Alþýðublaðið - 27.03.1973, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 27.03.1973, Blaðsíða 1
Sjónvarpið Píanóleikarinn og gömlu góðu dagarnir Dixielandmúsik áranna 1920-30 lætur ætið vel i eyrum, a.m.k. lyftist á mönnum brúnin, þegar dixielandmúsikin hljóm- aði i sjónvarpssal s.l. laugardagskvöld. Mynd- in, sem á skerminum birtist, var einnig mjög svo i stil. Þarna voru á ferðinni 8 menn, sem lengi hafa spilað saman, aðallega sjálfum sér til ánægju og yndisauka. Einn var það sem vakti sérstaka athygli fyrir ,,að vera i stil”, og var það pianóleikari hljómsveit- arinnar. Reyndist hann vera Guðjón Einarsson, ljósmyndari Timans. ,,Já, þeir segja að það sé svakalegt að koma inn á eftir svona fjöri”, sagði Guðjón. „Við höfum gert dálitið að þvi að koma fram i einkasamkvæm- um, svona privat, en þetta var i fyrsta skipti, sem við komum fram opinberlega, þarna i Kvöldstundinni i sjón- varpinu.” Hljómsveitin hefur spilað i fimm ár og nú er allt útlit fyrir að hún hafi „slegið i gegn”. „Meðlimir hljómsveitar- innar eru allir klárir hljóðfæraleikarar,” sagði Guðjón, „en það sem við spilum er litið annað en standard dixielandmúsik, eins konar endurvakning á þvi, sem áður var”. All- ir eru þeir meðlimir Félags islenzkra hljóð- færaleikara. Stopp á Haukanes Togarinn Haukanes var dreginn til Hafnar- fjarðar í gær en þegar átti að fara inn á höfnina sagði hafnarstjóri stopp og gerði kröfur til þess að ástand skipsins yrði kannað. Fjölnir á 87 þús. Fjölnir var sleginn á kr, 87 þúsund á bókauppboði Knúts Bruun i Atthaga- salnum í gær. eftir harða baráttu. Fullt var út úr dyrum á uppboðinu þar sem 100 bókatitlar voru á skrá. íslands land- námabók, prentuð 1774 fór á 41 þúsund. Hundruð manna leita nú flugvélar Björns Páls- sonar TF-VOR, sem saknað er siðan um miðj- an dag i gær, með fimm manns innanborðs. Þeir sem með vélinni eru: Björn Pálsson flug- maður, Knútur óskarsson flugstjóri, Haukur Claes- sen flugvallastjóri, Olaf- ur Júliusson arkitekt og Hallgrimur Magnússon trésmiðameistari. Siðdegis i gær var vél- arinnar saknað norð- vestur af Langjökli, en óhagstætt veður var á þeim slóðum þá, og flug- vél frá Flugfélagi tslands hafði þá nýlega tilkynnt talsverða isingu. TF-VOR var hins vegar ekki búin fullkomnum gagnisingartækjum, en siðast þegar til hennar heyrðist var hún ekki komin inn i isinguna. Þá var kl. 14.51, og var vélin NV af Langjökli i 11 þús- und feta hæð og sagði flugstjórinn þá að allt væri i lagi og þeir færu hvað og hverju að lækka sig. Vélin lagði af stað frá Akureyri kl. 14,06 og áætl- aði að vera komin til Reykjavikur kl. 15,37. Þegar liðiö var fram yfir þann tima og ekki náðist samband við vélina, var lýst yfir óvissuástandi. Þegar eftirgrennslan leiddi ekkert i ljós, var lýst yfir hættuástandi og kl. 18 var lýst yfir neyðar- ástandi, þar sem flugvél- in hafði ekki eldsneyti lengur og var hvergi komin fram. Fyrir þann tima leituðu nokkrar flugvélar svæð- ið, en skilyrði til leitar voru slæm. Samkvæmt upplýsingum flugmanna á F1 vél, sem fóru yfir svæðið i gærkvöldi, virtist ófærð á leitarslóðunum, mikill snjór og slæmt skyggni. Sáu þeir ekkert til vel- arinnar, sem er blá og hvit að lit, og þvi samlit umhverfinu. Mikil leit mun halda áfram i dag, og mun hún verða einhver sú fjölmennasta, sem hingað til hefur verið gerð. Varnarliðið var beðið um aðstoð i gærdag, en radargeislar náðu ekki vélinni og voru þyrlur boðnar til aðstoðar, sem munu væntanlega taka . þátt i leitinni. Ráðstöfun gegn sprútt- sölum: Engin skilaboð „Nei, þvi iniöur, ég get ekki kallaö hann upp, en um leið og hann tilkynnir sig lausan get ég komið skilaboðum til hans,” sagöi simastúlka hjá Hreyfli þegar viö þurftum um helgina aö ná til til- tckins bilstjóra á stööinni. Þessi ráðstofun mun gcrð til að koma i veg fyrir að bilstjórar, sem grunaðir eru um sprútt- sölu, geti notað sima stöðvarinnar sem af- greiöslusima fyrir iðju sina — og frá klukkan átta á föstudagskvöidi til klukkan átta á mánu- dagsmorgni kalla sima- stúlkur Hreyfils ekki upp neinn bilstjóra þótt beðið sé um hann i sima, en koma liins vcgar skila- boðum til viðkomandi, ef hann sjáifur kallar upp stöðina. Venjan er sögð vera sú, iviðskiptum sem þessum, að fastakúnnar þessara bilstjóra láta stöðina kalla þá upp og biðja þá að koma að tilteknum húsunt. Bílstjórarnir svara um hæl þannig að simastúlkan hefur getaö sagt viðskiptavininum strax i simann hvort bil- stjórinn hafi fengið boðin og hvort hann sé fær um að koma. Hópur bilstjóra á stöð- inni mótmælti þessari meintu misnotkun á simaþjónustu stöðvarinn- ar, og sagði að um helgar hefðu þessir bilstjórar simaþjónustu stöðvarinn- ar undirlagða undir „aukaviðskipti” sin. alþýdu Þriðjudagur 27. marz 1973 JJJ SALAN KANNSKE (VID MINNI (FYRSTU LOTU „Mjólkurverkfall hús- mæðra” virtist ekki hafa mikil áhrif á söluna i mjólkurbúðum i Reykjavik i gær. Alþýðublaöiö hafði samband við tvær mjólkur- búðir, eftir lokun I gær- kvöldi, og fékk á báðum stöðum sömu svörin. „Salan var svipuö og venjulega, þegar komið er undir mánaðamót, en kannski ivið minni”. — Sparnaðarvikan hófst samt i gær, og hvað sem reynslan á eftir að segja um sölu mjólkur og kjöts á næstunni. Þá mættu reyk- viskar húsmæður i hundraðatali á Alþingi og Austurvöll til að mótmæla veröhækkunum á land- búnaðarafurðum. Við segj- um itarlega frá þvi á bak- siðu. TF-VOR EKKI BIÍIN FULLKOMNUM GAGN- (SINGARTÆKJUM =

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.