Dagblaðið - 02.04.1980, Blaðsíða 1

Dagblaðið - 02.04.1980, Blaðsíða 1
friálst, mm narjhlan 6. ÁRG. - MIÐVIKUDAGUR 2. APRÍL 1980 - 79. TBL. RITSTJÓRN SlÐUMULA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI11.—AÐALSÍMI27022. Vítaverð meðferð á skepnum íHvassahrauni: FÉÐ UGGUR FÓDURLÍTW IOPNUM KOFARÚSTUM —sem oft eru meira en hálffullar afsnjó „Við höfum margoft bent á illa meðferð þessa manns á sauðfé og i fyrra kærði ég hann loksins til sýslumannsins. En allt kemur fyrir ekki. Svo virðist sem fólki líðist að fara illa með skepnur af því að það sjálft er gamalt og einmana,” sagði Jórunn Sörensen, formaður Sambands dýraverndunarfélaga á islandi. Málið sem rætt var við Jórunni um er kæra hennar á hendur kaupmanni sem rekur tízkuverzlun en fæst við kindabúskap í tómstundum sinum. Féð hefur hann í Hvassahrauni í Vatnsleysustrandar- hreppi. „Það er ekki hægt að segja að hann hafi það í húsum. Þarna eru nokkrar kofarústir og hendir hann einstaka sinnum heybagga þar við. Að öðru leyti gengur féð laust jafnt vetur sem sumar og er úti um allt hraun. í fyrravor hleypti hann 6 eða 8 Iömbum út á frerann, sem við kærðum og eftir það er hann með þau í húsi í Hafnarfirði þar sem þau geta ekkert komizt út. Hann er með á milli 40 og 50 sauði en lætur aldrei baða nema hluta af þeim. Þvi má hann ekki láta neitt af þeim frá sér af ótta við riðuveiki en gerir það auðvitað samt. Ég ásamt dýralækni einum kærði meðferðina til sýslumannsins í Hafnarfirði. Kærði ég þá bæði manninn, forðagæzlumenn í hreppnum og sveitarstjórnina, sem er auðvitað ábyrg fyrir að slikt líðst. En ekkert hefur gerzt í málinu og virðist það vera voðalega erfitt viðureignar. Lögin eru fyrir hendi sem banna svona og nákvæmlega tilgreint hver viðurlögin eru, en það virðist ekki duga,” sagði Jórunn. Kæra Jórunnar er nú til rannsóknar í Hafnarfirði og eru yfir- heyrslur hafnar. DS/A.St. Neytendasíða í tilefni páska — sjá bls.4 Páskadagbók — bls. 18og23 Páskadagskrár útvarps ogsjónvarps — sjá bls. 34,35,36 og37 Stuttvarídauð- annhjá mörgum -sjábls.7 Amarvarpmis- fórstað mestu leytisLvor — sjá bls.6 Páskakross- gátan -sjábls.25 Kvikmyndir umpáskana — sjá bls. 16 og 17 Carterog Reagantakaaf- gerandiforystu — sjá erl. fréttir ábls. 11 Páskabros yfir páskablómum Með páskum styttist í voríð og sumaríð. Blómin byrja að sprínga út, páskalilj- urnar fyrstar af öllum. Kuldinn í vor hefur að visu gert það að verkum að enn nóg að gera undanfarna daga eins og aðrir blómasalar en hún brosti full til- hlökkunar þegar páskana bar á góma. Með fangið fullt af páskaliljum og eru páskaliljur ekki farnar að skjóta upp kollinum i görðum manna. En i öðrum vorboða er líka full ástæða til að brosa. blómabúðum er nóg af páskaliljum og hefur fólk keypt mikið af þeim núna Gleðilega páska, gott fólk, og brjótið nú engin bein á skiðum og passið að undanfarna daga. Unnur ‘Magnúsdóttir hjá Blómastofu Friðfinns hefur haft linurnar fari ekki mikið úr skorðum. - DS / DB-mynd Bj.Bj. Dagblaðið óskar öllum lands- mönnum gleðilegra páska — næsta blaö kemur út þriöjudaginn 8. apríl

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.