Vísbending


Vísbending - 22.12.2001, Blaðsíða 32

Vísbending - 22.12.2001, Blaðsíða 32
VISBENDING Að útvelja lausgangarana - íslendingar í þegnskylduvinnu Ásgeir Jónsson. að verður ekki sagt að konungar Danaveldis hafi sýnt þegnum sínum á Islandi mikla athygli á fyrri öldum. Þeir voru vitaskuld fegnir að hirða arðinn af Islands- versluninni, en að öðru leyti létu þeir embættismenn sína um að vafstra með mál landsins. Þess vegna er það í frásögur færandi þegar Friðrik V. Danakonungur fékk skyndilegan áhuga á fslandi veturinn 1751-52. Það sem hreyfði við hinni konunglegu tign var skjal frá Skúla Magnússyni, nýskipuðum landfógeta, þar sem hann fór fram á fjárveitingar til viðreisn- ar Islands. Konungur er ávarpaður með þeim orðum að ís- lendingar séu fátæk þjóð, fjarri konungi sínum og sólinni. Ekki sé hægt að breyta legu landsins en náðarsól konungsins gæti samt orðið fátækum innbyggjurum landsins til bjargar og leitt þá til framfara. Sfðan bað Skúli um 6.000 dali til þess að stofna verksmiðjuhverfi í Reykjavík, auk annars. Friðrik V. Danakonungur hreifst svo af þessari líkingu að hann sam- þykkti ekki aðeins beiðni Skúla heldur hækkaði framlagið í 10.000 dali þvert ofan í mótmæli embættismanna sinna. Náð- arsól konungsins hélt síðan áfram að skína næstu ár og dá- góðar summur runnu úr ríkisfjárhirslunni til verkefna Skúla á íslandi. Og frammi fyrir furðu lostnum löndum sínum var Skúli fógeti brátt búinn að byggja lítið þorp í Reykjavík og láta reisa yfir steinhús í Viðey - hið fyrsta á landinu. En sólargeislarnir náðu í fleiri horn. Arið 1756 voru lagðar tillögur fyrir konung um byggingu annars steinhúss, dóm- kirkju á Hólum í Hjaltadal. Markmiðið var sem fyrr framfar- ir - að kenna landsmönnum steinhögg. Enn var konungur vilj- ugur að láta Ijós sitt skína. Lagður var skattur á hverja einustu kirkju á Norðurlöndum til þess að fjármagna bygginguna og frægasti arkitekt Dana á átjándu öld og húsameistari kon- ungs, Laurids de Thurah, var látinn teikna mannvirkið. ís- lensku umbótasinnarnir lögðu það til að aðeins einn múrari yrði sendur til þess að vinna verkið svo tryggt væri að íslend- ingar lærðu handverkið. Aðeins ári síðar var allt klappað og n SPARISJÓÐUR MÝRASÝSLU - Hornsteinn í héraði 32

x

Vísbending

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.