Dagblaðið - 16.04.1980, Blaðsíða 1
„Einkasamkomulag" Ólafs ogFrydenlunds vakti mikla ólgu á Jan Mayen-fundinum:
6. ÁRG. — MIÐVIKUDAGUR 16. APRÍU 1980. - 87. TBL. # RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSI.A ÞVF.RHOl.TI 11—AÐAI SÍMI 27022.
Vi
„Stjómin fallin hefði ver
ið samið um drögin”
—segir Matthías Bjarnason, fulitrúi Sjálfstæðisflokksins ííslenzku viðræðunefndinni
„Við eigum nú þegar að ganga til
viðræðna við Dani og/eða Efnahags-
bandalagið um fiskveiðihagsmuni
okkar á hafsvæðinu við Grænland.
Það hefðum við reyndar þegar átt að
hafa gert,” sagði Matthías Bjarna-
son alþingismaður og fulltrúi þing-
flokks Sjálfstæðisflokksins í
viðræðunefndinni við Norðmenn um
Jan Mayen málið. Hann bætti við:
„Eðlilegt veganesti í þær viðræður
eru drög þau sem Gundelach, fram-
kvæmdastjóri Efnahagsbandalags-
ins, fór með, m.a. fyrir mitt tilstilli úr
síðustu viðræðum íslenzkrar rikis-
stjórnar við bandalagið.”
Varðandi viðræðurnar við Norð-
menn um Jan Mayen sagði Matthias
m.a.: ,,Ég gekk til þessara viðræðna,
og minn flokkur, með það i huga að
tryggja fiskveiðihagsmuni íslendinga
á Jan Mayen-svæðinu varanlega. Á
siðustu fimm árum höfum við íslend-
ingar veitt 3.250 þúsund lestir af
3.600 þús. lestum, sem veiddar hafa
verið af loðnu við Jan Mayen, Græn-
land og Island. Overulegan hluta
þessa magns höfum við veitt utan
islenzkrar fiskveiðilögsögu eða
svipað og segja má um Norðmenn og
Færeyinga,” sagði Matthias Bjarna-
son.
„Til þess að tryggja áfram og þá
varanlega loðnuafla okkar hefur
verið og er enn brýn nauðsyn til þess
að fiskverndarsjónarmið verði virt á
öllum áðurgreindum svæðum. Það
var með þetta i huga sem ég og minn
flokkur gengum til viðræðnanna við
Norðmenn. Þegar fram komu hug-
myndir um óljósar skammtima-
ákvarðanir taldi ég ekki annað fært
en að leggja málið i heild fyrir minn
þingflokkv” sagði Matthías.-
Matthias minnti á að i stjórnarsátt-
mála núverandi ríkisstjórnar væru
skýr ákvæði um þá stefnu hennar að
tryggja fiskveiðihagsmuni lslendinga
á loðnuveiðisvæðinu og raunar tæki
það til annarra fisktegunda líka. Þá
væri þar einnig skýr ákvæði um þá
stefnu stjórnarinnar að tryggja rétt-
indi islendinga til auðlinda á hafs-
botni á landgrunninu, þar á meðal
milli íslands og Jan Mayen,
,,Það liggur því fyrir nú að ekki
aðeins hafnaði þingflokkur Sjálf-
stæðisflokksins algerlega þeim hug-
myndum, sem fram komu i drögun-
um sem lögð voru fram á sameigin-
leguni fundi viðræðunefndanna
heldur einnig væri ríkisstjórnin
fallin, hefði um þau verið samið,”
sagði hann.
-BS.
s
Borgarráð viíl kaupa
3-5 Ikarus-vagna:
, Jilboð Ikar-
usvar
bundið við
20 vagna”
— segir Sigurður
Magnússon,stjórnar-
formaður Samafls
„Tilboð Ikarus var bundið við
sölu á tuttugu vögnum og það er alls
ekki vitað hvort þeir vilja selja
þennan fjölda vagna,” sagði
Sigurður Magnússon, stjórnarfor-
maður Samafls, umboðsaðila Ikarus
hér, í samtali við Dagblaðið i morgun
um samþykkt borgarráðs frá i gær.
Á borgarráðsfundi i gær var
samþykkt tillaga um kaup á 3—5
Ikarusvögnum frá Ungverjalandi og
einnig var ákveðið að festa kaup á 20
Volvo-grindum til yfirbyggingar hjá
Nýju bílasmiðjunni. Hefði þar með
mátt ætla að þetta deilumál væri úr
sögunni en ummæli Sigurðar benda
tilaðsvoséekki.
Hann sagði að það væri alltaf
ákveðinn fastakostnaður sem ung-
versku verksmiðjurnar þyrftu að taka
á sig, óháð þvi hver fjöldi vagnanna
væri. Þeir þyrftu að senda
tæknimenn sina hingað til lands,
o.s.frv. Óvíst væri hvort þeir vildu
leggja út i þennan kostnað fyrír svo
fáa vagna. ,,Það er því ekki vitað
hvort þeir vilja selja,” sagði Sigurður
aðlokum. -GAJ.
Sagan umStjörnu-
strumpíDBfdag
— sjá bls. 16
Reykjavlk tekur slfellt á sig alþjóðlegri blœ og / morgun gatuð llta þessa austurlenzku fegurð I miðborginni. Þegar undir
málninguna kemur erfegurðin þó Islenzk. Það roru sum sé MR-ingar að sletta úr klaufunum I nótt og morgun á dimmission.
Sjöttubekkingar kvöddu kennara sina á hefðbundinn hátt og með mátulegum skammti afskringilegheitum. Siðan tekur við
lokabaráttan fyrir h vita kollinum. JH/DB-mynd Hörður.
„ALRANGT AÐ ÓLAFUR HAFI
LAGT FRAM ÚRSUTADRÖG”
— segir Steingrímur Hermannsson, formaður Framsóknarflokksins
,,Það er alrangt að Ólafur
Jóhannesson utanríkisráðherra hafi
lagt einhver úrslitadrög fyrir íslenzku
samninganefndina tif synjunar eða
samþykktar,” sagði Steingrímur
Hermannsson sjávarútvegsráðherra í
viðtali við DB i morgun.
„Tvær vinnunefndir voru settar á
fót í málinu. Önnur þeirra fjallaði
um fiskveiðimál. Hin um málin
almennt, þar á meðal land-
grunnsmál. Það er afrakstur af starfi
þeirrar nefndar sem lagður var fyrir
sameiginlegan fund og nú er af
einhverjum kölluð „drög Ólafs
Jóhannessonar að samningum við
Norðmenn um Jan Mayen,” sagði
Steingrímur Hermannsson.
„Hafi hann átt einhverjar einka-
viðræður við Frydenlund og þær leitt
af sér einhvers konar „drög”, þá að
minnsta kosti sagði hann mér ekki frá
þvi og ég trúi vitanlega engu í þá
átt.” -BS.
íslendingar í slæmri
klípu, segja
norskirfjölmiðlar:
„íslendingar
börðust hart”
— segir Aftenposten
Norskir fjölmiðlar leggja í morgun
áherzlu á, að íslendingar hal'i vcrið i
slæmri klípu við Jan Maycn-
samningaborðið vegna fyrirhugaðrar
útfærslu Dana við Grænland.
Frydeulund, utanrikisráðherra
Norðmanna, segist ánægður nteð
gang viðræðnanna og að það hafi
rikt gott andrúmsloft á samninga-
fundunum. Aftenposten segir að
engin likindi séu á þvi að Danir cða
Efnahagsbandalagslönditi hefji
loðnuveiðar i ár innan nýrrar fisk-
veiðilögsögu, þar sem þeir ráði ekki
yfir nauðsynlegum tæknibúnaði til
þess. Blaðið segir að islenzka
samninganefndin hafi barizt hart á
fundunum en búizt sé við mjög hörð-
um umræðum um málið á islandi
fram til næsta saniningafundar í Osló
7. ntai næstkomandi.
Eftir þvi sent rréttamaður DB i
Noregi hefur komizt næst er ákafiega
Iitið um þetta mál skrilað í dönsk
blöð, -SJ.Osló.
„Hefði mátt
semja í
fyrrasumar”
— segir Sighvatur
Björgvinsson
,,Það hefði verið auðvelt fyrir
Íslendinga að ná samkomulagi um-
þetta síðastliðið sumar, þcgar slitnaði
upp úr viðræðunum,” sagði Stg-
hvatur Björgvinsson (A), sem sæti
álti i samninganefndinni um Jan
Mayen, um drögin að samningum,
sem fjallað var um i gær. ,,Það kom
aldrei til mála að ganga að þeim,”
sagði Sighvatur.
Hann sagði að ef til vill hefði nú
þokazt í áttina i einstöku málum, svo
sem um loðnuna, önnur atriði væru
óleyst og enn önnur órædd.
Nú yrði að kanna vandlega hvað
liklegt sé að Alþingi vilji teygja sig
langt i átt til samkomulags i deilunni,
áður en næsti viðræðufundur verður
haldinn. -HH.