Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.1995, Blaðsíða 41

Frjáls verslun - 01.02.1995, Blaðsíða 41
ÞU NÆRÐ EKKIARANGRINEMA TALA VIÐ STARFSMENN ÞÍNA Að tala og hlusta. Til að árangur náist þurfa menn að tala saman. Hér reynir aftur á þroska og hæfni í mann- legum samskiptum. Hvernig kem ég skilaboðum áleiðis? Hvaða hindrun- um gæti ég mætt? Kann ég að halda uppi lifandi samræðum? Þarf ég að stilla „senditækið" mitt betur? Þá er ekki síður mikilvægt að kunna að hlusta. Talað er um „virka hlustun" þegar menn reyna markvisst að skilja þann sem rætt er við, setja sig í hans spor og hjálpa honum til að tjá sig. Þarf ég kannski að stilla „móttöku- tækið“ mitt betur? LEYFÐU SKOÐANASKIPTI - ÁGREININGUR Á RÉTT Á SÉR Kunna að leysa ágreining — leyfa skoðanaskipti. Stundum gerist það að samkeppni manna innan sama fyrir- tækis verður svo hörð að fyrirtækið hlýtur tjón af. Ágreiningur rís og ekk- ert er gert í málunum fyrr en um seinan. Það krefst ákveðinnar færni, ákveðni og kjarks að grípa í taumana, láta ekki spennu hlaðast upp og leysa deilur áður en þær fara úr böndunum. Á hinn bóginn þurfa menn að gera sér grein fyrir því að skoðanaskipti og ágreiningur eiga rétt á sér og þurfa að fá eðlilegan farveg innan hópsins. Það þarf m.ö.o. að ríkja samkomulag um það hvernig menn leysa ósamkomu- lag. HRÓSAÐU. EKKI HUGSA FYRST OG FREMST UM ÞAÐ SEM MIÐUR FER Kunna að hrósa og hvetja — og gera það sjálfur. Ekki þarf að fara mörgum orðum um gildi þess að kunna að hrósa á réttan hátt. Hrósið er sú næring eða sá orkugjafi sem heldur jákvæðum samskiptum gang- andi. Mikilvægt er að hrósa mönnum þegar þeir eiga það skilið og vera fljót- ur að bregðast við. Það er mikilvægt þjálfunaratriði að taka eftir því sem vel er gert og sýna jafnframt að mað- ur kunni að meta það. Ekki má falla í þá gryfju að láta einhvem annan um hrósið, eða ímynda sér að „búið sé að hrósa nóg“. Það er ótrúlega útbreiddur misskiln- ingur að stjórnendur eigi fyrst og fremst að hugsa um það sem miður fer í fyrirtækinu, leita mistaka ogjafn- vel refsa fyrir þau. Slík vinnubrögð verða fljótt niðurdrepandi og draga úr frumkvæði og sköpunargleði. GERÐU EINS OG ÞJALFARI: BREYTTU LIÐINU EFILLA GENGUR Gera nauðsynlegar breytingar á liðinu. Hvað gerir þjálfari liðs ef ein- hver leikmanna stendur sig ekki? Hann getur reynt að hvetja leikmann- inn. Leyft honum að leika áfram undir getu þar sem hann trúir því að við- komandi muni ná sér á strik síðar. Skipt honum út af um stundarsakir, dregið úr ábyrgð hans t.d. með því að láta hann skipta um stöðu eða hrein- lega tekið hann út úr liðinu, sett hann í B-liðið. Oft þurfa menn að taka skjót- ar ákvarðanir. Þegar illa fer að ganga er ljóst að breytinga er þörf. Þá gildir að þora að taka ákvarðanir og standa við þær. Ákvarðanataka og ákveðni eru mikilvægir þættir sem allir nú- tímastjórnendur þurfa að kunna skil á.“ Hlutverk stjórnanda er að skapa sterka liðsheild sem stefnir að sama mark- miði. Hann verður að ná saman liði sigurvegara, nokkurs konar sérsveit þar sem valinn maður skipar hvert rúm og geta hvers og eins nýtist til fulls. 41
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.