Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1917, Blaðsíða 53
Ársrit Ræktunarfjelags Norðurlands. 5Q
hægt; fræið mjög Ijelegt. Urðu ekki þroskaðar fyr en um
miðjan ágúst.
Hreðkum var sáð á þriggja vikna fresti, fram yfir mitt
sumar. þroskuðust vel, en fræið var mikið blandað og
Ijelegt. Sumarhreðkur verða mikið lakari seinni part sum-
ar, en hausthreðkufræ var ekki fáanlegt í ár.
Piparót var sett vorið 1Q15. Óx litið fyrsta árið. 1Q16
var vöxturinn allgóður og í vor vóru ræturnar teknar
upp og skift; óx talsvert í sumar, en þó vóru ræturnar
ékki notandi í haust.
larðarber (Fragaria vesca). Sumarið 1Q16 var jarðar-
berjaplöntum safnað ofan úr Glerárgili og plantað í græði-
beð. í sumar var þeim plantað út. Plantan óx ágætlega
og blómstraði míkið, en fæst af berjunum náði fullum
þroska; vóru að byrja að roðna, þegar kulda- og regn-
tíðin byrjaði, um miðjan ágúst. Á þessari viltu tegund
af jarðarberjum eru berin ekki eins stór og ekki eins sæt
og safamikil, sem á ræktuðum afbrigðum, en ágætlega
bragðgóð eru þau og vel þess verð að leggja stund á
að rækta þau, enda þótt ekki geti verið að ræða um
hagsmunaleg not af þeim.
Bringuber (Rubus idæus). Sumarið 1Q15 var viltum
bringuberjarunna skift og plantað út. Óx lítið fyrsta sum-
ar og blómstraði ekki. 1Q16 óx runninn allvel, blómstraði
og bar ekki svo fá þroskuð ber. í vor var runninn klipt-
ur, svo hann var ekki meir en 'h m. á hæð. í sumar
varð vöxturinn langmestur og flest öll berin fullþroskuð.
Berin eru fremur bragðlítil og vatnskend, en ekki svo
lítið sæt, dökkrauð á litinn. Gerð var tilraun með ræktuð
bringuber, en plönturnar dóu allar, en fullreynt er það
enn ekki, þó svona tækist til nú, því ástæðan gat vel
verið sú, að plönturnar höfðu mætt illri meðferð á leið-
inni og vóru skrælnaðar allmjög, þegar hingað kom.
Sóiber og Ribs eru hjer í stöðinni frá fyrstu tíð henn-
ar. Peim hefir verið plantað til skjóls fyrir smágróðurinn.
Berin hafa þroskast allvel, en í haust eyðilagðist mikið