Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.1995, Blaðsíða 49

Frjáls verslun - 01.02.1995, Blaðsíða 49
„Þegar þú ert að tala við Sigurjón áttu alla athygli hans. En skreppir þú frá augnablik situr hann ekki á meðan og glápir út í loftið. Nei, hann fer að næsta síma og ræktar sín viðskiptasambönd.“ jón er ákaflega duglegur maður sem elskar að vinna.“ Það fer mörgum sögum af eljusemi og dugnaði Sigurjóns. Hann unir sér sjaldan hvfldar. Þannig sögðu margir af viðmælendum Frjálsrar verslunar frá því hvernig hann gjörnýtir tímann. Gott dæmi er þegar Sigurjón var við annan mann í biðröð utan við kvik- myndahús í New York. Hann lét kunningja sinn standa í röðinni en fór sjálfur í símaklefa á meðan til viðhalda sambandi við þá sem hann átti í við- skiptum við. „Síminn er stanslaust að hringja eða þá að hann er að hringja í einhvem. Maðurinn hættir hreinlega aldrei,“ segir einn kunningi Sigur- jóns. En þótt erillinn sé mikill gefur Sig- urjón viðmælanda sínum ávallt alla sína athygli. „Þegar þú ert að tala við Sigurjón áttu alla athygli hans. En skreppir þú frá augnablik situr hann ekki á meðan og glápir út í loftið. Nei, hann fer að næsta síma og ræktar sín viðskiptasambönd. Svo þegar þú kemur aftur áttu hug hans allan á ný. Hann gjörnýtir tímann,“ segir Lárus Ýmir Óskarsson kvikmyndaleikstjóri. Sigurjón og Páll Baldvin Baldvins- son leikstjóri kynntust í bókmennta- náminu í Háskólanum og skrifuðu saman BA-ritgerð sem fjallaði um sögu íslensku revíunnar. Hafa þeir verið mjög nánir vinir síðan. Páll tek- ur undir það mat flestra viðmælenda Frjálsrar verslunar að Sigurjón sé óhemju duglegur, sannkallaður vinnuhestur en bætir við: „Sigurjón hefur náðargáfu sem fáir menn hafa en sem nýtist honum í öll- um verkum, sem hann tekur sér fyrir hendur, og er mikilvægari en sá dugnaður sem hann er annálaður fyrir. Þetta er náðargáfa sem kemur til af langri vinnuævi og nefnist ein- faldlega skapandi innsæi,“ segir Páll Baldvin. Oghannbætir við: „Sigurjón er dæmiverður tvíburi, getur verið bæði harður og ljúfur. Það þarf sterk bein til að komast af í þeim harða heimi sem kvikmyndagerð í Banda- ríkjunum er en það þarf líka milt og gleðilegt fas sem er Sigurjóni mjög eiginlegt. Sigurjón er mjög sjarmer- andi maður sem á auðvelt með að komast í samband við fólk. Þótt hörku og sterk bein þurfi til ætli menn sér að ná langt þarf ekki síður ákveðna mýkt og sveigjanleika. Sigurjón státar af hvoru tveggja." Lárus Ýmir segir að sem kvik- myndaleikstjóri sjái hann marga kosti við Sigurjón. „Hann á mjög auðvelt með að umgangast peninga. Hann skilur hvemig þeir hreyfa sig og kann á þá. Þar að auki er hann vel menntað- ur, meðháskólagráðuíbókmenntum. Það er því ekki aðeins að ég treysti honum fullkomlega sem peningaleg- um forsjármanni verkefnis heldur get ég talað við hann sem jafningja um listræna hlið málsins. Þá er einkenn- andi fyrir Sigurjón hvað hann hefur góða tilfinningu fyrir verksviði hvers og eins. Þegar við vinnum saman skiptir hann sér af mínu verksviði, hefur afskipti af hlutverkum og hverj- ir séu ráðnir til kvikmyndagerðarinn- ar en hann tekur aldrei af mér völdin. Á sama hátt get ég skipt mér af pen- 49
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.