Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1992, Blaðsíða 116
116
LANDSBÓKASAFNIÐ 1990
Jón Gíslason fræðimaður, Reykjavík, gaf nokkur rímnahandrit:
Rímur af Eiríki Grímssyni, Rímur af Ingvari Olverssyni og Rímur
af Þorgrími kóngi (eftir Hannes Jónsson, föðurbróður gefanda).
Ennfremur Grettis rímur og Rímur af Vígkæni kúahirði, sem
gefandi telur vera eftir föður sinn, Gísla Jónsson á Stóru-Reykjum.
Jón Gíslason gaf að lokum dagbók Magnúsar Stephensens frá
1808, merka heimild.
Dr. Broddi Jóhannesson aíhenti ljóðahandrit Oskars Magnús-
sonar frá Tungunesi í umboði sonar hans, Magnúsar í Sölvanesi í
Lýtingsstaðahreppi.
Torfi Hjartarson afhenti fundabók Rótarýklúbbs Reykjavíkur
1967-1986.
Júrg Glauser háskólakennari í Zúrich gaf Landsbókasafni 10
bréf og kort, er gefanda höíðu borizt frá Guðmundi Daníelssyni
rithöfundi og tengjast þýðingu verka eftir hann á þýzku.
Andri Þór Guðmundsson afhenti 43 bækur stúdentaráðs
Háskóla Islands, og fylgdi þeim bréf dags. 12. desember 1990.
Tómás Helgason, fyrrv. safnahúsvörður, afhenti tölvuunna
skrá, er hann hefur gert um íslenzka nemendur í Búnaðarskólan-
um á Stend í Noregi 1867-1958.
Skúli Helgason rithöfundur, Reykjavík, afhenti tvö gömul bréf,
bréf Páls Melsteðs skrifað Hallgrími bróður hans 24.3.1874 og
bréf Gests Pálssonar til Ingileifar Melsteð 25. september 1895.
Sr. Benjamín Kristjánsson ánafnaði Landsbókasafni í erfðaskrá
14. júlí 1961 handrit sín, og bárust þau safninu nú um sumarið, en
sr. Benjamín dó 3. apríl 1987.
Sigurður Gunnarsson, fyrrv. skólastjóri, Reykjavík, afhenti all-
mörg bréf Svövu Þórleifsdóttur til Guðrúnar Kristjánsdóttur frá
Víkingavatni.
Náðarinnar andleg kauptíð eður tíðarkaup, þýðing frá 1747
eftir Þorstein Ketilsson, ennfremur skýringar við Mattheusar
guðspjall, hvort tveggja fengið í skiptum frá sr. Ragnari Ljalari
Lárussyni.
Ymis skrifuð gögn, einkum dagbækur og ættfræðiskrif, Vigfús-
ar Kristjánssonar húsasmiðs og fræðimanns frá Hafnarnesi í
Láskrúðsfirði. Sigurlaug systir hans afhenti um hendur Margrétar
Hróbjartsdóttur.
Runólfur Björnsson, Reykjavík, afhenti nokkur gögn Sósíalista-
félags Reykjavíkur.