Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.11.1997, Blaðsíða 23

Frjáls verslun - 01.11.1997, Blaðsíða 23
HVERRA MANNA? Jóhannes Jónsson fæddist í Reykjavík 31. ágúst árið 1940.10. maí þetta sama ár gekk erlendur her á land í Reykjavík og margir telja það marka upphaf ferðar ís- lendinga inn í nútímann. Jóhannes er sonur Jón Elíasar Eyjólfs- sonar, verslunarstjóra hjá Sláturfélagi Suðurlands, og konu hans, Kristínar Fanneyjar Jóhannesdóttur. Foreldrar Jó- hannesar eru báðir fæddir í Reykjavík en ættir þeirra beggja liggja út í sveitir lands- ins. Föðurættin kemur austan úr Mýrdal, frá Pétursey og Hafþórsstööum. Eyjólfur, afi Jóhannesar, var sjómaður frá Pétursey og Sigurður, langafi hans, bóndi þar. Móðurætt Jóhannesar er hins vegar austan úr Holtum. Jóhannes, móðurafi hans, og Þórður langafi voru báðir frá Eg- ilsstöðum í Villingaholtshreppi en Sigríð- ur móðuramma var frá Efraseli í Stokks- eyrarhreppi. Jóhannes á eina systur. Hún heitir Ragnheiöur Ester Jónsdóttir og er gift Ein- ari Vilhjálmssyni rafeindavirkja. Jóhannes giftist Ásu Karenu Ásgeirs- dóttur 19. maí 1962. Ása er dóttir Ás- geirs Ó. Matthíassonar, blikksmiðs frá Akureyri, og Þorgeröar Magnúsdóttur sem var ættuö austan af fjörðum. Börn Jóhannesar og Ásu eru: Kristín lögfræðingur, f. 1963, gift Jóni Garðari Ögmundssyni rafvirkja. Þau búa í Danmörku. Jón Ásgeir, f. 1968, rekur Bónus ásamt föður sínum. Hann er stúdent frá VÍ og er kvæntur Lindu Margréti Stefáns- dóttur Ijósmóður. segja nei að minnsta kosti 12 sinnum. Það var erfitt að ræða þessi mál því mikil tor- tryggni var í gangi milli samkeppnisaðila eins og gengur. Það var Ragnar Tómasson, lögfræðingur og kunningi okkar, sem fékk þessa hugmynd og gafst ekki upp fyrr en hann fékk okkur til að setjast niður.“ Árið áður, 1991 höfðu Bónus-feðgar stofnað verslunina 10-11 í samstarfi við Eirík Sigurðsson. Þeir seldu síðan hlut sinn í 10-11 tveimur árum síðar og á Eiríkur nú einn 10-11 sem kunnugt er. „Okkar samstarf við 10-11 byggðist á því að þarna er um að ræða þægindaverslun sem er opin mjög lengi og keppir þar af leiðandi ekki við okkur i verði. Helstu rökin fyrir því að selja hlutinn í Bónus voru auðvitað að draga úr áhættu með því að hafa ekki öll eggin í sömu körfu. Önnur rök fólust í hagkvæmari innkaupum en um þau stofnuðum við Baug, sameiginlegt innkaupafyrirtæki. Vörum í verslanirnar er ekið út á nóttunni svo þær bíða hér þegar við mætum á morgnana. Það er gríðarlegt hagræði af því að þurfa ekki að vera að taka á móti vörum allan daginn með tilheyr- andi pappírsflóði." ÓTTUÐUST UM ÍMYNDINA „I dag er magnið í innkaupum lykillinn að velgengni á markaðnum og þann lykil höfúm við eignast með Baug. Baugur er skilgetið afkvæmi þessa samstarfs okkar. Það er ekkert launungarmál að við óttuðumst um orðstír okkar og að ímynd okk- ar myndi bíða tjón við að selja til Hofs. Margir virtust óttast að við þessa breytingu hækkaði allt verð í Bónus á einni nóttu og fulltrúi neytenda, Jóhannes Gunnarsson, lýsti þungum áhyggjum af málinu. Menn hafa fyrir löngu séð að þessar áhyggjur voru ástæðulausar. Það fóru alls konar sögur af stað, t.d. að við hefðum neyðst til að selja, verið komn- ir að fótum fram og Sparisjóðurinn hefði knúið okkur til þess en þetta var allt þvætting- ur.“ Hvíldi mikil leynd yfir þessum samningaviðræðum? Já, það gerði það allt þangað til daginn sem þetta var tilkynnt. Bræðurnir, Sigurð- ur Gísli og Jón Pálmasynir voru þeir sem við ræddum við en aðrir voru ekki aðilar að þessum viðræðum og það voru margir innan beggja fyrirtækjanna sem voru á mótí þessum ráðagerðum. Það var hinsvegar tekin sú stefna allt frá upphafi að hafa engan samgang milli fyrirtækjanna. Við ræðumst lítið við og lítum á Hagkaup sem keppinaut og gagnkvæmt." Þeir feðgar eru sammála um að það hafi tekist fullkomlega að varðveita ímynd fyr- irtækisins og benda á að Bónus hafi aldrei verið eins vinsæll og nú. I hinni árlegu vin- sældakönnun Frjálsrar verslunar, sem var birt í febrúar 1997, var Bónus í efsta sætí, sjónarmun á undan Hagkaup. „Við höfum lækkað útgjöld heimilanna til matarinnkaupa úr 22-23% niður í 15-16% sem lilutfall af tekjum heimilanna. Sem dæmi má taka að við stefnum að því að selja Gæðahirslur á góðu verði. Fagleg ráðgjöf og þjónusta. ® ?Oínasmiöjan Verslun Háteigsvegi 7 • Sími 511 1100 Verksmiðja Flatahrauni 13 • Sími 555 6100 23
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.