Frjáls verslun - 01.02.1995, Blaðsíða 30
FORSIÐUGREIN
FYNDNIOG SKEMMTUN í
Öllum geðjast vel að fyndnum auglýsingum. Það er bara einn hængur á.
011um geðjast vel að fyndnum
auglýsingum. Auglýsingafólki
finnst gaman að framleiða
þær. Auglýsendur hafa gaman af að
birta þær. Neytendur og áhorfendur
elska að horfa á þær. Það er bara einn
hængur á og hann er ekki svo lítill. Sú
hætta er fyrir hendi að fólk hlæi að
brandaranum en gleymi vörunni sem
verið er að auglýsa.
Fyndni og skemmtun í sjónvarps-
auglýsingum tíðkast um allan heim og
fyndnar auglýsingar eru víða marg-
verðlaunaðar, þykja þær bestu og
frumlegustu. Höfuðástæðan fyrir
fyndnum sjónvarpsauglýsingum er
eflaust sú að leiðindi selji tæplega
vörur vel. Áhugi verður vart kveiktur
með leiðindum, það er útgangspunkt-
urinn.
SKEMMTUN ER EKKI
BARA FYNDNI
Skemmtun (entertainment) í aug-
lýsingum er ekki einvörðungu fyndni,
það að kitla hláturtaugamar.
Skemmtun í auglýsingum getur líka
verið fólgin í ýmiss konar tónlist og
dansatriðum. Það telst jafnvel
skemmtun að spila inn á kynhvötina í
auglýsingum eða vera með einhvers
konar tvíræðni eða orðaleiki.
Fyrir um tuttugu árum kom út bók-
in How to advertise, eða Hvemig eigi
að auglýsa, eftir auglýsingafólkið
Kenneth Roman og Jane Maas. Hinn
þekkti auglýsingamaður David Ogilvy
skrifaði formála að bókinni og lofaði
hana í hástert. Bókin var ekki skrifuð
fyrir þá sem búa til auglýsingar heldur
þá starfsmenn í fyrirtækjum sem hafa
með auglýsingamálin að gera; auglýs-
endur. Fyrst og fremst er horft á mál-
in út frá sjónarhóli auglýsandans,
þess sem borgar brúsann.
í bókinni segir að margar af allra
vinsælustu sjónvarpsauglýsingum
hafi ekki skilað nægilegum árangri
TEXTI: JÓN G. HAUKSSON
Laddi að auglýsa skafmiða fyrir Happdrætti Háskólans.
Laddi í auglýsingu fyrir Bragakaffi.
30