Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1992, Blaðsíða 74
74
KRISTÍN BRAGADÓTTIR
[...] Svo margskömmuðum manni eins og mér brá við að sjá einu sinni á prenti
eins velviljaða og hlýlega, en sjálfsagt of hliðholla lýsingu á sjálfum sér, eins og
þá sem stendur í Sunnanfara [...].13
Forvitnilegt er að athuga, hvaða áhersla er lögð á efni blaðsins
og hvernig skipting niilli efnis er í fyrstu árgöngunum. Athugaðir
voru 6 fyrstu árgangarnir og er efnisskiptingin eftirfarandi:
íslenskljóð..................... 125
Erlend ljóð....................... 5
Islenskar smásögur ............... 6
Erlendar smásögur................. 2
Greinar um bókmenntir............ 39
Þjóðfræði......................... 7
Greinar um þjóðfélagslegt efni .. 47
Fræðandiefni..................... 42
Sunnanfari hafði gott jafnvægi milli fræða, skáldskapar og
þjóðmála, en sjá má, að íslensk ljóð eru þó samkvæmt þessari
talningu fyrirferðarmikill flokkur. Auk þessa eru allmargar lausa-
vísur, ýmist höfundagreindar eða án höfundar. Nokkrum sinnum
kemur fyrir, að nótur við ljóðin séu prentaðar með. Aðallega á það
við um þekkt sönglög.
Niðurlag
Engum vafa er undiropið, að Sunnanfari hefur lagt sitt af
mörkum sem boðberi þeirra bókmenntastrauma, sem mest voru
áberandi í nágrannalöndunum og til eílingar bókmenntaumræð-
unni meðal Islendinga heima og erlendis. Samt sem áður hefur
tímaritið ekki valdið neinni byltingu í bókmenntasmekk manna
hér heima. Segja má, að tíminn hafi verið því hliðhollur, því afar
miklar þjóðfélagsbreytingar fóru í hönd um og eftir aldamótin.
Nýrómantík haslaði sér völl, og merki hennar má áfram sjá í
íslenskum bókmenntum eftir þennan tíma. Þjóðsagnaáhugi fer
jafnvel vaxandi, og héldu mörg skáld fast við stefnuna fram á
þriðja og íjórða tug aldarinnar. Ný skáldakynslóð kom fram, „alda-
mótaskáldin“ svokölluðu, sem ortu kraftmikil ættjarðarljóð,
sem höfðuðu til þjóðernistilfinninga íslendinga í sjálfstæðisbarátt-
unni. Einnig skáld, sem höíðu kynnst sósíalsíma og verkalýðs-
hreyfmgu í útlöndum og báru þau áhrif með sér heim. Þó svo, að
miklar samfélagsbreytingar hafi átt sér stað á Islandi á þessum