Vísbending - 31.05.2002, Blaðsíða 4
ISBENDING
Að kjósa rétt!
ann 25. maí síðastliðinn voru
tvennar kosningar sem héldu
sjónvarpsáhorfendum föngnum.
Annars vegar sveitarstjórnarkosningar
á Islandi, og þá sér í Iagi í Reykjavík, og
hins vegar kosning á sigurlagi í Euro-
vision - söngvakeppni evrópskra sjón-
varpsstöðva. Við fyrstu sýn virðist
langur vegur á milli þessara tveggja
kosninga þar sem önnur hafði alvarlegt
yfirbragð en hin öllu léttari ásýnd og
önnur snérist urn pólitík en hin um
dægurlög. Engu að síður var í báðum
tilfellum keppt til sigurs og sigurgleðin
var að sama skapi sönn - og sárindin
heldur ekki ósvipuð.
Að útskýra tapið
Sjálfstæðismenn biðu lægri hlut í
sveitarstjórnarkosningunum fyrir R-
listanum íReykjavík ogOlafurF. Magn-
ússon fékk uppreisn æru. Vonbrigði
sjálfstæðismanna leyndu sér ekki þegar
ljóst var að fléttu- og skákmeistarar
flokksins höfðu verið niátaðir. í sárind-
unum var brugðist við með afneitun þar
sem „klofningsframboði" Ólafs F. og
fjölmiðlum var kennt um slæmt gengi
flokksins. Hvað annað getur útskýrt
tapið?
I ár voru Islendingarekki með í Euro-
vision en frændur okkar Danir fengu að
vera með en þeir eru orðnir ástfangnir
upp fyrir haus af keppninni eftir að hafa
sigrað árið 2000 og lent í öðru sæli árið
2001. f ár sendu þeir fagurlimaða yngis-
ntey með gífurlegt raddsvið sem gat
verið allt fyrir alla. Eitt af efstu sætunum
var öruggt. Vonbrigðin leyndu sér ekki
þegar upp var staðið og danska lagið
reyndist vera neðst allra laga. Hin unga
Malene grét alla nóttina þungum tárum
en kom svo með skýringu á óförunum
strax í bítið daginn eftir; breytt afstaða
danskra yfirvalda gegn innflytjendum
hafði kostað hana dýrrnæt stig. Þetta
var augljósl þar sem hvorki Finnland né
Svíþjóð höfðu gefið Dönum stig. Hvað
annað getur útskýrt tapið?
s
Astæðurnar fundnar
að hefur lönguin þótt ágætur partý-
leikur að finna ástæður þess að
ákveðið land gefureðagefurekki Islandi
stig í Eurovision-keppninni. Markaðs-
svæði SIF er þá grandskoðað, rýnt í
frændsemi þjóða og Jóni Baldvini klapp-
að lof í lófa fyrir öll stig frá Eystrasalts-
löndunum. Stundum virðast skoðanir á
mismunandi gengi stjórnmálaflokka
vera af svipuðum toga. Alls konar
atburðir eru tíndir til sem ýmist eiga að
hafa haft jákvæð eða neikvæð áhrif á
kjörgengi flokka og ýmislegt staðhæft
án þess að nokkur tilraun hafi verið gerð
til þess að rannsaka það. Fyrir vikið
verður þetta álíka merkilegur leikur og
partý-leikur aðdáenda Eurovision.
Þó að það sé sennilega auðveldara
verkefni að finna út hvað gerir það að
verkum að íslenskir kjósendur hallast
að ákveðnum stjórnmálaflokki en af
hverju kjósendur í ólíkum þjóðlöndum
kjósa eitt dægurlag umfram annað þá er
það engu að síður nokkuð erfitt verkefni.
Þó yrði útgangspunkturinn í slikri rann-
sókn nokkuð svipaður og þá sennilega
hvemig kjósendur meta frambjóðendur
og það sem þeir hafa fram að færa í
samanburði við aðra frambjóðendur og
málflutningþeirra. Þaðerþóekki útilok-
að að margir ólíkir þættir geti haft áhrif
á hvernig niðurstaða kosninganna að
lokum verður en þó er líklegast að skýr-
ingin sé tiltölulega einföld, eins og t.d.
h vaða lag og flytjandi heillar áhorfendur
hvað mest eðahvaða lagi þeireru líkleg-
astir til að tralla með sér til ánægju.
Skynsamur kjósandi
ólk sættir sig ntisjafnlega vel við að
tapa, sumir sætta sig alls ekki við tap
og jafnvel neita að hafa tapað, aðrir játa
sig sigraða og nýta reynsluna lil að læra
af henni. Þeir sem tapa tala urn að kosn-
ingareglurnar séu ónýtar og að kjós-
endur hafi verið blekktir- eða þá að þeir
hafi alls ekki tapað heldur unnið „varnar-
sigur“. Sigurvegararnir segja að úrslitin
sýni að skynsemi kjósenda sé yfir orða-
gjálfur og auglýsingamennsku hafin,
þeir hæfustu sigri. Þetta snýst svo við
reglulega þegar þeir sem töpuðu síðast
verða sigurvegarar og sigurvegararnir
tapa. Skynsemi kjósenda virðist því vera
nokkuð sveiflukennt fyrirbæri og full af
þversögnum. Astæðan er þó ekki jafn
undarleg og í fyrstu virðist þar sem það
gefur augaleið að kjósendur geta ein-
ungis verið skynsamir þegar þeir kjósa
rétt!
( Vísbendingin )
r~, ^ a
síðastliðnu ári hefur verðið á únsu
af gulli hækkað um rúmlega 17% og
útlit er lyrir frekari hækkanir. Stríðs-
hræringar í Austurlöndum, bæði á milli
Israel og Palestínu og Indlands og Pak-
istans, hafa gert fjárfesta taugaveiklaða.
Bandaríkjadollari hefur fallið í vinsæld-
um að undanförnu sent traustasta leiðin
til þess að tryggja verðmæti fjármagns
enda hefur ltann ekki slaðið lægra gegn
evrunni í átta mánuði. Það er því gullið
sent hefur fengið sitt gamla, góða hlut-
verkáný._____________
Aðrir sálmar
«________________________________
( “ A
Irósabaði
Að kosningum loknum vilja menn
alltaf finna hina dýpri merkingu
úrslitanna. Ríkissjónvarpið bætti við
skilning manna á kosninganótt með því
að birta tölur sem sýndu að allir flokkamir
væru að tapa ef á heildina væri litið og
sérfræðingar þess lögðu út af þessu
með spekingssvip. Tölur sem fóru um
skjáinn voru stjórnendum greinilega
gersamlega ofviða og tölvukerfinu líka,
því það reyndist ekki geta lagt saman
flmm tölur frá Akureyri sem lesnar voru
upp í tvígang. Fljótt á litið virtist það
svo að Samfylkingin færi heldur halloka
annars staðaren í Hafnarfirði, en eftirað
hafa lesið greinar Fylkingarmanna eftir
kosningar sést að hún hefur alls staðar
unnið mikinn sigur í Ijósi þess að hún
bauðekki framsíðast. Framsóknarflokk-
urinn fagnar stórsigri á Fáskrúðsfirði
og Sjálfstæðismenn unnu hlutkestið í
Bolungarvík. Eini maðurinn sem er
spældur eftír kosningarnar er Steingrím-
ur J. sem segir að ntenn fari alltaf í kosn-
ingar til þess að vinna. Hjá hinum flokk-
unum er markmiðið fyrst og fremst það
að vinna einhvers staðar.
Fréttaskýrendur reyna að leila skýr-
ingaátapi Sjálfstæðisflokksins íReykja-
vík í stefnu hans fyrir kosningarnar, en
það er ótrúverðugt því R-listinn nýtti
sömu stefnu til sigurs. Barátta R-listans
í Reykjavík var lærdómsrík. Listanum
tókst í tæka tíð að skila listunum um þá
sem kosið höfðu utankjörfundar, sem
sóttir voru fyrir misskilning á degi hverj-
unt. Sigrinum var tekið af lítillæti þegar
hinnelskaði, virti.dáðioghrærði leiðtogi
gekk inn á sviðið baðaður rósablöðum.
Eftir kosningar biðu menn spenntir
eflirþví að listinn gæfi upp hverjir hefðu
gefið mest til baráttunnar, en það er
stefna Samfylkingarinnar á Alþingi að
gefa upp nöfn allra þeiiTa sem gefa meira
en hálfa milljón í kosningasjóð. Kosn-
ingarstjóri R-listans sagði hins vegar
að stærstu styrktaraðilar hefðu ekki ósk-
að eftir að nafn þeirra birtist og því yrði
það ekki gert.
Þarf nú ekki að breyta frumvarpi
Jóhönnu á þá lund að nöfn þeirra
styrktaraðila sem gefa meira en hálfa
milljón verði birt „ef þeir óska þess“?
''Ritstjórn: Eyþór Ivar Jónsson ritstjóri ogA
ábyrgðarmaður og Benedikt Jóhannesson.
Útgefandi: Heimur hf., Borgartúni 23, 105
Reykjavík.
Sími: 512-7575. Myndsendir: 561-8646.
Netfang: visbending@talnakonnun.is.
Málfarsráðgjöf: Málvísindastofnun Há-
skólans.
Prentun: Gutenberg. Upplag: 700 eintök.
Öll réttindi áskilin. © Ritið má ekki afrita án
leyfis útgefanda._______________________
4