Dagblaðið - 25.06.1977, Blaðsíða 1

Dagblaðið - 25.06.1977, Blaðsíða 1
í fijálst, áháð dagblað 3. ÁRG. — LAUGARDAGUR 25. JÚNÍ 1977 — 133. TBL. RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12, AUGLÝSINGAR ÞVJÍRHOLTI 11, AFGREIO§LA ÞVERHOLTI_ 2 — ABALSÍMI 27MÍ ’ Þingmaður sektaður við „græna hliðið” í Keflavík Sjábls.9 Dýrasti klæðnaður á íslandi kostaði 2,4 millj. Sjá baksíðu Sex milljón króna vinn- ingar liggja enn ósóttir Sjá baksíðu Vínveit- ingaleyfið tekið af Sesari Sjá baksíðu Líkurásól sunnanlands Likur eru á því að Sunnlend- ingar fái aö sjá sólina nú yfir helgina, eftir langvarandi dumb- ung og rigningar. Samkvæmt upp- lýsíngum veöurstofunnar er gert ráð fyrir því að vindur gangi í hæga norðanátt. Gert er ráð fyrir þurru og björtu veðri sunnanlands en norðanlands má gera ráð fyrir þokulofti á miðum og annesjum f yrir norðan. JH Meðan rigningin hrjáir Reykvíkinginn: Kaffi- brúnka íHall- ormsstað- arskógi „Það er ekki bara að maður fái peninga fyrir að vinna hér, — heldur líka mikla ánægju," sagði hún Begga, þ.e. Bergljót Þorsteinsdóttir frá Egils- stöðum. Hún starfar nú fjórða árið í röð í skógræktarstöðinni. Begga var að vinna við plöntun á blágreni þegar fréttamenn heimsóttu Hallormsstað í vik- unni. Plönturnar eru ekki veigamiklar í dag en eftir nokk- ur ár verður trúlega orðin veru- leg bre.vting á þeim, enda búa bæði plöntur og menn við allt annað sumar en Reykvíkingar og næstu nágrannar þeirra þekkja. Begga og stallsystur hennar í Hallormsstaðarskógi voru nánast kaffibrúnar á skrokkinn en það var eins og karlmennirnir næðu ekki alveg sama árangri í þeirri list. Húsbóndinn í Hallorms- staðarskógi, Sigurður Blöndal, verður skógræktarstjóri ríkisins frá og með mánaða- mótum. Hann og embætti hans virðast vera eins konar próf- steinn á landsbyggðastefnuna svokölluðu. -SJA BLS 4. Verður Bjamarflag bjargvættur Kröfíu? Hugmynd um boranir í Bjarnarflagi og pípulögntil Kröflu sem kostarmilljarð Athugun hefur verið gerð að tilhlutan Orkustofnunar á hvaða möguleiki væri á gufuöflun til Kröfluvirkjunar- með pípu frá Bjarnarflagi og kom í ljós að kostnaður við leiðslu þessa leið myndi nema um einum milljarði króna. Valdimar K. Jónsson prófessor hefur á vegum Verkfræðistofu Sigurðar Thoroddsens athugað þennan möguleika á flutningi gufunnar frá Bjarnarflagi að Kröflu og kont í Ijós að leggja þ.vrfti leiðslu allt að einum metra í þvermál um sjö kílómetra leið frá Bjarnarflagi að Kröfluvirkj- un. Kostar hver kilómetri leiðsl- unnar uppsettur um 150 milljónir króna. Auk leiðslunnar þyrfti að sjálf- sögðu að bora nýjar holur í Bjarnarflagi og yrði kostnaður við þær sennilega uin tveir mill.jarðar. þ.e. átta holur f.vrir hvora túrbínu. Orkustofnun inun nú vera að kanna hvaða mijguleikar eru til gufuiiflunar við Kriifluvirkjun og er þelta ein þeirra hugmynda sem unnið hefur verið að. Ekki hefur enn verið tekin nein ákvörðun um hvort þessi leið verður farin til gufuöflunar eða einhver önnur. BH Krossgáta, skákþáttur, vísnaþáttur og f jölbreytt helgarefni Töpum hundruðum milljóna á lúðuveiðum Norðmanna hér Norðmenn veiða hér töluvert af lúðu. Mörgum íslenzkum sjómönnum, sem upp á þetta horfa, þykir það átakanlegt þvi að lúðuverðið er margfalt hierra hér en i Noregi og "víþjóð. Hundruð milljóna kunna að tapast af þvi að við veiðum ekki þá lúðu sjálfir, sem Norðmenn taka hér við land, og seljum erlendis. „Við höfum orðið varir við lúðu um borð i ýmsum norskum skipum, allt frá nokkrum tonn- um upp í þrjátíu í einstökum skipum," sagði Pétur Sigurðsson, forstjóri Land- helgisgæzlunnar. í viðtali við DB. Hann sagði að alltaf hlyti að koma einhver annar fiskur með þegar Norðmenn væru á þeim þorskveiðum sem þeim eru heimilar samkvæmt samningi. Pétur kvað gæzluna tilkynna sjávarútvegsráðuneyt- inu um þennan afla jafnóðum. Þessar lúðuveiðar hafa verið taldar Norðmönnum heimilar, af því að ekkert er tekið fram um þær i fiskveiðisamningi þjóðanna. -HH.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.