLLVÖRUGEYMSL- UNA - STÖÐVUN FLUGS EBE GREIÐIÍSLENDINGUM SKAÐABÆTUR FYRIR BRETA Afgreiðslubann á hafnir í Reykjavík, bann á afgreiðsiu ur tollvörugeymslunni og stöðvun alls innanlands- og millilanda- flugs. Þessar aðgerðir eiga að taka við af allsherjarverkfall- inu næstkomandi þriðjudag, 21. júní, og halda áfram um óákveðinn tíma. Dagsbrun, Verzlunarmanna- félag Reykjavíkur og verkalýðs- félagið í Keflavík munu standa að þessum aðgerðum, þannig að verkfall verður gert á þessum sviðum, en aðrir félagsmenn vinna. Dagsbrún gengst þannig fyrir stöðvun í höfnunum á far- skip og olíuskip en fiskiskip verða undanþegin. Dagsbrún getur stöðvað flugið með verkfalli hlaðmanna en Verzlunarmannafélagið mun einnig fara í verkfall gagnvart fluginu. Kélagið i Keflavík mun stöðva milli- landaflugið Fundir verða um nánara fyrirkomulag þessara mála í viðkomandi félögum i dag. Ekkert gekk á samninga- fundum í gær. ASl-menn komu saman í morgun til að ræða um afstöðu í samningaviðræðun- um. HH „Þar sem efnahagsvandi íslendinga í dag er fyrst og fremst afleiðing af hernaðarofbeldi Efnahagsbandalagsþjóðarinnar Breta, ber Efnahagsbandalaginu að bæta það tjón sem það hefur orsakað og gera íslendingum mögulegt án gífurlegra fjárhags- fórna að stöðva veiðar sínar og byggja fiskistofnana upp á sem skemmstum tírna." Svo segir í bréfi frá „Samstarfsnefndinni til verndar landhelginni" til sendi- manna Efnahagsbandalagsins sem hingað komu. „Aðeins síðan 1972 hafa brezkir togarar tekið hér i skjóli hernaðarofbeldis um hálfa niill- jón tonna af þorskfiskum. Þetta er einmitt það magn. og árlegur framleiðsluafrakstur þess sein nú vantar í þorsKstofninn við isiand. Því hrekur brezka skilningsleysið á efnahagsstöðu íslands á undan- förnum áratugum og margendur- tekið hernaðarofbeldi stóran hluta íslenzkra Iaunþega út í at- vinnumissi á seinni hluta þessa árs og alvarlegan tekjumissi þjóðarbúsins og skerðingu kaup- máttar allra launþega," segir í bréfinu. „Forsvarsmenn launþegasam- takanna átelja harðlega þá hótun sem felst í því að senda til tslands, á sama tima og rætt skal um fiskveiðimál, sendinefnd til viðræðna um tollasamning Islands og Efnahagsbandalags- ins," segir þar. Að samstarfs- nefndinni standa launþegasatu- tök og félag áhugamanna. HH

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.