Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1982, Blaðsíða 84
84
ÞJÓÐARBÓK H LAÐA
Sérfræðingarnir sömdu skýrslu um athuganir sínar og lögðu fyrir þá
deild Unesco í París, er Qallar um mál sem þetta. Skýrslan barst hingað
í desember og var þá lögð fyrir ríkisstjórnina ásamt öðrum gögnum.
Ríkisstjórn Islands flutti vorið 1970 svofellda tillögu til þingsálykt-
unar, og mælti Gylfi Þ. Gíslason menntamálaráðherra fyrir henni:
„Alþingi ályktar, að í tilefni af ellefu hundruð ára afmæli Islands-
byggðar 1974 skuli reist Þjóðarbókhlaða, er rúmi Landsbókasafn Is-
lands og Háskólabókasafn.“
Tillagan var samþykkt 30. apríl 1970 með 51 atkvæði gegn 1 og
afgreidd sem ályktun alþingis.
Hinn 15. júlí 1970 skipaði menntamálaráðherra byggingarnefnd
Þjóðarbókhlöðu, og áttu sæti í henni Magnús Már Lárusson háskóla-
rektor, Hörður Bjarnason húsameistari ríkisins og Finnbogi Guð-
mundsson landsbókavörður, en hann var formaður nefndarinnar.
Guðlaugur Þorvaldsson háskólarektor tók 1974 sæti Magnúsar Más
Lárussonar í nefndinni.
Hinn 1. september 1970 var Oli Jóhann Asmundsson arkitekt
ráðinn til sérfræðilegrar þjónustu í þágu nefndarinnar og honum
fengin vinnuaðstaða innan vébanda embættis húsameistara ríkisins.
Þeir Harald L. Tveterás og Edward J. Carter komu öðru sinni í
nóvember 1970 og með þeim jafnframt H. Faulkner-Brown arkitekt frá
Newcastle. Kom hann á vegum byggingarnefndar Þjóðarbókhlöðu og
að tilvísun Unesco-sérfræðinganna.
Þeir sömdu sérstaka álitsgerð um Birkimelslóðina, töldu hana hið
bezta til fallna, hún lægi „vel við Háskólanum og borginni, og lega
hennar norðan háskólasvæðisins og steinsnar frá miðbænum er sem
tákn um það þjónustuhlutverk, sem safninu er ætlað að gegna í þágu
þjóðar og háskóla11.
Að loknum margvíslegum undirbúningi lagði byggingarnefnd 2.
október 1971 áætlun fyrir Magnús Torfa Olafsson menntamála-
ráðherra, þar sem gert var ráð fyrir því, að íslenzkir arkitektar teiknuðu
bókhlöðuna, en brezkur arkitekt, sérfróður um þá húsgerð, er hér um
ræddi, yrði hins vegar ráðunautur.
Ráðherra svaraði byggingarnefnd bréílega 7. október 1971 og segir
þar, að menntamálaráðuneytið samþykki fyrir sitt leyti, að bygging-
arnefnd viðhafi þau vinnubrögð við undirbúning bygging-
arframkvæmda, sem greindi í bréfi hennar lil ráðuneytisins 2. október
1971.