Helgarpósturinn - 16.01.1997, Blaðsíða 13

Helgarpósturinn - 16.01.1997, Blaðsíða 13
FIMMTUDAGUR16. JANÚAR1997 4 v m JgÆfom 13 Pakkað skynsamlega fyrir þriggja daga ráðstefnu- og veisluferð. 702 milljónir á ferðalögum árið 2000 lheimsferðamálaráðið — WTO — hefur birt spá um þróun í ferðaþjón- ustu fyrir næstu ár. Þar kem- ur fram að árið 2000 muni um 702 milljónir manna vera á ferðalögum víðs vegar um heiminn. Þetta jafngildir því að allir Bandaríkjamenn, Jap- anir, Þjóðverjar og nær helmingur Kínverja verði á ferðinni. Þetta er 8% meira en áður var spáð. Einnig kemur fram að árið 2010 muni tekjur af ferða- þjónustu verða 1,5 triiljónir Bandaríkjadollara. Spáð er mestri aukningu á næsta ára- tug til Kyrrahafslanda og Austur-Asíu en Evrópa muni þó halda sínu. Vinna í beinum eða óbein- um tengslum við ferðaþjón- ustu skapar fleiri störf en nokkur önnur atvinnugrein í heimi og er sú sem hraðast hefur vaxið. WTO metur það svo að Kína, Japan, Nýja-Sjáland og Víetnam muni tiltölulega efl- ast hvað mest en mörg önn- ur lönd þessa svæðis fá einn- ig yfir sig stóraukinn ferða- mannastraum. Hvað varðar Evrópu eru óbreyttar spár um að fjölg- unin verði mest í kommún- istalöndunum fyrrverandi. Þar hafa Tékkland og Ung- verjaland verið einna efst á blaði en fleiri bætast við, svo fremi þeim takist að byggja upp þjónustu við ferðamenn sem vanir eru þægindum Vestur-Evrópu. Hverju á að pakka þegar q farið er í stuttar ferðir C Kona um fertugt sem starf- ar í viðskiptalífinu hafði samband við ferðasíðu og kvaðst þurfa að fara á ráð- stefnu í Finnlandi í apríl. Hún væri nýgræðingur í þessum málum og kvaðst ekki átta sig á hvað hún þyrfti að taka með sér. Einnig kvartaði hún undan því að henni hætti jafnan til að taka alltof mikið þegar hún færi í ferðalög og er áreiðan- lega ekki ein um það. Eftir að hafa skoðað dag- skrána þar sem fundir áttu að standa í tvo og hálfan dag, fyr- irhuguð var þriggja tíma skoð- unarferð, boðið í eina síðdegis- drykkju við komuna og tvo kvöldverði var niðurstaðan nokkurn veginn þessi: í fyrsta lagi er vert að benda á að með því að vefja plasti ut- an um fatnað er lítil hætta á að hann krumpist. Föt til að vera í á ráðstefn- unni: • pils og/eða buxnadragt — haft skyldi í huga að á slíkum fundum eru þátttakendur und- Bach-hátíð í Berlín I sumar Iár verða Bach-dagarnir í Berlín haldnir 5.-13. júlí og auk þess sem þar verða flutt helstu verk Johanns Sebasti- ans Bach verða fluttir fyrir- lestrar m.a. um áhrif tónlistar hans á önnur tónskáld. Hljóm- leikarnir verða á ýmsum stöð- um í borginni, m.a. í Tónlistar- safninu, Charlottenborgarhöll og Sansouci-friðarkirkjunni. Upplýsingar um hátíðina og dagskrá hennar svo og um hentuga hóteigistingu er að fá hjá Bach Tage Berlin, Kaiser- damm 31, D-14057 Berlín, fax: 49 30 19 307. Fyrir þá sem eru á ferð í Þýskalandi alveg á næstunni mætti einnig vekja athygli á að í Bad Berleburg verður þess minnst með fernum tón- leikum að þann 31. janúar nk. eru 200 ár liðin frá fæðingu Schuberts. Síðustu hljómleik- arnir eru 7. febrúar. Hotel Westfalischer Hof í Bad Berleburg býður þriggja nátta pakka þessa daga á verðinu frá 270 DM eða um 11.600 íkr. á mann. Innifalið auk gistingar er morgunverð- antekningarlaust á hótelum sem veita hraða þjónustu í að þvo og pressa • þrjár blússur í mismunandi litum • nokkrar slæður eða léttir treflar • sléttbotna skór • peysa eða jakki Fyrir síðdegisdrykkjuna • kjóll með léttum jakka • fínni skór Fyrir kvöldverðarboðin þarf sjaldnast að klæða sig eins mikið upp á og margir halda. Tillögur fyrir boðin tvö: • stutt eða hálfsítt pils og blússa • sami kjóll og í eftirmið- dagsboðinu og nú e.t.v. með litskrúðugu sjali. Þær konur sem geta borið hatta mættu setja hann upp í öðru hvoru kvöldboðanna Fyrir skoðunarferðina má svo velja eitthvað af því sem hefur verið upptalið. Þá er Ferðalög Jóhanna Kristjónsdóttir skrifar sjálfsagt að setja niður slopp/náttföt, sokka/sokka- buxur og undirfatnað en hvað hann varðar er minnt aftur á hótelþjónustuna. • Ekki skaðar að hafa áber- andi nælur, eyrnalokka eða armband í pússi sínu. • Síðast en ekki síst snyrti- vörur og sums staðar má fá slíkt í litlum pakkningum, t.d. á flugvöllum. Hárþurrka er oft- ast á hótelherbergjum en kannski ágætt að stinga niður krullujárni. Ef hárið er erfitt viðureignar er þjóðráð að vefja silkislæðu utan um koddaverið, áður en lagst er út af. • Ferðafötin sjálf eiga að vera þægileg og þrengja hvergi að líkamanum. Vanir ferða- menn taka af sér skóna í flugi þótt það sé ekki langt. Ágætt Tré ístað jólakorta Flugfélagið Cathay Pacific sendi engin jólakort fyrir síðustu jól, en undanfarin ár hafa 70 þúsund manns verið á kortalistanum. Þegar sár- móðgaðir fyrrverandi þiggj- endur grennsluðust fyrir um ástæðuna var þeim sagt að forsvarsmenn flugfélagsins hefðu ákveðið að leggja aukið fé til verndunar trjáa og skóg- lendis. Þar af leiðandi ætluðu þeir að verja sömu upphæð til þess 1996 og svaraði til kostn- aðar við jólakortasendingarn- ar. Það fylgdi ekki sögunni hvað mörg tré björguðust eða brögguðust vegna þessa. Cathay gaf jólakorta kostnað til trjáverndunar. leið- er að smeygja sér í sokka inni. Þetta er sem sagt lágmarksfatnaður en má blanda saman á ýmsa vegu. Með þessu í ætti taskan að vera mesta lagi 8 kíló. Nótt í Hong Kong frá 68 þúsund krónum þegar Bretar afhenda Kínverjum yfirráðin Ifréttum hérlendis var nýlega sagt frá því að gistihús í Reykjavík væru að verða full- bókuð á gamlárskvöld 1999 og væru það einkum útlendingar sem þar hefðu sýnt forsjálni og þennan mikla áhuga. En það er víðar mikið um að vera og ekki að- eins fyrir aldamót- in: í Hong Kong keppast ferða- málamenn nú við að undirbúa þann heimssögulega at- burð þegar Kín- verjar taka við stjórn Hong Kong af Bretum. Það er á þessu ári, nánar tiltekið 30. júní nk. Athöfnin hefst sá kínverski dreginn að húni. Ef menn skyldu nú íhuga að vera viðstaddir er rétt að taka fram að enn er hægt að fá hót- elherbergi í Hong Kong og stöku flugmiða, að því er tals- maður ferðamálaráðs Hong Kong segir. Flest hótel bjóða við sólsetur, krónprins Breta og forsætisráðherra Kína ann- ast afhendinguna með sögu- legu handtaki, að svo búnu verður breski fáninn dreginn niður af stjórnarbyggingum og Horft yfir til Hong Kong-eyju. upp á pakkaverð þessa daga ur, hálft fæði og miðar á eina tónleika. Sjö nátta gisting er frá 678 DM eða rösklega 29 þús. íkr. og virðist því fyrra boðið vera mun hagstæðara. Fcixnúmer hótelsins þar sem leita má nánari fróðleiks er 49-2751- 92490. Til lesenda Umsjónarmaöur ferðasíöu HP vonast eftir góöri og líflegri samvinnu viö lesendur. Hugmyndum og uppástungum er tekiö tveimur höndum og veröur fitjaö upp á ýmsu nýstárlegu þegar tímar líöa fram, bæði til fróö- leiks og skemmtunar. Lesendum er einnig boöið upp á að senda inn fyrirspurnir um hvaðeina sem lýtur aö ferðalögum. Merkiö umslögin Feröasiöa Helgarpóstsins, Borgartúni 27, 105 Reykjavík eöa sendiö á faxi í no. 552-2311. Nöfn og heimilisföng sendanda mega gjarnan fylgja. þótt vérðið hljómi ekki beinlín- is þesslega: Mandarin-hótel gefur kost á fimm nátta gist- ingu og kostar hver um 68 þús. íkr. Það virðist þó kostaboð miðað við Ritz Carlton þar sem nóttin kostar fimm sinnum meira eða um 340 þús. íkr. Það er tekið fram að þetta eru tveggja manna herbergi. Þá verða mörg skemmti- ferðaskip tekin á leigu til Hong Kong þessa daga til að anna eftirspurninni, sem er nú þeg- ar meiri en framboðið. Eva Pálsdóttir dvelur nú á eynni Krít í Miðjarðarhafi þar sem önnur hrynjandi er í lífi og starfi fólks en við eigum að venjast Ólífur og brauð á Krít Það er uppskerutími ólífunn- ar hér á stærsta barni Hell- eniku. Þær hanga svartar og fullþroskaðar á greinunum og sliga trén, sem bíða þolinmóð eftir mönnunum með prikin til að berja þær af. Allt snýst um ólífur þessa daga. Lífið er eins og ein stór kosningavaka því annar hver maður á ólífulund uppi á fjalli og allir fylgjast spenntir með verðinu á kílóinu af ólífum, lítranum af ólífuolíu. Ég, sem á engin ólífutré, kemst ekki hjá því að heyra nýjustu tölur á hverjum degi. Það er lærdómsgyðjan Aþena sem stendur fyrir öllu saman. Ólífutréð, tákn friðar og velferð- ar, var framlag hennar í keppni milli goðanna á Ólympusartindi um hvert þeirra gæti skapað mestu verðmætin fyrir hinn dauðlega mann. Aþena stóð uppi sem sigurvegari og fékk að launum stóru borgina á klettin- um við hafið nefnda eftir sér. Ólífutréð hefur alltaf síðan ver- Mannlíf Eva Pálsdóttir skrifar ið í miklum metum á þessum slóðum. Jafnvel svo að lög voru sett á sjöttu öld f.k. sem kváðu á um að hver sem staðinn yrði að verki við að höggva eitt slíkt niður skyldi tekinn af lífi. Af trénu, sem þekur nær því allt landslag á eyjunni, kemur ekki aðeins dýrmæt útflutnings- vara heldur mikilvægur hluti af mataræði Krítverja eins og ann- arra Grikkja. í þeirra huga eru ólífur og brauð það sem fiskur og kartöflur eru íslensku þjóð- inni. Eins og Kazantzakis legg- ur í munn sjálfum Zorba: „Ef ég hefði bara sett í mig nokkra brauðbita og ólífur myndi ég seg/a - Förum að sofa. Ég þarf ekki að fagna í kuöld. Olífur og brauð eru ekkert, er það nokkuð? Hverju geturðu svo sem búist við afþeimt“ Og nú fara allir sem vettlingi geta valdið upp á fjall, ef ekki til að tína sínar eigin, þá til að hjálpa vinum og ættingjum. Á kvöldin koma þeir heim, þreytt- ir en ánægðir, og safnast inn á vínveitingahúsin til að drekka rakí og borða ólífur, til að spila kotru og tala um ólífur. Sumir ganga með krukku í vasanum, ólífur í legi úr olíu og ediki, og bjóða af afrakstri dagsins. Jam- as, Aþena! Skál, Aþena, þér til heiðurs. Heitt bað og freyðivín á aðfangadag Jólaljósin voru jafnmörg á þessari eyju og ykkar en þau minntu heldur á skrautlega kjötkveðjuhátíð en heilög jól. Það var varla að ég heyrði minnst á jóla- eitt eða neitt og einn og einn jólasveinn í búðar- glugga var allt að því hlægileg- ur, eins og eins manns kröfu- ganga. Ég vissi að nú væri eyjan ísi- lagða eins og að búa sig undir að sökkva í sæ. Fólk hlypi búð „Ákvöldin koma þeir heim, þreyttir en ánægðir, og safnastinnávínveit- ingahúsin til að drekka rakí og borða ólífur, til að spila kotru og tala um ólífur.“ úr búð langt fram á kvöld og næði ekki andanum af tilhugs- uninni um allt sem þyrfti að gera áður en hátíðin skylli á. Hér hins vegar gekk lífið sinn vanagang. Ef ég spurði hvernig jólin væru haldin hátíðleg upp- skar ég áhugalausar axlayppt- ingar: „Bara. Fjölskyldan kemur saman. Við borðum mikið og drekkum mikið. Ég veit það ekki.“ íslendingnum í mér var ómögulegt að skilja að sjálf há- tíð ljóss og friðar nálgaðist þeg- ar sól skein í heiði og grundirn- ar greru og fólk gekk um salla- rólegt með hendur í vösum. Þeir selja að vísu innflutt greni- tré á torgunum en flestir láta sér nægja að hengja seríu á pálmatréð úti í garði. Engar tuttugu smákökusortir, engar rándýrar jólagjafir og enginn fer hamförum við að þrífa. Mig grunar að Krítverjar séu búnir að fá nóg af byltingum og blóð- ugum uppreisnum gegnum tíð- ina og þess vegna detti þeim ekki í hug að skapa sér Beirút á hverju ári í desember. Ég sætti mig við það. Heitt bað á að- fangadagskvöld, heil flaska af freyðivíni og súkkulaði í stað- inn fyrir ólífur var vel til þess fallið að slá á jólablúsinn sem herjaði á íslending að heiman.

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.