Árbók Landsbókasafns Íslands - 01.01.1945, Blaðsíða 89
Merk gjöf til Landsbókasafnsins
Nokkrir íslendingar í Edinborg hafa
bundizt samtökum um að gefa Landsbóka-
safninu filmur af öllum íslenzkum handrit-
um í brezkum söfnum, en fotostat-útgáfur
af hinum merkustu þeirra. Er nokkur hluti
gjafarinnar þegar kominn til safnsins, en
hitt er væntanlegt smám saman.
Tildrög þessarar merkilegu og kær-
komnu gjafar voru þau, að íslendingar í
Edinborg vildu minnast með einhverjum
hætti hins endurheimta sjálfstæðis íslend-
inga á 25 ára afmæli þess 1. desember
1943. Upp úr því varð til sú ágæta hug-
mynd að færa landinu að gjöf eftirmyndir
íslenzkra handrita í brezkum söfnum, en
þar er varðveitt, sem kunnugt er, talsvert
safn íslenzkra handrita. Eru sum þeirra
allmerk og má þar til nefna nokkur eigin-
handarrit Eggerts Ólafssonar og þeirra
Svefneyjafeðga. Eru flest þessara handrita
komin til brezkra safna úr eigu Finns Magn-
ússonar prófessors. Atti Landsbókasafnið
kost á að fá þau keypt á sínum tíma, en
það fórst fyrir vegna tómlætis stjórnenda
þess. Eigi er þess kostur nú að fá handrit
þessi í frumriti og er því mikill fengur að
fá nákvæmar eftirmyndir þeirra.
Félag Islendinga í Edinborg hófst handa
með því að láta gera prýðilega fotostat-
Sigursteinn Magnússon er jœddur á Alcureyri 24.
desember 1899, sonur Magnúsar Jónssonar öku-
manns þar og konu hans Margrétar Sigurðardótt-
ur. Hann liejur nú um nokkur ár verið ræðismað-
ur lslendinga í Edinhorg og jafnjramt fulltrúi
Sambands ísl. samvinnu/élaga.
útgáfu af Drykkjabók (Potologia Islandor-
um) Eggerts Ólafssonar, en eiginhandarrit
Eggerts af þeirri bók er varðveitt í þjóð-
bókasafni Skotlands í Edinborg. Auk þess-
arar bókar hefur félagið þegar sent Lands-
bókasafninu fjölda handrita á filmum, en