Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1992, Blaðsíða 115
LANDSBÓKASAFNIÐ 1990
115
Guðlaug Karlsdóttir Runólfssonar afhenti nokkur nótnahand-
rit föður síns til viðbótar þeim, er áður voru komin.
Baldvin Halldórsson leikari færði Landsbókasafni viðbótargögn
varðandi tengdaföður hans, Pál Zophoníasson alþingismann.
Esther Jackson, ekkja dr. Cyrils Jacksons, sendi að gjöf nokkrar
myndir, er fylgt höfðu á sínum tíma doktorsritgerð hans um
Matthías Jochumsson, er hún haíði áður sent Landsbókasafni.
Hún sendi og eina stólræðu föður síns, sr. Friðriks Hallgrímsson-
ar, með hendi hans.
Systkinin Pór Jakobsson veðurfræðingur og Guðrún Jakobs-
dóttir afhentu 37 kassa bréfa og annarra handrita sr. Jakobs
Jónssonar, föður þeirra. Svava rithöfundur, systir þeirra, hafði
haustið 1989 afhent annað eins afhandritum sr. Jakobs.
Ólafur Ó. Johnson stórkaupmaður afhenti að gjöf 58 bréf
Þorláks Ó. Johnsons til Jóns Sigurðssonar forseta, en bréfin höfðu
áður verið í vörzlu Arnar Ó. Johnsons flugmanns og forstjóra, er
lézt 7. apríl 1984. Lúðvík Kristjánsson hafði bréf þessi undir
höndum, er hann samdi ævisögu Þorláks, „Ur heimsborg í Grjóta-
þorp“.
Þorbjörg Gísladóttir, Reykjavík, gaf í ljósriti minningarorð, er
Þórbergur Þórðarson ritaði 8. febrúar 1925 um Ólaf bróður
hennar, er fórst með Leifi heppna.
Dr. Aðalgeir Kristjánsson afhenti nokkur ljóð Jónatans Jónsson-
ar Skagan, og voru þau lögð með öðrum gögnum úr fórum hans,
er bárust 1984.
Asdís Thoroddsen, dóttir Sigurðar Thoroddsens verkfræðings,
afhenti mikla viðbót við myndir hans, er borizt höfðu safninu
sumarið 1988.
Þorsteinn Kári Bjarnason bókavörður, Reykjavík, færði safninu
ýmis handrit, komin úr fórum sr. Stanleys Melax, afa hans, en
Bragi Melax, sonur sr. Stanleys, afhenti í nafni móður sinnar og
systkina.
Torfi Jónsson, Reykjavík, færði Landsbókasafni nokkur ætt-
fræðigögn úr fórum föður síns, sr. Jóns Guðnasonar skjalavarðar.
Hann gaf og nokkrar leikskrár um leikrit Halldórs Laxness, og
voru þær lagðar með handritum leikritanna.
Leifar af bók — 20 síður - með gamankveðskap úr Hvítárbakka-
skóla. Fornbókaverzlunin Bókin afhenti. Hún færði safninu og
Réttíngar við þá Evangelisk kristilegu Messusaungs og Sálma
Bók... 1801.