Dagblaðið - 14.06.1979, Blaðsíða 7

Dagblaðið - 14.06.1979, Blaðsíða 7
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 14. JÚNÍ1979 7 Erlendar fréttir REUTER Mjúk lending íþurrum mart- ini kokkteil Herramaður að nafni Bruce Bradshaw frá Illinois i Bandaríkjunum hefur fengið viðurkenningu fyrir heimsins stærsta þurra martini kokk- teilinn. Hann var gerður í tilefni af eins árs afmæli veitingastaðar vestra. Til að halda upp á afmælið og viðurkenninguna frá heimsmetabók Guinness klifraði Bradshaw upp í flug- vél með fallhlíf á baki. Er komið var i þúsund metra hæð kastaði hann sér út og lenti i miðju kokkteilglasinu. Heimildir DB geta ekki um stærð þess né magn vökvans. Svamlaði kappinn síðan að „glas” brúninni. Ekki fara sögur af ástandi hans eftir slíkt sund í þurrum martíni. Af öryggisástæðum var ólívuberið ekki haft í glasinu en Bradshaw flutti það með sér í stökkinu, bundiðvið ökklann. DC-10 þoturfá flugleyfi íEvrópu DC-10 þotur í eigu evrópskra flug- félaga munu hefja. aftur farþegaflug næstkomandi þriðjudag að því er franski flugmálastjórinn tilkynnti i gær. Er þetta ákvörðun flugyfirvalda í tuttugu og einu Evrópuríki, sem tekin var á fundi þeirra í Strassborg. Þýðir þetta að um það bil sextíu DC-10 þötur hefja flug hinn 19. júní næstkomandi. Bandarísk flugmálayfirvöld hafa til- kynnt að ekki verði hvikað frá flug- banni þotnanna þar þrátt fyrir ákvörð- un yfirvalda. Gettymeð nýtteyra Sex árum eftir að mannræningjar á Ítalíu skáru eyrað af Paul Getty yngra hafa læknar í Los Angeles í Bandaríkj- unum bætt þar úr. Sérfræðingar í lýta- lækningum tóku hluta úr rifbeini Gettys og gerðu úr því nýtt eyra. Síðan var grædd húð af baki hans i smíðina. Aðgerðin er sögð hafa kostað rúmlega þrjár og hálfa milljón króna. En Paul Getty yngra munar að líkindum ekki mikið um það, þar sem hann var einn höfuðerfinginn eftir afa sinn með sama nafni. Hann lézt fyrir nokkrum árum og var sagður einn ríkasti maður heims. Bretland: 150 þúsunda fækkun ríkisstarfsmanna —námamenn segjast ætla að neyða Thatcher til nýrra kosninga innan skamms Tilkynnt hefur verið að miklar sparnaðaráætlanir ríkisstjórnar Thatcher forsætisráðherra muni leiða til verulegrar fækkunar opinberra starfsmanna i Bretlandi. Af fjárlagafrumvarpinu nýja og opinberum yfirlýsingum vegna þess er ljóst að stefnt er að miklum sparnaði í opinberum rekstri. Tals- menn ríkisstjórnarinnar brezku hafa þó ekki viljað segja neitt ákveðið um hve mörgum starfsmönnum í opinberri þjónustu verði sagt upp. Verkalýðsleiðtogar hafa aftur á móti bent á að hinir þrír möguleikar, sem verið er að athuga geti leitt til allt að hundrað og fimmtíu þúsund starfa fækkunar. Möguleikarnir þrír eru þeir að minnka launakostnað hins opinbera um tíu, fimmtán eða tuttugu af hundraði. Nýja fjárlagafrumvarpið, sem gerir ráð fyrir verulegum lækkunum á beinum sköttum en hækkunum á óbeinum sköttum eins og söluskatti, hefur sætt mikilli gagnrýni verkalýðs- leiðtoga, sem segja það ekki þýða annað en aukna verðbólgu og aukinn hagnað þeirra sem betur mega sín. Mick Mcgahey leiðtogi námumanna í Skotlandi lýsti því yfir í gær, að hann og félagar hans ætluðu að neyða Thatcher til að boða aftur til kosninga innan skamms. Hann iét ekki getið um aðferðina. Siðasta ríkisstjórn ihaldsmanna á Bretlandi var undir ^tjórn Edwards Heath. Hann féll eftir að hafa beðið lægri hlut í mikilli verkfallsbaráttu velskra námaverkamanna. Grænland Ferö til Grænlands—þótt stutt sé er engu lík. I Grænlandi erstórkostleg náttúrufegurö og sérkennilegt mannlíf, þar er aö finna hvort tveggja í senn nútíma þjóöfélag eins og viö þekkjum þaö - og samfélag löngu liöins tíma. Stórskemmtilegar feröir sérstaklega fyrir fjölskyldur - starfshópa og félagasamtök. Færeyjar Þaö sem gerir Færeyjaferö aö ævintýri erhin mikla náttúrufegurö, ásamt margbreytilegum möguleikum á skemmti- og skoöunarferöum um eyjarnar, og síöast en ekki síst hiö vingjarnlega viömót fólksins. Ef þú ert einhvers staöar velkominn erlendis - þá erþaö í Færeyjum. Spyrjiö sölufók okkar, umboösmenn eöa feröaskrifstofurnar um nánari upplýsingar. FLUGLEIÐIR

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.