Frjáls verslun - 01.01.1992, Blaðsíða 31
Beatrix Hollandsdrottning á talsverða peninga og telst þriðja ríkasta
kona veraldar.
ónir króna, að endast þokkalega. Þessa
peninga notar hann til að sjá fyrir fjöl-
skyldu sinni, greiða starfsliðinu og standa
straum af kostnaði við viðhald á höllunum.
Haraldur greiðir síðan virðisaukaskatt
eins og aðrir Norðmenn.
SPÁNN:
Juan Carlos Spánarkonungur hefur
engar tekjur aðrar en þær sem hann fær
frá ríkinu. I fyrra fékk hann sem svaraði
tæplega 500 milljónum króna og þurfti að
greiða skatt af hluta þeirra fjármuna. Hann
verður hka að fylla út skattskýrslu eins og
aðrir Spánverjar.
Nýverið ákvað kóngurinn að selja nýju
lystisnekkjuna sína að andvirði um 650
milljóna svo hann gæti látið gera upp höll-
ina íMadrid. Spænsku konungshjónin eru
sögð lifa mjög látlausu lífi og vera lítið fyrir
að berast á.
SVÍÞJÓÐ:
Karl Svíakonungur og Sylvía drottning
eru næstum eins og hver önnur úthverfa-
hjón í Svíþjóð. Þau greiða skatt og geta
sótt um barnabætur. Eignir þeirra eru
metnar á rúman milljarð íslenskra króna
og þau greiða 30 % skatt af tekjunum af
þessum eignum.
Drottningin gæti fengið rúmar 7 þús-
und íslenskar krónur í mæðralaun með
bömunum þremur á hverjum ársfjórð-
ungi. Hingað til hefur hún hins vegar ekki
þegið þá peninga. Ríkið greiðir þeim hjón-
unum árlega 200 milljónir en þau fá einnig
tæpar 700 milljónir í arð af hlutafé þeirra í
níu fjölþjóðafyrirtækjum.
[uíiMaScíáiíEöPE
DDdSUQDffi-M®œ’ÍDQD®[L[I](^][I)[I]
veitir lán til raunhæfra framfaraverkefna í öllum atvinnugreinum
• Sjóðurinn veitir gengistryggð lán með hag-
stæðum greiðslukjörum.
• Trygging fyrir láni skal vera veð í fasteign
eða bankaábyrgð.
• Starfsmenn sjóðsins meta arðsemi verkefna
í samvinnu við umsækjendur.
• Sjóðurinn veitir einnig styrki til greiðslu á nauð-
synlegri ráðgjöf vegna þróunarverkefna.
Lánasjóðurinn er í eigu Norðurlandanna allra. Athafnasvæði hans eru Vestur-Norðurlönd, þ.e.
Færeyjar, Grænland og ísland. Samvinnuverkefni milli landa eru æskileg en ekki skilyrði.
HAFÐU SAMBAND VIÐ SKRIFSTOFU OKKAR OG FÁÐU NÁNARI UPPLÝSINGAR.
Lánasjóður Vestur-Norðurlanda
hefur aðsetur á Rauðarárstíg 25, annarri hæð,
pósthóif 5410,125 Reykjavík, sími (91) 605400, Telefax: (91) 29044.
65