Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.1995, Blaðsíða 32

Frjáls verslun - 01.02.1995, Blaðsíða 32
FORSIÐUGREIN Ólafur Steþhensen markaðsráðgjafi: KÍMNI í AUGLÝSINGUM GETUR VERIÐ HÆTTULEG □ rátt fyrir að ég hafi notað kímni í mörgum sjónvarps- auglýsingum á árum áður, þegar ég var í auglýsingafaginu, hef ég engu að síður haldið því lengi fram að kímni, sem slík, geti verið eitthvað það hættulegasta sem hægt sé að nota í auglýsingum. Það er af þeirri einföldu ástæðu að eng- inn hefur sömu tilfinningu fyrir því hvað sé fyndið. Það, sem einum finnst skemmti- legt, finnst öðrum hugsan- lega hrútleiðinlegt. Númer eitt í auglýsingum er að koma skilaboðum áleiðis.“ Þetta segir Ólafur Step- hensen, markaðsráðgjafi og fyrrum auglýsingamaður. Hann hefur á síðustu árum algerlega dregið sig út úr auglýsingafaginu. Hann er engu að síður sá sem notaði þá Bessa Bjamason og Árna Tryggvason fyrst í auglýs- ingum fyrir Happdrætti Há- skólans og innleiddi kímni í þær auglýsingar. „Auglýsingar, sem gera eingöngu út á fyndni, hafa ætíð verið mjög umdeildar. Það er nefnilega ekkert sam- band á milli sölu og fyndni í auglýsingum nema fyndnin um í sjónvarpi fyrir fólk. Það er hræðilegur dómur yfir dagskrá sjón- varpsstöðvar ef auglýsingatíminn er skemmtilegri en dagskráin sjálf. Því miður held ég að það hafi hent nokkr- um sinnum." — Finnst þér of mikið af fyndnum auglýsingum á íslandi samanborið við önnur lönd? Ólafur Stephensen markaðsráðgjafi: „Hlutverk ciug- lýsinga er fyrst og fremst að selja vöru og þjónustu en alls ekki að halda uppi skemmtiatriðum í sjónvarpi sé notuð til að undirstrika og fyrjr fólk.“ hnykkja á skýrum söluskila- minnt þig á ákveðið vörumerki en ég leyfi mér að efast um að hún fái þig til að kaupa vöruna nema þú sért viss um að gæði hennar séu því meiri.“ — Telur þú að helstu skemmti- kraftarnir, eins og þeir Spaugstofu- menn, séu ofnotaðir í íslenskum auglýsingum? „Um allan heim er ofnotk- un mjög stór grýla hjá þeim, sem koma oft fram, eins og leikarar og skemmtikraftar. Landamæri ofnotkunar eru mjög fín. Þetta gildir auðvit- að líka hér á landi. Einn dag- inn getur leikari verið góður auglýsandi en hinn daginn getur hann verið farinn yfir línuna og enginn þolir hann. Varðandi þá Spaugstofu- menn er ég einn þeirra sem halda því fram að þeir félagar séu snillingar og að fáir kom- ist í spor þeirra í að koma fram í smáþáttum, hvort sem þeir þættir heita auglýsingar eða gamanþættir. En hvort þeir selja vörum- ar, sem þeir auglýsa, er stóra spurningin. Þeir selja vöruna örugglega ef handrit- ið er gott, skilaboðin komast greinilega til skila og fyndnin er viðeigandi. Með öðrum orðum, ef áhorfendur muna, boðum í auglýsingum. Komist skila- boðin til skila er í lagi að nota kímn- ina. En ég tek það fram að sum málefni þola nánast enga kímni þegar þau eru auglýst. Kímni er þá hreinlega ekki viðeigandi og verður fyrir vikið ekki áhrifarík í að selja. Hlutverk auglýsinga er fyrst og fremst að selja vöm og þjónustu en alls ekki að halda uppi skemmtiatrið- „Það held ég ekki. Kannski hefur verið óvenju mikið af kímni í íslensk- um sjónvarpsauglýsingum undanfarin ár. En þótt það fyndna og fíflalega fái, eitt og sér, ekki fólk til að hlaupa út í búð og kaupa vöru mega auglýsingar heldur ekki vera leiðinlegar. Það kaupir enginn vöru, að mínu mati, eft- ir leiðinlegri auglýsingu. Auglýsing, sem pirrar þig, getur á vissan hátt eftir að hafa séð auglýsinguna, hvað varan heitir og hvaða kostum hún sé prýdd. Svo lengi sem það gengur upp eru þeir ekki ofnotaðir, enda held ég að þorri fólks sé ekki búinn að fá leið á þeim sem skemmtikröft- um. Engu að síður árétta ég að fyndni er afar vandmeðfarin og get- ur reynst hættuleg í auglýsingum.“ TEXTI: JÓN G. HAUKSSON MYNDIR: KRISTJÁN EINARSSON 32
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.