Dagblaðið - 26.01.1980, Blaðsíða 4

Dagblaðið - 26.01.1980, Blaðsíða 4
4 DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 26. JANÚAR 1980. ————— DB á ne ytendamarkaði Um kreditkortin: Kostímir augljósir — gallamir síóur Æ fleiri komast í vandræði erlendis vegna skulda sökum aukinnar notkunar lánakorta Æ fleiri lenda í vandræðum erlendis vegna skulda, t.d. í Svíþjóð. Er ástæðan talin aukin jiotkun á lánakortum. Lánakort sem eingöngu er hægt að nota t ákveðnum verzlunum verða nú sífelll algengari erlendis en slík kort geta verið óhentug fyrir neytendur. Þeir sent kortin hafa undir höndum fara siður í verzlanir sem e.t.v. hjóða vörur sínar á lægra verði. Einnig er sn hætta l'yrir hendi að kostnaðinum vegna lánakortaviðskipta verði veh yfir á neytendur og bitni þannig einnig á þeim sem greiða út i hönd. Þetta kemur fram í fréttalil- kynningu frá Neytendasamtökunum, þar sem segir frá afskiplum alþjóð- legra og sænskra neytendafélaga af lánakorlum. Kaupmeð afborgunar- skilmálum takmörkuð í Consumer Review, sem gefið er út af Alþjóðasamtökum neytenda- félaga, birtist á síðasta ári útdráttur úr grein úr sænska neytendablaðinu Rád og rön. Segir þar frá nýjunt lögum í Svíþjóð, þar sem kaup með afborgunarskilmálum eru mjög tak- mörkuð. Samtímis hafa auglýsingar á lánakortum aukizt verulega. í Svíþjóð hefur dómsmálunt fjölgað um 83°/o á árunum frá 1973— 1978 og er ástæðan talin fyrst og fremst aukin notkun á lánakortum. Kostirnir augljósir — gallarnir síður í niðurlagi fréttatilkynningar Neytendasamtakanna segir: ,,NS telja sér skylt að benda á þessa neikvæðu reynslu sem fengizt hefur eftir áralanga notkun á þessum kortum í Svíþjóð. Hagræðið við þetta greiðslufyrirkomulag cr augljóst, en ókostirnir liggja síður í augum uppi. Úr því verið er að fara af stað með þessi lánakort hér á landi, eiga neytendur heimtingu á að fá sem gleggstar upplýsingar, bæði um kosti þeirra oggalla.” -A.Bj. m ■ > Hætt er við að landanum verði svolítið hált á svellinu ef notkun kredit- eða lánakorta yrði algeng hér á landi. Þvi miður eru fjölmargir þekktir að því að vera með af- brigðum skuldseigir og ótrúlega margir eru trassar þegar greiða á reikninga á réttum tíma. Sennilega kunna fæstir landsmenn að ,,fara mcð” kreditkort eins og ,,á” að gera það. PARTARNIR ERU BAKAÐIR í OFNI EN EKKISTEIKTIR I fimmtuagsblaðinu endurbirtum en ekki steiktir, eins og margir virðast við uppskrift af „bökuðum” halda. Gætið þess aðeins að baka þá pörtum. Vegna fjölmargra fyrir- ekki of ntikið, aðeins þar til þeir eru spurna þykir rétt að taka frant að Ijósbrúnir. partarnir cru hakaðir á plötu í ofni, -A.Bj. Almanak með heimilisbókhaldi Um sérhver áramót keppast fyrir- tæki um að gefa út almanök og leggja margir stolt sitt í að hafa ntargvísleg- ar upplýsingar á almanökunum eða fallegar ntyndir. Um áramótin kont út fjölritað almanak nteð dálkum fyrir heimilisbókhald. Það er gefið úl af Samskiptum s.f., sem er fjölritunar- og ljósprentunarstofa i Ármúla. í almanakinu er að finna dálka fyrir vikurnar og siðan eru sérstök samantektarblöð fyrir hvern rnánuð. — Bókhaldsbók þessi kostar 2.800 kr. og fæst i bókaverzlunum. -A.Bj. Dómnefndin er skipuð tveimur bakarameisturum og einum húsmæðrakennara, auk þess sem Hannes Guömundsson, viö borðendann, er talsmaður samkeppninnar. Bakarameistararnir eru Ragnar Eðvaldsson i Ragnarsbakarii Keflavik (t.v.) og Sigmundur Smári Stefánsson i Hressingarskálanum og húsmæðrakennarinn er Anna Guðmundsdóttir. DB-mynd: Hörður. Uppskriftasamkeppnin: Ljóðalestur í Norræna húsinu: Finnsk-sænska leikkonan MA Y PIHLGREN les upp finnsk ljóð á sænsku laugardaginn 26. jan. kl. 16:00. Ný dagskrá. Allir velkomnir N0RRÆNA HÚSIÐ Tölva reiknar út flókið verðlag Fyrsta úrtakið er 90-100 uppskriftir „Dómnefndin er nú búin að velja milli 90 og 100 uppskriftir úr öllum burikanum sem barst. Þessa dagana er einmitt verið að undirbúa tölvu- vinnslu á verði uppskriftanna, sem var ákaflega mismunandi,” sagði Hannes Guðmundsson, talsmaður uppskriftasamkeppni Landssam- bands bakarameistara og Dag- blaðsins. Komið var mjög nálægt jólum þegar dómnefndin hóf störf og talið ráðlegt að fresta frekari framkvæmd keppninnar þar til nú i janúar. „Uppskriftirnar voru verðlagðar á mismunandi hátt og til þess að verðið væri sambærilegt á þeim öllum var horfið að því ráði að láta tölvu annast útreikninginn. Þannig fæst algjörlega hlutlaust val og sanngjarnt,” sagði Hannes. Ætlunin er að endanlega verði valdar 10—15 beztu og ódýrustu uppskriftirnar. Úr þeim kökum verður síðan valið með „smakki” en ekki er endanlega ákveðið hvert fyrirkomulag á þessum „lokaspretti” keppninnar verður. Eins og menn rekur minni til eru i boði vegleg verðlaun fyrir þann sem á beztu og ódýrustu kökuuppskriftina, Flórídaferð fyrir tvo. Önnur og þriðju verðlaun verða heimilistæki. Við fréttum nánar af þessari verðlaunasamkeppni i næstu viku. -A.Bj.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.