Alþýðublaðið - 20.10.1970, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 20.10.1970, Blaðsíða 3
Þriðj’udagur 20. október 1970 3 □ Jóna Jónsdóttir, viltu ganga að eiga Jón Jónsson og taka að 'þér eftirfarandi hlutverk: l ' Vinna kauplaust á heimili Jóns Jónssonar allt iþitt Jíf, eða vinna úti og fá iþá lœgri laun en Jón Jónsson og vinir hans. 5 t t Að taka því með iþolinmæði, að koma börnunum iþínum ekki á barnaheimili nema Jón Jóns- son deyi ieða skilji við þig. Ljá .atkvæði þitt til að koma Jóni Jónssyni eða vinum hans á þing eða í aðrar þýðingar- miklar stöður (Iþar taka iþeir fé lagar ákvarðanir um iþlg og all- ar aðrar konur). Afsala þér .öllum almennum frídögum og ’tækifærum til að . starfa að eigin áihugamálum. I Vera manni þínum undirgef- in? JÁ! Þannig hljóðar textinn á einu margra plakata, sem héngu uppi í Norræna húsinu er rauðsokk- ur héldu þar fund í gærkvöldi fyr.ir troðfullu húsi, þrátt fyrir Churehillana í sjónvarpinu. ] ' Fundargestir voru á öllum aldri, og af báðum kynjum, en eitt meginefni fundarins var, auk þess að kynna hreyfinguna, að fá fólk til að skrifa sig niður í starfshópa eftir áhugamálum, Sigurður I. Sigurðsson, ræðismaður, láiinn Seljum í dag og næstu daga jólaskó fyrir felpur í miklu úrvali Verð frá ltr. 198,— til kr. 327,— parið. Takmarkaðar birgðir. Kaupið strax. Póstsendum samdægurs. SKÓBÚÐ AUSTURBÆJAR Laugavegi 100 — Sími 19290. en þeir einir eru félagar í hreyf ingunn-i, sem taka þátt í starf- inu. Áður hafði verið sett á lagg- irnar svonefnd „miðstöð', skipuð þrem konum, en tilgangur henn ar er fyrst og fremst sá að hjálpa félögum til að finna starfshópa við sitt hæfi, og hjálpa starfshópnum við að skapa sér og finna sitt eigið starfsform. Ekki er ætlunin, að sérstök stjórn verði fyrir sam- tökunum, þar sem stjórn eigi að 'liggja hjá félöguim sjálfum en ekki fámennum hóp stjórn- enda. Milli ræðuhalda var kaffihlé, þar sem menn og konur gátu dregið sig saman, talað saman um það sem hafði verið rætt og fundið hópa við sitt hæfi. Sleg- ið hafði verið upp víðri grind til að móta hópa eftir, svo sem um félagsmál, atvinnumál, barna gæzlu, barnaheimilamál og upp eldismál. Á fundiinum var safnað frjáls um íramlögum í rauða sokka, og söfnuðust yfir 5.000 krónur. Á næstunni verður unnið að því að koma föstu formi á starfs hópana og finna þeim starfs- grundvöll. — RauSsokkur hlýSa á umræSur um stöSu konunnar í þjóSfélaginu. LÁTINN er í Reykjavík Sig- urður B. Sigurðsson fyrrum stórkaupmaður og laðalræðis- maður Breta á íslandi 72 ára. að aldri. Sigurður var einn af aðaleigendum stórhýsisins Edin- borg við Hafnarstræti, sem Se'ðlabanikinn keypti á sínum tíma. Sigurður var umsvifa- mikill athiafnamaður. Hann var vararæðismaður Brasilíu hér á landi 1030 — 1933. Settur ræð- ismaður Brleta á íslandi í jan. 1933 og skipaður 1934, og sett- ur aðalræðismaður Breta 1938, 1939, 1944 - 1947 og 1950. - \ 1 STÓR - ÚTSALA A KVENSKÓM KVENSKÓR í fjölbreyttu úrvali seldir frá kr. 495,— parið. — Allar stærðir. S K Ó B Ú Ð AUSTURBÆJÁR Laugavegi 103 (við HRenrnitorgj 11

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.