Frjáls verslun - 01.02.1995, Blaðsíða 50
NÆRMYND
„Sigurjón hefur náðargáfu sem fáir menn hafa en sem nýtist honum í öllum
verkum, sem hann tekur sér fyrir hendur, og er mikilvægari en sá dugnaður sem
hann er annálaður fyrir. Þetta er náðargáfa sem kemur til af langri vinnuævi og
nefnist einfaldlega skapandi innsæi. “ — Páll Baldvinsson
ingamálunum en þar hefur hann alltaf
síðasta orðið. Slíkir kvikmyndafram-
leiðendur eru ekki á hveiju strái en
það er einmitt ágreiningur um
verksvið sem skapar oftast vandamál
við kvikmyndagerð."
NÝTIR SÉR HVERJA SMUGU
Áður kom fram að nokkrum fyrrum
forráðamönnum Islenska Utvarpsfé-
lagsins fannst þeir sviknir af Sigurjóni
þegar hann keypti bréf um leið og allir
héldu að hann væri að selja.
Gamall kunningi hafði þetta að
segja:
„Ég held að óheiðarleiki sé ekki til í
fari Sigurjóns en hann getur verið
býsna harður í samningum og allt að
því nánasarlegur. Sumir ganga svo
langt að kalla hann svíðing og eru
ósáttir við gerðir hans. En hann er
íjarri því að vera ósannindamaður.
Málið er einfaldlega það að Siguijón
fer eins langt og hann kemst í við-
skiptum og nýtir sér hverja einustu
smugu.“
Artnar bætti við: „Sigurjón er mjög
heillandi persónuleiki. Éghefrættvið
fólk sem fmnst hann vera ofboðslega
töff í viðskiptum en sama fólk lýsir
honum einnig sem afskaplega við-
kunnalegum."
Jóhann J. Ólafsson, sem sæti á í
stjóm íslenska Útvarpsfélagsins,
segir Sigurjón mjög faglegan í allri
umræðu um félagið og taki arðsemis-
sjónarmið fram yfir öll önnur. „Sigur-
jón er líka óháður öllum kunningja-,
klíku- og flokkatengslum sem em svo
áberandi í viðskiptalífinu hér. Hann
kemur alveg óbundinn að Stöð 2, þarf
ekki að taka tillit til annarra hagsmuna
en félagsins og sinna eigin. Það þyrfti
að vera meira af slíku í íslensku við-
skiptalífi. “
Lárus Ýmir segir Sigurjón bæði vel
gefinn og skemmtilegan og hann sé
blessunarlega laus við þann rembing
Dugnaður og ráðdeildarsemi vom
og em tvö af aðalsmerkjum Sigur-
jóns Sighvatssonar. Hann setur vel-
gengni ofar öllu og gerir allt til að ná
settu markmiði.
sem stundum verður vart gangi
mönnum vel. „Velgengnin hefur haft
mjög lítil áhrif á hann persónulega.
Hann er aldrei með neinn gorgeir en
hann veit hvað hann getur. Þá er hann
mjög varkár og veður aldrei í verkefni
öðruvísi en skoða allar hliðar málsins
vandlega áður. Þannig hefur hann alla
tíð verið, alltaf haft sitt á þurru.“
VERKSVIT
Hér á undan var minnst á listrænt
innsæi en innsæi Sigurjóns virðist
einnig af öðrum toga: „Styrkur Sigur-
jóns í kvikmyndabransanum felst
meðal annars í því að koma auga á
hæfileikaríkt fólk áður en það er í
nokkurri aðstöðu til að gera kröfur.
Þannig fær hann mest með minnstum
tilkostnaði.“
Ara Kristinssyni kvikmyndatöku-
manni verður tíðrætt um eljusemi
Sigurjóns sem fær marga til að gapa
hreinlega af undrun. En hann bætir
við að reynslan úr skóla og vinnu hér
heima hafi haft heilmikið að segja
þegar Sigurjón var fluttur vestur um
haf. „Þessi reynsla skapaði honum
ákveðið forskot meðal samferða-
manna hans í kvikmynda- og leik-
stjóranámi í Kalifomíu. Sigurjón var
búinn að vera í hljómsveitastússi, afla
sér reynslu í viðskiptum með rekstri
fyrirtækis og ná sér í ágæta menntun.
Þessir þættir gerðu það að verkum að
hann hafði mun meira verksvit en ég
hygg að skólafélagar hans vestra hafi
getað státað af. Hann var vanur hóp-
vinnu og skipulagi og náði því fljótt
forystu í skólanum.“
En velgengnin á, eins og ávallt,
sínar miður björtu hliðar. Á fyrstu ár-
um Propaganda Films vann Sigurjón
eins og hann ætti lífið að leysa, vann
hreinlega yfir sig með 80-90 stunda
vinnuviku. Þegar frá leið fór vinnan
og ábyrgðin af að eiga og reka fyrir-
tæki að taka sinn toll. Hjá Siguijóni
kristallaðist vinnuálagið í fyrirbæri
sem mjög er til umræðu í hinum vest-
ræna heimi í dag — síþreytu.
„Siguijón setur velgengni ofar öllu
og rær öllum árum að ná settu mark-
miði. Um tíma gekk hann mjög nærri
sér með vinnu og það bitnaði mjög á
honum og hans einkalífi. Sú spuming
kom upp í huga þeirra, sem til Sigur-
jóns þekkja, hvort hann væri ekki að
færa of miklar fómir á altari velgengn-
innar. Þessar áhyggjur fengu byr
undir báða vængi fyrir nokkrum ámm
en þá varð hann hálf heilsulaus. Hann
þjáðist af síþreytu og var frekar illa
haldinn. Hann leitaði víða eftir hjálp
og komu óhefðbundar lækningaað-
ferðir þar nokkuð við sögu. Honum
virðist hafa orðið vel ágengt og fundið
ákveðið jafiivægi á nýjan leiki. Sigur-
jóni hefur tekist að nýta krafta sína á
skynsamlegri hátt en áður og
blómstrar nú sem aldrei fyrr. Enda
einn eftirsóttasti kvikmyndaframleið-
andi Hollywood í dag.“
50