Frjáls verslun - 01.04.1992, Blaðsíða 5
Ráðgjöf í sextíu ár 'VJSfM
Sæstrengur býður
upp á mikla kosti
Pálmi R. Pálmason verkfræðingur er fram-
kvæmdastjóri virkjana- og vélasviðs hjá VST.
Hann telur að mörg verkefni séu framundan
fyrir íslenska verkfræðinga og að stefna eigi að
því að framleiða sæstreng á Islandi og gera
raforku sem fyrst að útflutningsvöru.
Viö hjá VST höfum sem
kunnugt er lagt okkur
sérstaklega eftir
hönnun virkjana og
verið svo lánsamir aö
eiga gott samstarf við
Landsvirkjun, Orkustofnun og
Rafmagnsveitur ríkisins auk annarra
góðra viðskiptavina sem að þessum
málum vinna. Þetta samstarf hefur að
mínu viti skilað sér í betri hönnun
slíkra mannvirkja þar sem fullt tillit
hefur verið tekið til aðstæðna sem um
margt eru sérstæðar hér á landi. Hér
má benda á stíflurnar við
Hrauneyjarfoss og Sultartanga sem
voru hannaðar með tilliti til þess að
umtalsverður en þó takmarkaður leki
yrði yfir, um og undir þær. Þá er yfirfall
Blöndustíflu óvenjulegt svo ekki sé
meira sagt og vakti það mikla athygli
stíflugerðarmanna víðs vegar að úr
heiminum er þeir komu hingað
sumarið 1989,“ sagði Pálmi R.
Pálmason.
Pálmi hefur starfað hjá VST síðan
haustið 1965 en hefur þó starfað um
nokkurra ára skeið erlendis á þessu
tímabili, þ.e. í Noregi, Kanada og
Bandaríkjunum. Undanfarna tvo
áratugi hefur hann nær eingöngu
unnið við alls kyns jarð- og bergtækni
og þá mest í tengslum við virkjanir. Þá
hefur Pálmi verið fulltrúi VST í stjórn
Virkis-Orkint hf, sem er í eigu
nokkurra verkfræðistofa og
Orkustofnunar og hefur á sinni
stefnuskrá að afla verkefna erlendis
fyrir íslenska tæknimenn.
„Síðustu árin hefur sífellt meira af
mínum tíma farið í stjórnun og
verkefnaöflun. Nú síðast höfum við, I
Sæstrengur til útflutnings raforku
gæti skapað íslenskum verkfræð-
ingum mikil verkefni.
Pálmi R. Pálmason verkfræðingur
og framkvæmdastjóri virkjana- og
vélasviðs hjá VST.
samvinnu við nokkrar aðrar verkfræði-
stofur, reynt að afla fylgis hugmyndum
um framleiðslu á sæstreng á íslandi
er yrði nýttur til að flytja út orku til
annarra Evrópulanda. Þar er um
risavaxið verkefni að ræða sem myndi
snerta flestar verkfræðistofur í
landinu. Þar er tækifæri til að efla
stórlega innlenda tækniþekkingu með
framleiðslueftirliti og fleiru ef af yrði og
það gæfi okkur aukna möguleika á
útflutningi slíkrar þekkingar er fram
líða stundir."
Blönduvirkjun hefur nýlega verið tekin í notkun, en hún var hönnuð hjá VST.