Dagblaðið - 04.01.1980, Blaðsíða 1

Dagblaðið - 04.01.1980, Blaðsíða 1
6. ÁRG. — FÖSTUDAGLR 4. JANÚAR 1980 — 3. TBL. RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI 11.—AÐALSÍMI 27022. Skæruverkfóll flugmanna í fyrra kostudu300millj. — segir Sigurður Helgason, forstjóri Flugleiða ., , ,.. e Fjölmennir flokkar leita týnda mannsins Leit að Baldri Baldurssyni, Torfu- felli 24, hefur enn engan árangur borið. Magnús Einarsson aðstoðar- yfirlögreglubjónn hefur stjórn leitarinnar með höndum og hafa sveitir lögreglumanna, SVFÍ, hópar úr Flugbjörgunarsveitinni og skátar leitað á auðum svæðum í Reykjavík og í gær og á miðvikudag var farið á bátum SVFÍ með fjörum. Verður þeirri leit haldið áfram í dag. Baldur sást siðast að kvöldi 20. desember í Klúbbnum. Þar varð hann viðskila við félaga sína og hefur ekkert til hans spurzt síðan. Leitað hefur verið daglega síðan 23. desember að Baldri. Að sögn Magnúsar hófst leitin út frá Klúbbnum og hafa leitarsvaeði síðan daglega verið stækkuð. Leit verður haldið áfram um helgina með fjölmennum flokkum. -A.Sl. m -> Froskmenn frá Slysavarnafélaginu leituðu í gær í sjónum undan Borgar- túni en þar sást Baldur Baldursson síðast. DB-mynd: Ragnar Th. A „Heimsstyrjaldarástand” í efnahagsmálunum: VERDBÓLGAN 79 TÆP 60 PRÓSENT — sjá bls. 5 EIMSKIPAFELAGIÐ KAUPIR TVÖ SKIPA- FÉLÖG SAMTÍMIS Samningar hafa tekizt um, að Eimskipafélag Islands hf. yfirtaki Bifröst hf., ms. Bifröst, og islenzk kaupskiphf., ms. Berglind. i megindráttum eru samningar Eimskips annars vegar og hinna tveggja skipafélaga hins vegar á þann veg, aö Eimskipafélagið hf. kaupir hlutabréf Bifrastar hf. og íslenzkra kaupskipa hf., og þannig eignir félaganna. Jafnframt yfirtekur Eimskipafélagið skuldir þcirra. Þrátt fyrir að þetta samkomulag hefur verið gert staðfest og bindandi milli aðila, eru einhverjir endar ófrá- gengnir. -BS. Póstránið í Sandgerði: „ÉG SA ÚLPUKLÆDD- AN MANN HRAÐA SÉR UPP ÚR BÆNUM” segir Elís Bjömsson gröfustjórí í Sandgerði — aðeins leið um hálftími þar til lögreglan vissi um ferðir úlpumannsins „Ég sá úlpuklæddan mann koma fram hjá Miðnesi og sjoppunni og hann hraðaði sér upp Brekkustíg- inn,” sagði Elis Björnsson gröfu- stjóri i Sandgerði i morgun. Elís telur sig hafa séð mann koma leiðina frá pósthúsinu í Sandgerði á miðviku- dagsmorgun á milli kl. 8.30 og 9 eða í þann mund er póstránið var framið og póstmeistarinn sleginn niður. ,,Hann var úlpuklæddur og með hettuna yfir haus og með hendur i vösum,” sagði Elís. Ég sá ekki framan í hann og get því ekki sagt hvort hann var ungur eða gamall. Ég var þarna við snjómokstur og upp úr kl. 9 um morguninn kom lögreglan til mín og spurði hvort ég hefði orðið var mannaferða. Ég sagði þeim frá þessum manni, en ég hafði ekki sett hans ferðir i samband við fyrra póst- ránið. En það sem vakti athygli mina var það að hann hraðaði sér upp Brekku- stiginn og út úr bænum i stað þess að fara ofan að sjónum og frystihúsun- um eins og eðlilegt hefði verið á þessum tíma dags. Ég sá manninn ekki ganga að bíl, en bill kann þó að hafa beðið hans við samkomuhúsið án þess að ég sæi það. Það hefur hins vegar ekki liðið meira en hálftími frá því að ég sá hann og þar til lögreglan talaði við mig,” sagði Elís. Samkvæmt upplýsingum rann- sóknarlögreglunnar í morgun hefur enn ekki tekizt að hafa upp á póst- ræningjanum. -JH.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.