Fregnir - 01.12.1991, Blaðsíða 10

Fregnir - 01.12.1991, Blaðsíða 10
-10- NÁMSTEFNA í KAUPMANNAHÖFN Dagana 7.-9. júní 1991 sóttu undirritaðar námstefnu á Schæffergárden í Kaupmannahöfn. Yfirskrift hennar var Cultural heritage and humanities research : problems and possibilities in the light of new technology (Menningararfurinn og rannsóknir í hugvísindum : vandamál og möguleikar í ljósi nýrrar tækni). Námstefnan var haldin af NORDINFO i samvinnu við British Library Research and Development Department og var sú fimmta í röð svonefndra ensk-norrænna námstefna. Námstefnan var haldin i framhaldi af rannsókn Harriet Lönnqvist: Humanister söker information eller "Mötet med den litauiske skoputsaren" : intervjuundersökning bland humanistiska forskare i Norden. Esbo : NORD, 1988. (NORDINFO-publikation : 13) og hringborðsráðstefnu NORDINFO um ástand upplýsingamiðlunar í hugvísindagreinum, sem haldin var í Kaupmannahafnarháskóla 7.-8. des. 1988. Þá ráðstefnu sóttu þeir Þorleifur Jónsson og Kristján Búason og birtist greinargerð Kristjáns, Upplýsingamiðlun í hugvísindum og þjónusta rannsóknarbókasafna, sem fylgirit með Fréttabréíl Háskóla íslands 4. tbl. 11. árg. apríl 1989. Þátttakendur voru flestir frá skjala- og minjasöfnum eða sérefnisdeildum rannsóknarsafna, frá rannsóknastofnunum i upplýsingafræðum hugvísinda svo og nokkrír fulltrúar fræðimanna. Námstefnan fór fram á ensku og voru helstu þemu hennar: Humanities information research, Multimedia facilities for the humanities, Information technology and humanities information : with special reference to teaching, Information technology and humanities information : the user's perspective, Cooperation in humanities information, Access to databases. Fluttir voru tveir til þrir fyrirlestrar um hvert þema og gefinn kostur á umræðum eftir hvern fyrirlestur. Um fyrsta þemað ræddu þeir Paul Sturges frá Englandi og Jostein H. Hauge frá Noregi og sögðu frá sínum stofnunum, þ.e. Humanities Information Review Panel og NAVs EDB senter for humanistísk forskning, en þær sinna m.a. rannsóknum og ráðgjöf á sviði upplýsingaþjónustu og hagnýtingu nýrra tæknimiðla í þágu rannsókna í hugvísindum. í öðru þema var fjallað um hagnýtingu íjöltækni við varðveislu og skráningu viðkvæmra gagna og sagt frá Archivet för ljud och bild í Stokkhólmi, Þjóðminjasafninu í Kaupmannahöfn og Þjóðbókasafni Norðmanna i Mo i Rana en á þessum stöðum er unnið með texta- og myndagagnagrunna og skrár þar sem tengdar eru saman litskyggnur, skráningartexti, uppdráttur o. fl. Nýjustu tækni er einnig beítt við varðveislu hins talaða orðs. Hér var jafnframt minnt á að huga þurfl að því að halda við "gömlum" tækjum svo unnt sé að skoða og vinna með efni sem geymt er á eldri miðlum svo sem segluböndum, stálþráðum o. fl. í þriðja þema var hugað að nýtingu nýrra tæknimiðla í kennslu og þar m.a. sagt frá notkun "interaktiv video" í tungumálakennslu í Noregi og tilraunaverkefni í breskum háskólum þar sem notuð var tölvu- og fjölmiðlatækni við kennslu í húmanískum greinum.

x

Fregnir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fregnir
https://timarit.is/publication/283

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.