Fregnir - 01.12.1991, Blaðsíða 2

Fregnir - 01.12.1991, Blaðsíða 2
-2- NORRÆN SAMVINNA : starfsemi NORDINFO &rið 1991 Ný stjóm Um næstu áramót lýkur stjórnartimabili því sem staðið hefur sl. þrjú ár. Fram undan eru ýmsar breytingar á stjórn og starfi NORDINFO elns og sagt var frá í 1. tbl. Fregna á þessu ári. Nú er komið að þvi að skipa nýja stjórn og verða stjórnarmenn framvegis 9 i stað 14, tveir frá hverju landi nema einn frá íslandi. Engir varamenn verða skipaðir nema fýrir íslendinginn. Stjórnsýsluembætti bókasafnsmála áttu að skila tillögum um þrjú nöfn til norrænu menningarmálanefndarinnar sem síðan velur úr þeim og mælir með til embættismannanefndarinnar hvernig stjórnin verði skipuð. Nú elga fulltúar notenda að vera með en meiri hlutinn verður þó úr bókasafna- og upplýsingageiranum. Óliklegt er að embættismannanefndin skipi stjórnina fyrr en á fyrstu mánuðum næsta árs. Framkvæmdastjóri NORDINFO hvatti eindregið til þess að ekki yrði skipt um alla stjórnarmenn og því hafa víst allir þeir sem sæti áttu i framkvæmdastjórninni verið tilnefndir áfram hver í sínu landi. Á sama tíma er nefnd á vegum Norðurlandaráðs (FIN-FORSK) með skurðarhnífinn á lofti og hefur kannað starfsemi fjölda norrænna stofnana og nefnda á sviði rannnsókna og menntamála i því skyni á fækka þeim og færa fjármagn t.d. til norræna kvikmyndasjóðsins. Liklegt er þó að athugunin taki svo langan tíma að NORDINFO starfl eftir nýja fyrirkomulaginu næsta stjórnartímabil (3 ár). Stuðningshópurinn (26 manns) sem stofnaður var í jan. 1991 hefur reynst hinn besti bakhjarl. Undirrituð hefur gjarnan haft samband við einstaklinga þar fyrir og eftir fundi og í kringum heimsókn Maurice Line og allir hafa þeir fengið skýrslu um fundina jafnóðum. Vonandi hefur það orðið til þess að bókavörðum finnst starfsemi NORDINFO ekkl eins fjarlæg og ella væri. Afleiðingar breyttra starfshátta og helstu verkefni Nú hafa verið samdar nýjar starfsreglur. Framvegis er ætlast til að NORDINFO sinni einkum stærri þróunarverkefnum sem stjórnin eigi frumkvæði að. Ekkert kemur þó í veg fyrir að einstaklingar komi tillögum sínum á framfæri og þeim fylgja engar skuldbindingar, t.d. um verkefnisstjórn. Stærsta nýja verkefnið á vegum NORDINFO er um svokallað norrænt SR-net og er það undir stjórn Liv Holm hjá RBT í Noregi. Þetta er umfangsmlkið og fjárfrekt verkefni og tengjast því margir aðilar. Andrea Jóhannsdóttir er i vinnuhópi um verkefnið en Island á ekki fulltrúa i stjórn þess. ISO hefur samþykkt staðla um hvernig millisafnalán (ILL) og leit og yflrfærsla (SR= search and retrieve) geta farið fram milli tveggja tölvuvæddra bókasafnskerfa. Með því að taka þessa staðla upp geta notendur norrænu kerfanna notað gagnabrunna í öðrum kerfum eins og þeir væru þeirra eigin. Verkefnið stuðlar einnig að útbreiðslu þekkingar á OSI-stöðlum á Norðurlöndum.

x

Fregnir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fregnir
https://timarit.is/publication/283

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.