Dagblaðið - 16.06.1977, Blaðsíða 1

Dagblaðið - 16.06.1977, Blaðsíða 1
---------------------------------------------------------------—--------------------------------------------------—--1 3. ARG. — FIMMTUDAGUR 16. JÚNÍ 1977 — 127. TBL. RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12, AUGLÝSINGAR ÞVERHOLTI 11,” AFGREIÐSLA ÞPERHOLTI 2 — AÐALSÍMI 27022 Lára Ingvarsdóttir hjá BUR: „Eg fylgist ekki mikið með gangi samninganna en mér heyrist litil hrifning hér með þá enn. Þó held ég að þessi hækkun skipti litlu máli, það hækkar örugglega staðinn". -G.S. ■ irjálst, úháð daghlað Samkomulag náðist um kaup- hækkunina um sjö leytið í gær- kvöldi. Vegna verkfalls á hótelum og öðrum veitingastöð- um voru samningamennirnir á Hótel Loftleiðum nær matar- og kaffilausir í gær fram undir klukkan fjögur, þegar þeir fengu mat frá eldhúsi ríkis- spítalanna. HH Eng/n húrrahróp með krónutöluna , — fólk veit ekki enn hvað hún þýðir Beztu samningar sem ég minnist” — „Alltof hátt”, segja vinnuveitendur „í prósentum og upphæðum eru þetta beztu samningar, sem ég minnist," sagði Björn Jóns- son, forseti ASI, í morgun um samkomulagið um kauphækk- unina í gær. „En kauplagið hjá hinum lægst launuðu er þó ekkert til að státa af í saman- burði við okkar nágrannaþjóð- ir.‘‘ „Auðvitað er þetta alltof hátt. Við sköpum ekki kaup- mátt með því að skrifa undir háar kröfur,” sagði Davíð Scheving Thorsteinsson, for- maður Félags íslenzkra iðnrek- enda, í morgun. „Kaupið mun tvöfaldast á einu og hálfu ári með tilstilli verðbólgunnar og allir hugsandi menn sjá hvað það þýðir.“ „Eftir atvikum erum við fegnir að vera búnir að ljúka þessum áfanga en því miður er hann dálítið varhugaverður,“ sagði Ölafur Jónsson, fram- kvæmdastjóri Vinnuveitenda- sambandsins, í morgun. „Þetta er mjög hátt og við erum hræddir við verðbólguáhrifin.“ ,,Ég álít að tæknilega væri hægt að skrifa undir nú um helgina," sagði Björn Jónsson . „Þó eru stór atriði eftir, einkum að fá á borðið vilyrði fyrir ráðstöfunum ríkisins sem um hefur verið rætt. Allt, sem gert hefur verið er bundið því skilyrði að þau vilyrði fáist og önnur atriði samninganna verði leyst.“ „Það er fyrst og fremst eftir töluverð vinna um húsnæðis- málin,“ sagði Björn um „pakk- ann“ frá ríkisstjórninni „Þá er eftir að ganga frá veikinda- og slysatryggingum, og sérkröfum allmargra hópa, svo sem málmiðnaðarmanna, rafiðnaðarmanna og bóka- gerðarmanna, svo og nokkurra einstakra félaga." „Það er því talsvert mikil vinna eftir,“ sagði Björn. Ólafur Jónsson lagði áherzlu á að enn væri ekki búið að ganga frá nem? hluta af samningunum. Landssamband verzlunar- manna ákvað á fundi strax eftir að samið hafði verið um kaup- liðina, að fresta verkfallinu, sem átti að vera í dag, til mánu- dags. öðrum verkfölium hefur enn ekki verið frestað og fer um þau eftir því hvernig miðar næstu daga. Samningamenn voru á fundi samtals í í rúmar 30 stundir. Tólfára hjólreiða- maöurfyrir bíi á Hringbraut Tólf ára gamall drengur á reiðhjóli varð fyrir bíl um miðjan dag í gær á Hringbraut, á móts við Meistaravelli. Pilturinn hjólaði í vestur og beygði síðan yfir Hring-L brautina til suðurs. Bíllinn ók- eftir Hringbraut til austurs og lenti hjólareiðamaðurinn framan á bifreiðinni og síðan uppi á vélarhúsinu. Brotnaði hann á hægra fæti og vinstri olnboga.auk þess fékk hanú höfuðhögg. Samkvæmt upplýsingum slysa- rannsóknardeildar lögreglunnar missti pilturinn ekki meðvitund. Var hann á gjörgæzludeild Borgarspítalans i nótt undir eftir- liti en fer i aðgerð í dag vegna beinbrotanna. A.Bj. Það voru engin húrrahróp, sem gullu við er DB ræddi við nokkra verkamenn í morgun vegna samkomulagsins um krónutöluhækkunina um 32 þúsund á 18 mánuðum og virtist fólk vera jafn nær við þau tíðindi. Hér fara á eftir svör nokkurra er þeir voru spurðir álits á samningunum: Þórlindur Magnússon, verka- maður við höfnina: „Krónu- talan er ekki aðalatriðið, heldur hvað fæst fyrir kaupið. Eg er nú sjötugur og sem dæmi um markleysi krónutölu, þá keypti ég mér sjö tonna bát, þegar ég var 21 árs fyrir minni pening en harðfiskkílóið kostar nú. þetta þýðir, þetta samkomulag hefur ekki verið nægilega skýrt enn og sjálf krónutalan segir ekkert. Eitt er þó jákvætt, en það er samningstíminn, sem er þannig að næst verða samning- ar lausir í desember en ekki á dauðum tíma eins og nú. „Hvað er blessuð klukkan?" I 30 tíma samningalotu voru menn gær matarlitlir og kaffiþurfandi. Von var að Þórir Daníelsson, áfangi var að nást að samkomulag var orðið um kauphækkunina. maður, einn forvígismanna sérsamkomulagsins á Vestfjörðum og sambandsins. — Ljósm. Sv.Þ. orðnir býsna svefnþurfi auk bess sem samningamenn voru lengi i Verkamannasambandinu, liti á klukkuna þegar sá stórinerki Með Þóri á myndinni eru meðal annars Karvel Pálmasbn alþingis- lengst til hægri Karl Steinar Guðnason, varaformaður Verkamanna- Það þýðir ekki að tala um 30% hækkun nú þegar smjörlfkið hækkar um leið um 54%.“ Magnús Jónsson á véla- verkstæði BÚR: „Maður getur ekki gert sér grein fyrir hvað 18 þúsund strax — 32 þúsundá hálfu öðruári Samkomulagið um kaupið gengur út á að öll laun hækki jafnt, um 18 þúsund krónur strax við gerð samningsins. Síðan verði fimm þúsund króna hækkun 1. desember. Fimm þúsund krónu hækkun verði 1. júní á næsta ári. Loks verði fjögur þúsund króna hækkun 1. september á næsta ári. Alls. hækka því mánaðar- launin um þrjátíu og tvö þúsund krónur á þessu um það bil hálfu öðru ári. Samið verði til 1. desember 1978. Umræðugrundvöllur sáttanefndar hafði gert ráð fyrir 15.000 króna hækkun frá 1. maí síðastliðnum og 6000 til viðbótar 1. janúar á næsta ári og samningstíma til 1. nóvember 1978. HH: t ' — í prósentum og upphæðum, segir Björn Jónsson -

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.