Helgarpósturinn - 15.06.1995, Blaðsíða 2
Pósturinn
Útgefandi:
Míðill hf.
Ritstjóri:
GunnarSmári Egilsson
Framkvæmdastjóri:
Kristinn Albertsson
Markaðsstjóri:
Guðmundur Örn Jóhannsson
Auglýsingastjóri:
Örn Isleifsson
Setning og umbrot:
Morgunpósturinn
Filmuvinnsla og prentun:
Prentsmiðjan Oddi hf.
Leiðari
ARFRA
HVARFI
I HELGARPÓSTINUM í
dag er fjallað um hvarf Val-
geirs Víðissonar, en 19. júní
verður liðið ár frá því hann
hvarf sporlaust. (viðtali við
föður Valgeirs, Víði Val-
geirsson, kemur fram sár
gremja hans gagnvart
rannsóknarlögreglunni og
er hún mjög skiljanleg. Frá
fyrsta degi virðist lítil
áhersla hafa verið lögð á
rannsókn málsins. Þrátt fyr-
ir margar vísbendingar um
að ekki væri allt með felldu
með hvarf Valgeirs fór aldr-
ei mikið fyrir rannsókn lög-
reglunnar á hvarfi hans.
I greininni um Valgeir
kemur fram að hann tengd-
ist fíkniefnaheiminum,
bæði sem neytandi og selj-
andi. Síðustu mánuðina
sem hann lifði virtist hann
hafa tapað öllum áttum.
Hann hafði ekki aðeins
gengið úr lögum við samfé-
lagið með afskiptum sínum
af fíkniefnum heldur virðist
hann einnig hafa gengið úr
lögum við aðra fíkniefna-
sala og -neytendur.
Við þennan lestur hlýtur
þeirri hugsun að skjóta upp
að í þessu kunni að leynast
ástæðan fyrir lítilfjörlegri
leit og rannsókn lögregl-
unnar. Að Valgeir hafi ein-
faldlega ekki verið merki-
legur pappír í augum lög-
reglunnar og því vart virði
jTTÍkillar^eftirgFennslunar^^
Pósturmn
Vesturgötu 2, Reykjavik
sími 552-2211
fax 552-2311
Bein númer:
Ritstjórn: 552-4666
símbréf: 552-2243
Tæknideild: 552-4777
Auglýsingadeild: 552-4888
símbréf: 552-2241
Dreifing: 552-4999
Fréttaskotið: 552-1900
Smáauglýsingar: 552-5577
HelgarPósturinn kostar 199 kr.
MánudagsPósturinn kostar 99 kr.
Askrift er 999 kr. á mánuði
ef greitt er með greiðslukorti
en 1.100 kr. annars.
Unpleid/nidurleid
A UPPLEHD
Björk. Platan hennar
er komin út og gagn-
rýnendur kepp-
ast við að
hlaða hana
lofi. Björk hefur verið
á stöðugri uppleið og
ef heldur áfram sem
horfir endar hún
öðru sólkerfi.
Ingvar Viktorsson, kratahöfð-
ingi í Hafnarfirði, fitnar eins og
púkinn á fjósbitanum eftir því
sem ógæfa sjálfstæðismanna
eykst. Nú er meirihlutinn fallinn
og allt bendir til þess að Ingvar
verði aftur bæjarstjóri.
Ásgeir Elíasson, lands-
liðsþjálfari, var í vondum
málum eftir háðulega
byrjun landsliðsins í
Evrópukeppninni,
góð úrslit síðustu tveggja
leikja björguðum honum
því að segja af sér.
A IUIÐURLEIÐ
Einar Oddur Kristjáns-
son var brattur fyrir kosn-
ingar og reif kjaft við forystu
flokks síns. í dag er Bjargvættur-
inn hins vegar ljúfur sem lamb
og gerir eins og honum er sagt
að gera.
Jóhann G. Bergþórsson
hefur reyndar verið jafnt og þétt
á niðurleið undanfarin ár en með
hinni óforskömmuðu eiginhags-
munahyggju, sem hann sýndi
með því að halda til streitu
kröfu sinni um stöðu bæjar-
verkfræðings Hafnarfjarðar,
tók hann hyldjúpa dýfu.
Ólafur Skúlason,
biskup, skeiðaði fram
ritvöllinn í vikunni og
skammaði Knút Bruun, sókn-
arnefndarmann í Hveragerði, fyr-
ir heift. Hvað er orðið um boð-
skap frelsarans að bjóða hinn
vangann?
Vér mótmælum allir þessari ákvörðun
Sameinuðu þjóðanna að gera 17. júní
að degi eyðimerkurinnar.
Hva, viltu ekki fá loksins
einn rigningarlausan
þjóðhátíðardag?
gerast
finnst -
góða. Eg
að krakkar
minna sæl-SFk i
velja i
Poxins
jgP^hafi
skiptið.
myndir því þeir bara vinna þær
af þeim sem þora að spila við þá.
Aðspurðir segja strákarnir að
foreldrar þeirra séu ekki mjög
kátir með poxið, en bæta því við
að það sé bara skemmtilegra
þegar fullorðna fólkið er á móti
þessu. „Okkur finnst Poxið frá-
bært, maður þarf bara að læra
að sætta sig við að tapa stund-
um.“
HEILLAÐIST AF
LEIKIUUM A HAWAI
Stefán Guðjónsson rekur fyrir-
tækið Hafey sem framleiðir Pox á
íslandi. Hann kynntist Poxinu á
Hawai, þaðan sem leikurinn er
upprunninn.
„Mér finnst mjög leiðinlegt ef
fólk dregur upp neikvæða mynd
af Poxinu vegna þess að Pox er
eins og hver önnur íþrótt eða
spil; þú þarft að einbeita þér, þú
þarft þjálfun til að verða góður
og eins og með allar íþróttir þá
gengur leikurinn út á að vinna.
Þú vinnur með því að snúa
myndunum við en það er undir
krökkunum sjálfum komið hvort
þeir eignist myndir hvors annars
eða ekki.
í staðinn fyrir að skipta, eins
og gert er með körfuboltamynd-
ir, er keppt um myndirnar. Það
er alls ekki hægt að kalla þetta
fjárhættuspil, þetta er einfald-
lega mjög skemmtilegur leikur
sem snýst í kringum söfnun
myndanna. í öllum íþróttagrein-
um er eðlilegast að krakkar á
svipuðum aldri spili saman; Pox-
ið er þar engin undantekning.
Eldri krakkar tudda á þeim yngri
í fótbolta og á sama hátt hafa litl-
ir krakkar tapað fyrir þeim eldri í
Poxinu. Það er auðvitað mjög
ljótt að heyra þessar sögur. Við
hvetjum krakkana til að keppa
við jafnaldra sína og virða þá
sem yngri eru.“ ■
Nýtt æöi meðal ungdómsins
Poxider
bríáladan
Seg/r einn sjoppueigandi
„Krakkarnir eru hér öllum
stundum, það eru allir vitlausir í
þessar myndir. Poxið er að gera
mann brjálaðan", segir Helga 01-
geirsdóttir verslunarstjóri Rima-
vals og móðir ungs Poxara.
Pox er nýjasta æðið
meðal barna á aldr-
inum 7-14 ára og er
enginn maður
með mönnum
nema að
Pox-myndir
spila leikinn sem
tengist myndun-
um en hann gengur
út á að vinna myndir
laf andstæðingnum.
Hver leikmaður safnar
myndum og leggur í púkk þær
myndir sem hann vill skipta. Síð-
an er keppt. Svokölluð sleggja er
notuð til að kasta á myndabunk-
ann og sá sem nær að snúa
myndum á rönguna má eiga þær.
Mjög skiptar skoðanir eru meðal
foreldra á leiknum.
„Þeir sem safna þessu hér eru
flestir á aldrinum 6-13 ára og það
sem mér finnst slæmt við þetta
er að eldri krakkarnir plata þá
yngri í græðgi sinni. Hugsunin í
þessu er ekki nógu góð, þetta ýt-
ir undir pókerspilamennsku og
þeir sem eru veikir fyrir geta
byrjað spilaferilinn á unga aldri
ef ekki er fylgst með krökkunum.
Mér, sem móður, er illa við
þetta," segir Helga.
POX í STAÐIIUIU FYRIR
IUAMMI
Sigrún Ólafsdóttir starfs-
maður í íshöllinni á Mel-
■ ekki sammála
„Þessi sjoppa
verið kölluð
Pox- sjoppa íslands
mikils áhuga
krakkanna sem
versla hér. Ég hef
þess vegna óhjá-
kvæmilega fylgst með
sem hefur
að
Yfir höfuð
mér Poxið vera af
hinu
held
borði minna
gæti núna því for-
eldrar þeirra leyfa
þeim oft að
milli þess og
í öllum leikjum eru
krakkar að vinna og
skiptis; ég á barn sem Poxar og
hef ekki orðið vör við að þetta
hafi haft neitt nema góð áhrif, í
það minnsta held ég að sonur
minn sé ekki að verða spilasjúk-
lingur.“
ÞEGAR MIKIÐ ER
LAGT UNDIR
Þorleifur Árni Björnsson og-
Andri Þór Ástráðsson eru tveir af
350 meðlimum Pox-klúbbs
Reykjavíkur og þeir eru yfir sig
hrifnir af leiknum.
„Þetta er mest spenn-
andi þegar maður tekur
mikla áhættu og leggur
háar upphæðir undir.
Ég hef mest lagt 75
á móti 75,“ seg-
en þar sem
myndapakki kostar
180 krónur fæst út að
um það bil 3.400 krónur
verið í pottinum í það
Að sögn Þorleifs tapaði vinur
hans nýlega 60 myndum og varð
ógeðslega fúll. Þá segir Þorleifur
að sumir strákar hafa keypt Pox
fyrir 8000 krónur en þeir bestu
þurfi hins vegar aldrei að kaupa
Lalli Jones
Stebbi bróðir og virðingin
Ég lærði að ropa þegar mér hans virðmgu og þess vegna ^við ey
Ég lærði að ropa þegar
sýndist þegar ég var sjö ára en
Stebbi bróðir kann það ekki enn.
Það sýnir kannski best muninn á
okkur bræðrunum. Hann heldur
því auðvitað fram að hann geti
það, en þegar ég mana hann til
að leika það eftir jarmar hann að
það sé fyrir neðan hans virðingu.
Sigga mágkona hefur hins vegar
sagt mér að hann sé enn þann
dag í dag að rembast við þetta í
tíma og ótíma en ekkert gangi.
Týpískt Stebbi. Hann notaði
þessa sömu átyllu þegar ég rak
upp minn fyrsta geðþóttaropa.
Þá var hann níu ára. Síðan þá
hefur allt verið fyrir neðan hans
virðingu sem hann hefur ekki
getað framkvæmt eða komist yf-
ir. Þangað til hann lærir það eða
kemst yfir það, það er að segja.
Stebbi kann ekki pelastikk þrátt
fyrir þrjú sumur á sjó. Þess
vegna eru hnýtingar fyrir neðan
3mgu og þess vegna
verður hann alltaf að kaupa nýj-
an spotta til að hafa í skottinu
hjá sér á tveggja mánaða fresti,
af því sá gamli er orðinn alltof
stuttur eftir nokkra drætti. Hann
þarf nefnilega alltaf að skera á
þetta endemis fyrirbæri sem
hann kallar hnút. Hann verður
líka sjóveikur um leið og hann
kemur á kæjann, þrátt fyrir þessi
þrjú sumur á sjónum. Þess
vegna er sjómannadagurinn,
Akraborgin og sjóstangaveiði
líka fyrir neðan hans virðingu.
Það var líka smáborgaralegt og
fyrir neðan hans virðingu að
byggja þangað til hann hélt að
hann hefði efni á því sjálfur og
keypti lóð. Nú er það aftur fyrir
neðan hans virðingu og helvíti
fínt að búa í blokk bara. GSM
símar voru fyrir neðan hans
virðingu þangað til fyrir viku síð-
an að svoleiðis apparat greri fast
eyrað á honum.
Sautjánda júní hátíðar-
höld voru líka langt fyr-
ir neðan hans virðingu.
Alveg þangað til í morg-
un. Þá sagði ég honum
hvernig ég fór að því að
græða tvöhundruðþús-
und kall á sautjándan-
um í fyrra. Ég keypti
fimm pulsur í einni búll-
unni, setti í kassa og
seldi aftur með fimmtíu-
prósent álagningu í
miðri þvögunni. Með
tómat, sinnepi og steiktum, það
er nokkuð seif bett í pulsubrans-
anum. Svo fór ég í næstu pulsu-
búllu og endurtók leikinn og svo
næstu og svo næstu. Ég tíndi líka
upp heilu hrúgurnar af fánum og
rellum sem minnstu krakkakvik-
indin höfðu misst útúr lúkunum
á sér og seldi foreldrum þeirra
draslið aftur á uppsprengdu
verði. Liðið stökk á mig og bók-
staflega tróð uppá mig seðlun-
um. Allt til að losna við gaulið í
rellu- og fánalausum krógunum,
sem týndu svo öllu aftur um leið.
En þetta var auðvitað bara pín-
öts. Ég fór ekkert að græða að
ráði fyrr en undir kvöldið. Þá var
ég líka farinn að selja allt aðra
hluti. Alveg ótrúlegt hvað þessir
krakkar eiga af seðl-
um nú orðið. Nema
hvað, ég sagði
Stebba frá þessu. Og
ég sagðist geta
redddað honum
slatta af réttu heim-
ilisafurðunum á
heildsöluprís fyrir
örlitla þóknun. Hann
ætlar í bæinn á laug-
ardaginn, eins og ég
bjóst við. Og eins og
ég bjóst við ætlar
hann að taka króg-
ana með til að auka á söluna. Og
eins og við reiknuðum með, þá
getum við Sigga mágkona drukk-
ið saman þjóðhátíðarkaffi á með-
an og haft það svolítið huggu-
legt, ropað svolítið og svona. Og
bara gert svona allskonar hluti
sem mér skilst á Siggu að séu fyr-
ir neðan virðingu Stebba...
-LALLIJONES