Dagblaðið - 21.09.1981, Blaðsíða 1

Dagblaðið - 21.09.1981, Blaðsíða 1
7. ÁRG. — MÁNUDAGUR 21. SEPTEMBER 1981 — 213. TBL. RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI11.—AÐALSÍMI 27022. Banamaðurinn sakar Þjóöverjann um nauðgun 11 björguðust naumlega er Tungufoss sökk við England —bjargað um borð í þyrlu og björgunarbát í mannskaðaveðri Að kröfu rannsóknarlögreglu ríkis- ins kvað Ingibjörg Benediktsdóttir, fulltrúi yfirsakadómarans í Reykjavik, upp úrskurð þess efnis að kærða, Gesti Guðjóni, verði gert að sæta gæzluvarð- haldi vegna rannsóknar málsins til 2. desember næstkomandi, svo og sæta rannsókn á geðheilbrigði sínu og sak- hæfi. Gestur Guðjón hefur játað við yfir- heyrslur aö vera valdur að dauða Hans Wiedbusch. Hans Wiedbusch, 45 ára gamall starfsmaður við blómaskreytingar í Blómavali, hraðaði sér sem mest hann mátti við að ijúka verkefni á vinnustað síðastliðinn miðvikudag. Ástæðan var sú að hann átti von á gestakomu. Þrátt fyrir að ljóst er að Hans Wiedbusch var ekki ,,upp á kvenhöndina” i venju- iegum skilningi, mun hann reyndar hafa átt von á heimsókn tveggja stúikna. Vegna forfalla annarrar varð ekkert úr hinni væntanlegu gestakomu. Má segja að með því hefjist hið ófyrir- sjáanlega samspil tilviljana sem síðar þróast í meðvitaðan ásetning Hans Wiedbusch og hörmulegar afleiðingar hans. Þegar gestirnir komu ekki og frá leið fór Hans á skemmtistaðinn Óðal. Þar var þá meðal gesta Gestur Guðjón. Munu þeir ekki hafa þekkzt en tóku tal saman. Fór svo á með þeim að Hans Wiedbusch bauð Gesti Guðjóni heim til sín. Leigubifreiðarstjóri hefur geflð sig fram og kannast við að hafa ekið þeim tveim að Grenimel 24, heimili Hans Wiedbusch, aðfaranótt fimmtu- dagsins. Þegar þangað var komið neyttu þeir báðir áfengis, sem húsráðandi bauð. Ennfremur reykti Gestur Guðjón að hann telur marijuana sem hann þáði af Wiedbusch. Kveðst Gestur Guðjón hafa orðið veikur af áfengis- og vímuáhrifum, sljór og utan við sig. Mun hann hafa minnzt á að fara heim en meðal annars fyrir fortölur Hans Wiedbusch lagðist hann fyrir í íbúðinni og sofnaði. Segist hann síðan hafa vaknað við það að húsráðandi var að hafa við hann kynmök. Kveðst hann hafa orðið ákaflega hræddur og þá einnig gripinn þeirri hugsun að hann yrði að ganga frá manni þessum. Komst hann frá honum undir því yfirskyni að hann þyrfti að fara á snyrtiherbergi. Með skæri að vopni, sem hann fann þar, kom hann svo fram aftur og réðst að Hans Wiedbusch og rak skærin i brjóst hans. Til átaka kom nú á milli þeirra og mun Hans hafa tekizt að snúa skærin úrhöndum Gests Guðjóns. Náði Gestur Guðjón þá að gripa til annarra skæra og hnífs. Lagði hann með þessum eggvopnum til Hans unz yfir lauk. Þegar litið er til lokaatlögu Gests Guðjóns verður þeirri ályktun ekki bægt frá að algert æði hafi runnið á hann. Gestur Guðjón er sagður sjúkl- ingur. Hefur hann átt við vanheilsu að stríöa um hríð. Hefur hann af þeim sökum, meðal annars um skeið, fengið meðferð á geðdeild Landspitalans. -BS. Tuttugu og átta ára gamall iðnverka- maður í Reykjavík, Gestur Guðjón Sigurbjörnsson, Skálholtsstíg 2a, var handtekinn nokkru fyrir hádegi á laugardag vegna láts Þjóðverjans Hans Fritz Joachim Arnold Wiedbusch að- faranótt fimmtudags síðastliðins. 34dekkjum stolið úrToll- vörugeymslu Þrjátiu og fjórum Michelin hjól- börðum af stærðinni 155x13, sem eru algengustu fólksbílahjólbarðar, var stolið úr gámi hjá Tollvöru- geymslunni í Keflavík aöfaranótt laugardags. Gámurinn stóð i porti tollvöru- geymslunnar, sem er afgirt. Á föstu- dag var farið í gáminn og reyndist þá allt með felldu þar, að sögn starfs- manna. Á Iaugardag kom í ljós að hengilás fyrir gáminum hafði verið sprengdur upp og vantaði 34 dekk í gáminn. Rannsóknarlögregia Suðurnesja er að rannsaka máliö og óskar hvers konar upplýsinga sem leitt geta til þessaðþjófarogþýfifinnist. -A.St. Dagblaðs- bikamum í mótocross hampað Þorkell Ágústsson sigraði í fjórðu og síðustu mótocross keppni sumarsins. Fyrir það af- rek hlaut hann Dagblaðshikar- inn. Um hann var keppt í gœr í fjórða sinn. Nánar segir frá keppninni og mótocross íþrótt- inni í blaðinu í dag. -DB-mynd Sig. Þorri. — sjá bls. 6. Tungufoss, skip Eimskipafélags ís- lands, sökk laust fyrir miðnætti í fyrrakvöld út af vestasta odda Eng- iands, Land’s End, sem er á Corn- wall-skaga. Skipverjar, ellefu menn, björguðust aliir. Tungufoss var á leið frá Avon- mouth, hafnarborg Bristol, á vestur- strönd England til Le Havre í Frakk- landi með 1900 tonna lausan hveiti- farm. Af einhverjum ástæðum mun farmurinn hafa kastazt skyndilega till í skipinu með þeim afleiðingum að það tók strax á sig 30 gráðu halla. Var þetta um kl. 20.30 að staðartíma en kl. 19.30 aðíslenzkum. Neyðarkall var þegar sent út. Dreif fijótlega að nærstödd skip og björg- unarsveitir voru sendar af stað. Veður var þá mjög vont á þessum slóðum, 10—11 vindstig og sjólag erfitt. Stöðugt gaf yfir Tungufoss sem hallaðist æ meira. Eldur kom upp í vélarrúmi. Mikil mildi reyndist því að björgun barst svo fljótt sem raun varð á. Björgunarbátur, sem kom frá landi, náði sjö af áhöfn skipsins af gúmbjörgunarbáti og þyrla frá brezka flotanum hífði upp fjóra. Var öll áhöfnin komin í land aðeins tveim timum eftir að neyðarkall var sent en , þegar þeir siðustu fóru frá borði var kominn 90 gráðu halli á skipið. Það hvarf síðan í hafið. Fleiri skip lentu í erfiðleikum vegna oveoursms á þessum slóðum. Fregnir hafa borizt af 3—4 öðrum skipum.sem sukku og munu ein- hverjir hafa farizt. Tungufossmenn mega þ 'í teljast heppnir þvi þrír þeirramunuhafalentísjónum. . Brezka útvarpið, BBC, skýrði frá þessum atburðum. Var fyrsta frétt útvarpsstöðvarinnar af þessu mann- skaðaveðri en Tungufoss mun hafa verið stærsta skipið sem sökk. -KMU.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.