Dagblaðið - 29.01.1980, Blaðsíða 1

Dagblaðið - 29.01.1980, Blaðsíða 1
p ( ( 6. ÁRG. — ÞRIÐJUDAGUR 29. JAN. 1980 — 24. TBL. RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTl 11.—AÐALSÍMI 27022. rC Mentóltóbakiö veldur áhyggjum: > UNGUNGARNIR FARN- IRAÐ TAKA ÍNEFID ( skóiastjórar grunnskóla og borgarlæknir áhyggjufullir sjá baksíðu ) Helmingi dýr- ara viðhald hjá Seaboard — en Cargolux „Benda má á að nokkuð öruggar heimildir eru fyrir því að viðhald DC— 8 flugvéla í eigu Cargolux kostar 220 dollara á flugklst. á meðan Seabord tekur af okkar vélum 509 dollara á flugklst. Við það bætist svo 50 dollarar á klst. í Luxemborg, þegar vélarnar koma þangað, plús kostnaður á Kennedy-flugvelli, plús kostnaður á Keflavíkurflugvelli,” segja flugvirkjar i nýlegu fréttabréfi sínu. í bréfinu er lögð mikil áherzla á að flytja viðhald Flugleiðavéla hingað heim. Ástæðan er bæði að flugvirkjar tclja dýrara að flytja viðhaldið úr landi, eins og kemur fram í tilvitnuninni að ofan, og hitt að fjölda flugvirkja hefur verið sagt upp störfum, sumum eftir margra ára starf. ' -DS. í bflveltu milli embættisverka Sýslumaður Þingeyinga, Sigurður Gizurarson, Ienti í svaðilför og bílveltu er hann um hádegisbilið í gær var á leið til Raufarhafnar í embættiserindum. Sigurður var einn á ferð í Escort-bif- reið lögreglunnar á Húsavík. Var hann kominn að svokölluðum Sveltingi i grennd við Kópasker er bíll hans snerist á veginum vegna ófærðar og hálku og valt síðan út af þar sem vegkanturinn er um 20 metrar á hæð. Úr þessu ævintýri slapp sýslumaður ómeiddur að kalla, gekk að næsta bæ og kallaði á hjálp og hélt síðan áfram til embættisverkanna á Raufarhöfn. -ASl. íslenzka andófsnefndin: Enga íþrótta- menn á Moskvuleikana „Við teljum að íslenzkir íþrótta- menn eigi ekki að hjálpa valdsmönnum Ráðstjórnarríkjunum til þess að sýnast fyrir heiminum. Þeir hafa framið hvert mannréttindabrotið af öðru síðustu árin.” Þannig hljóðar hluti af áskorun íslenzku andófsnefndarinnar til ísl. ólympíunefndarinnar. Skorað er á ólympiunefndina, sem heldur fund á morgun um málið, að senda ekki i- þróttamenn til Moskvu í sumar. Andófsnefndin vonar að „harmleikurinn í Berlin 1936” verði ekki endurtekinn í Moskvu 1980. ARH. H0FGISEIG A BRA 0G... Þau gera ekki boð á undan sér umferðaróhöppin. Það fékk kona ein að reyna i morgun er hún ók austur Njálsgötu við beztu akstursskilyrði. En augnablik taldi hún sig hafa dottað undir stýrinu og þá varð það. Bíllinn lenti á Ijósastaur og stór- skemmdist. Konan skall fram á rúðuna við höggið, rúðan brotnaði en konan er þó 'ekki talin slösuð að ráði. Eignatjónið er umtalsvert. -ASt./DB-mynd Sveinn. Loðnuveiðinni flýtt Fundur meðaðilum i loðnuveiði og vinnslu verður í dag í sjávarútvegs- ráðuneytinu. Þar verður rætt um framhald veiða en horfur á sölu á frystri loðnu og loðnuhrognum eru nú mun lakari en taliö var í desember siðastliðnum. Einnig verður tekið mið af niðurstöðum fiskifræðinga um ástand loðnunnar í byrjun janú- armánaðar en rannsóknarferðir voru þá farnar, bæði á Árna Friðrikssyni og Bjarna Sæmundssyni. Líklegt er að veiðihcimildir i byrj- un febrúar verði auknar en þá i stað- inn dregið úr heimildum, sem ætlaðar voru til veiða um mánaða- ntótin febrúar-marz. þegar hrogna- tíminn stendur sem hæst. Fyrri hug- myndir voru um 100 þúsund tonn i byrjun en siðan 180 til frystingar og hrognatöku. Þessar tölur gætu alveg snúizt við. Á morgun verður annar fundur i sjávarútvegsráðuneytinu, þá með1 aðilum í þorskveiðum og -vinnslu. Þeir hafa nú hafl undir höndum hug- myndir ráðuneytisins um fyrirkomu- lag veiðitakmarkana í upp undir hálfan mánuð. Sjávarútvegsráðherra mun reyna að ná almennu samkomu- lagi rneð öllum aðilum. Ljóst er að heimilað veiðimagn á þorski verður einhvers staðar á niilli 300 og 340 þúsund tonn á árinu. Einnig mun Ijóst að aðrar takmarkanir en þorsk- veiðitakmarkanir hjá togurum og veiðistopp hjá bátum koma varla til umræðu. Við ákvörðun um þorskveiði nú, mun lagasetning ekki vera talin gerleg vegna stjórnmálaástandsins. Veikir það væntanlega stöðu sjávarútvegs- ráðherra með ákvarðanir. Varðandi frystingu á loðnu og loðnuhrognum vilja sumir leggja áherzlu á að halda Japansmarkaði þó svo hann sé óhag- stæður um þessar mundir. Að öðrum kosti segja þeir að hætta sé á að hann tapist i hendur Norðmanna og Kanadamanna. - ÓG Burmeister og Wain: Forstjórinn keypti sumarhöll og suðræna eyju — sjá erl. fréttir bls. 6 og 7 • Eiga íslendingar að hunza ólympíuleikana í Moskvu? — sjá viðtöl við íþróttamenn og forystumenn íþróttahreyfingar- innar — sjá bls. 8-9 Flugstöðvarhöll og flugtum risinn í Eyjum — en í 580 metra höll er ekki rými fyrir slökkviliðsbíl — sjá bls. 5 Leigumiðlunin hætt störfum — sjá bls. 5 360 Eskfirðingar blótuðu þorra saman — sjá bls. 9

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.