Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1992, Blaðsíða 117
LANDSBÓKASAFNIÐ 1990
117
Þóra Gylfadóttir bókavörður afhenti fundargerðabók Framtíð-
arinnar, málfundafélags Menntaskólans í Reykjavík, 1961-1963.
M.R. Spivack afhenti handrit að bók sinni „An artist under the
midnight sun“.
Þessir afhentu handrit án þess að þeirra verði hér nánar getið:
Bjarney K. Ólafsdóttir, Reykjavík. - Elísabet J. Sveinbjörnsdótt-
ir, Reykjavík. - Sr. Emil Björnsson, Reykjavík. - Fornbókaverzlun-
in Bókin, Reykjavík. — Haraldur Jóhannsson hagfræðingur,
Reykjavík. — Helga Pétursdóttir, Reykjavík. — Magnús Sveinsson,
Reykjavík. — Tómás Helgason fyrrv. safnahúsvörður, Reykjavík.
Vér þökkum öllum þeim, er fært hafa Landsbókasafni handrit á
árinu.
ÞJÓÐDEILD Nanna Bjarnadóttir deildarstjóri hafði
yfirumsjón með starfsemi deildarinnar,
en vann jafnframt ýmis nefndarstörf, tók sæti Gríms heitins
Helgasonar í samstarfsnefnd um Þjóðarbókhlöðu og sat áfram í
flokkunarnefnd.
Hildur Eyþórsdóttir tók aðloknu M.L.I.S. prófi í bókasafnsfræði við
McGill háskólann í Montreal aftur við yfirumsjón með
gerð íslenzkrar bókaskrár og hljóðritaskrár og var á árinu hækkuð
í stöðu deildarstjóra. Hún var aðalfulltrúi Landsbókasafns í sam-
starfsnefnd þess og Háskólabókasafns um hið nýja tölvukerfi,
Libertas, er keypt var á árinu til handa Þjóðarbókhlöðu og sett
verður upp fyrsta kastið í hvoru safninu um sig. Undirbúnings-
vinna vegna innlagnar gagna í kerfið hefur reynzt mikil, og
aðlögun íslenzkrar þjóðbókaskrár að kerfinu er vandasamt verk,
sem leyst er í samvinnu við hina erlendu aðila. Hildur tók við
formennsku skráningarnefndar í upphafi árs og átti sæti í nefnd,
er menntamálaráðuneytið skipaði til að gera tillögur um framtíð-
arskipan bókasafnsmála.
Bergljót Garðarsdóttir (í 54 starfi), Sigrún Jóna Marelsdóttir (í 'A
starfi) og Aslaug Ottesen (í 14 starfi) unnu við íslenzka bókaskrá,
ennfremur Rannveig Gísladóttir (í 54 starfi), sem jafnframt gerði
harða hríð að smáprenti safnsins og hjálpaði til við Saztekverkefn-
ið svonefnda. Aslaug Ottesen sá og um spjaldskrá um erlendan
ritauka nokkurra rannsóknarbókasafna, sem varðveitt er í Lands-
bókasafni og fenginn hefur verið staður í anddyri Safnahússins,
þar sem menn hafa greiðari aðgang að henni en áður var.