Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.1947, Blaðsíða 23

Frjáls verslun - 01.02.1947, Blaðsíða 23
„INGÓLFUR ARNARSON" Fyrsti nýsköpunartogari landsins létti akker- um á Reykjavíkurhöfn 15. febr. s. 1., og var mikill mannfjöldi saman kominn á hafnarbakk- anum við það tækifæri. Bæjarstjórnin stóð fyrir móttökuhátíð við komu skipsins, og voru ræður fluttar og lúðrar þeyttir. Ræðumenn voru þessir, og töluðu þeir frá borði: Jóhann Þ. Jósefsson sjávarútvegsmála- ráðherra, Gunnar Thoroddsen borgarstjóri, Gísli Jónsson alþrn. og Guðmundur Ásbjörnsson for- seti bæjarstj. • Borgarstjórinn mælti á þessa leið: ,,í dag hefur mikill viðburður gerst í sögu Reykjavíkur og landsins alls. Fullkomnasta fiski- skip þjóðarinnar liefur lagst við landfestar á ís- landi. Það er fyrsta skip hins fyrirheitna lands nýsköpunar atvinnulífsins og munu rnörg eftir fara. Höfuðborg landsins á þetta skip og mun gera það út. Reykjavík verður heimili þessa fyrsta landnema nýsköpunarinnar, Ingólfs Arnar- sonar, eins og það var Reykjavík, sem var heim- ili og aðsetur fyrsta landnámsmannsins, Ingólfs Arnarsonar. Fiskveiðar hafa lengst af verið undirstaða Reykjavíkur og aðalatvinnugrein. En tækin hafa tekið miklurn breytingum. Hinir opnu árabátar voru lengi lífsbjörg Reykjavíkur. Síðan komu þilskip og loks togarar. „Eftir súðbyrðings för kom hinn seglprúði knörr, eftir seglskipið vél- knúin skeið“, yrkir Örn Arnarson. Þessar gjör- byltingar í útveginum hafa orðið á skömmum tíma. Og nú þegar ný atvinnubylting er hafin með komu nýtízku togarans Ingólfs Arnarsonar, hljótum vér að minnast með virðingu og þökk brautryðjendanna, hinna framtakssömu forystu- og athafnamanna, er skynjuðu andardrátt hinn- ar nýju tækni og færðu þannig þjóðinni aukinn afla og afköst. Nú er nýr þáttur að hefjast í sögu íslenzkrar útgerðar. Togaraflotinn er að endurnýjast. Til viðbótar og í stað gamalla skipa koma nú þrír tugir nýrra og fullkominna botnvörpuskipa. Þau verða hraðskreiðari og fengsælli en liin eldri, og hollari vistarverur fyrir sjómennina. Þau eru at- vinnuleg og félagsleg framför. En það hefst einnig nýr þáttur í sögu Reykja- víkur á marga lund. Þetta er t. d. í fyrsta sinn, FRJÁLS VERZLUN 23

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.