Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.01.1992, Blaðsíða 25

Frjáls verslun - 01.01.1992, Blaðsíða 25
BRÆÐUR MUNU BERJAST Helgi Jóhannsson. Hörður Gunnarsson. Mannlegi þátturinn í ferðaskrifstofueinvíginu er kostulegur. Helgi Jóhannsson, framkvæmdastjóri Samvinnuferða- Landsýnar, er nú í samkeppni við fyrrum samstarfsmenn sína. Hörður Gunnarsson, framkvæmdastjóri Úrvals-Útsýnar, var um fimm ára skeið fjármálastjóri SL og vann þá mjög náið með Helga Jóhannssyni. Hörður tók við Úrval-Úfsýn fyrir rúmu ári. Hann réði fljótlega til sín markaðsstjóra, Tómas Tómasson, sem getið hafði sér gott orð í því starfi hjá Samvinnuferðum-Landsýn — í samstarfi við Helga og Hörð. Ætla má að þessir menn þekki allir hugsunargang og vinnubrögð hvers annars og ætti því fátt að koma keppinautunum á óvart í þeirri baráttu sem er hafin milli fyrirtækjanna. berjast blóðugri baráttu sem getur ekki leitt til annars en taprekstrar og gjaldþrota. Þann stríðskostnað verð- ur einhver að greiða — jafnvel þótt síðar verði. Þeir, sem greiða að lok- um, eru neytendur. Hins vegar njóta neytendur hagkvæmari rekstrarein- inga sem hafa afl til að halda kostnaði niðri ef samkeppnin er nægileg til að koma í veg fyrir óeðlilegan hagnað af rekstri hinna hagkvæmu fyrirtækja. Nú er sú staða á íslenskum ferða- skrifstofumarkaði að tveir öflugir aðil- ar eru allsráðandi. í krafti stærðar eiga þeir að geta haldið kostnaði niðri og boðið viðskiptavinum sínum hag- stæð verð. Keppnin virðist vera svo hörð á milli þeirra að ekki þarf að óttast það eina sem er hættulegt við þessar aðstæður — ólöglegt samráð hinna stóru. Allt bendir til að þeir muni berjast grimmilega og að sú bar- átta skili neytendum hagstæðu verði og góðri þjónustu. GUÐNI HELDUR ÞEIM VIÐ EFNIÐ Ekki má heldur gleyma því að óút- reiknanlegasti frumkvöðull allra tíma í íslenskri ferðaþjónustu, Guðni Þórð- arson í Sunnu, er kominn til skjalanna aftur og hefur í hyggju að anda niður um hálsmálið á íslenskri ferðaþjón- ustu og flugrekstri á þessu ári eins og í fyrra! Þá snéri hann til baka og flutti á annan tug þúsunda íslendinga til út- landa á lægra verði en þekkst hafði áður. Hann boðar nú framhald á því. Og víst er að hann mun veita stóru ferðaskrifstofunum og Flugleiðum gríðarlegt aðhald við verðlagningu á orlofsferðum, ef áform hans ganga eftir. Öllum, sem til þekkja mátti vera ljóst að gjaldþrot Ferðamiðstöðvar- innar Veraldar yrði ekki umflúið. Það sem vekur undrun er að til gjaldþrots- ins skyldi ekki hafa komið miklu fyrr. Það lá einnig í loftinu að Ferðskrif- stofan Saga myndi enda hjá Úrval- Útsýn eftir að Flugleiðir keyptu 43% hlutafjár í skrifstofunni þegar hún hafði tapað nærri 20 milljónum króna árið 1989 á þó ekki meiri umsvifum en voru hjá fyrirtækinu. Sama er að segja um Ferðaskrifstofuna Atlantik. Menn þóttust sjá að þar væri um of litla rekstrareiningu við sölu á utan- ferðum íslendinga að ræða til að fyrir- tækið ætti framtíð fyrir sér. Hins vegar er talið að Böðvar Valgeirsson

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.