Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.01.1992, Blaðsíða 4

Frjáls verslun - 01.01.1992, Blaðsíða 4
TÆKNI m ±. - isfg : rf,i. 225 \ . -nmmmm - ft :SÍ 1 '. ' - i wiy it - ■ *yr*r •'> «5 •* -r~ ' "S; . ?OB5ií Innréttingar fyrir atvinnurekstur frá Electrolux REKKAR FRÁ ELECTROLUX Bflanaust tók fyrir nokkru við sölu- umboði fyrir stálinnréttingar frá sænsku Electrolux samsteypunni. Electrolux er á meðal þekktustu framleiðenda sérhæfðra innréttinga fyrir varahluta- og vélaverslanir, rekkakerfí fyrir birgðageymslur, vöruskála og aðra starfsemi þar sem rekkar þurfa að geta borið mikinn þunga. Electrolux framleiðir margar mis- munandi gerðir innréttinga fyrir at- vinnurekstur. Lagerrekkar eru t.d. fáanlegir með mismunandi burðarþol, frá léttum rekkum fyrir vefnaðarvöru og upp í efnisrekka fyrir vélsmiðjur og allt þar á milli. Ný rafgeyma- og pústkerfadeild hjá Bílanausti er t.d. búin Electrolux inn- réttingum að öllu leyti auk þess sem varahlutabirgðir fyrirtækisins eru geymdar í tveggja hæða rekkakerfí frá Electrolux. Hjá Bílanausti starfar sérfróður sölumaður sem m.a. gerir tilboð í rekkakerfi. HVAÐ ER SKJÁSÍA? Tölvurekstur hf. er fyrirtæki í Reykjavík sem hefur verið að kynna nýtt hjálpartæki fyrir þá sem vinna við tölvur. Hér er um að ræða sk. skjásíu en það er eins konar gluggi sem sett- ur er framan við tölvuskjá. í gluggan- um er gegnsætt efni sem er gætt ákveðnum ljóstæknilegum eiginleik- um auk þess sem það stöðvar rafseg- ulgeislun frá tölvuskjám. Ymsar kenningar hafa verið uppi um skaðleg áhrif rafsegulgeislunar á þá sem vinna löngum stundum við tölvur. Vísindalegar rannnsóknir, sem fram hafa farið m.a. í Svíþjóð og Bretlandi, munu ekkert hafa leitt í Ijós sem sannar þessar kenningar fremur en að seta framan við sjónvarpsskjá geti verið skaðleg. Hins vegar mun ekki fara á milli mála að það sem veldur mælanlegum ónotum og þreytu hjá tölvunotendum er glýja frá skjá og speglun vegna breytilegrar birtu í nánasta umhverfi tölvu. Þegar sterkt ljós, t.d. sólar- ljós, er ráðandi dofnar skjámynd þannig að erfitt getur verið að greina hluta hennar. Við slíkar aðstæður reynir meira á þann sem vinnur við tölvuna og hann þreytist mun meira. Bandaríska fyrirtækið Polaroid hefur þróað sérstakt efni sem er byggt upp eins og marglaga gegnsæ þynna. Þetta efni virkar eins og ljós- gildra þegar það er sett framan við tölvu- eða sjónvarpsskjá. Það stöðvar utanaðkomandi ljós þannig að það nær ekki að speglast frá skjánum. Skjáglýja er þar með úr sögunni. En Polaroid skjásían gerir meira en að eyða glýju. Hún hefur svipaða ljós- tæknilega verkun og sk. laxagler- augu. Með Iaxagleraugum sér veiði- maður langt niður í vatnið vegna þess að þau útiloka speglun frá yfirborðinu. Með Polaroid skjásíunni sér tölvunot- andinn mun skýrari skjámynd, texti verður t.d. jafíi skýr hvort sem bjart eða dimmt er umhverfis tölvuna. Skjásían er auk þess jarðtengd og virkar eins og rafskermur („Fara- days-búr“) og gegnir þannig þremur hlutverkum: í fyrsta lagi hættir skjár- inn að draga til sín rykagnir og um leið að valda þeim óþægindum sem eru sérstaklega næmir fyrir rafsegul- sviði. í öðru lagi er þetta öryggisatr- iði. í Bandaríkjunum búa s.k. einka- spæjarar yfir sérstökum tækjabúnaði sem gerir þeim kleift að lesa af tölvu- skjám úr allt að 40 metra fjarlægð í gegnum veggi. Þeir beita til þess mjög næmum stefnuvirkum móttak- ara, sem leitar uppi rafsegulsvið og breytir segulbylgjum í stafrænan kóða, þannig að hægt er að ná skjá- myndinni á annan skjá, t.d. í bíl fyrir utan banka eða aðra stofnun. Polaroid skjásían minnkar útgeislun frá tölvu- skjá um allt að 98%. Tækjavæddir skúrkar hafa því ekki erindi sem erfiði þegar hún er notuð. í þriðja lagi kem- ur skjásían í veg fyrir að stöðuspenna myndist með tilheyrandi neistaflutn- ingi á milli manns og tölvu. Um leið er 38

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.