Alþýðublaðið - 22.05.1974, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 22.05.1974, Blaðsíða 1
,,Það verður að vekja konuna til vit- undar um skyldur hennar i þjóðfélag- inu”. OPNA Hvað segir stýrimaður O-flokksins um kosning- arnar núna >3 HVAÐ ER AÐ GERAST í ÁHALDAHÚSINU? Undanfarið hefur farið fram rannsókn á rekstri Áhaldahúss Reykjavikur- borgar. Tekur þessi rannsókn til efniskaupa og sölu og varðar veru- legum fjárhæðum, sem þarfnast nánari skyringa. Áhaldahúsið er umfangsmikið fyrirtæki, sem m.a. annast viðhald á hús- eignum borgarinnar svo sem skólahúsum. Ennfremur hefur það með höndum smiði og útvegun húsgagna til þessara húsa. Fjöldi manna vinnur að stað- aldri hjá Áhalda- húsinu að þessum verkefnum. Einnig hefur Áhaldahúsið umsjón með ýmiss konar vinnuvélum i e i g u borgarinnar, en sú deild hefur ekki verið nefnd i sam- bandi við rann- sókn þá, sem hér er um að ræða. Enda þótt endur- skoðun og rann- sókn á fjárreiðum hafi nú staðið yfir um nokkurt skeið, hefur ekki þótt ástæða til að gera neina opinberlega grein fyrir henni, enda ekki öll kurl komin til grafar, maí 1974 - 74. tbl. - 55. árg. „ ............................ Ólafur beitir einræðisvaldinu: Kjarasamningar ógiltir engin vísitölukauphækkun Þá er ólafur Jó- hannesson, for- sætisráöherra, tek- inn til við aö beita því valdi, sem meirihluti þing- manna þjóðarinnar vildi svipta hann, en han tryggði sér áfram méð því að senda þingmenn heim. i gær lét hann gefa út bráða- birgðalög, sem að megininntaki eru ógilding á kjara- samningum þeim, sem nýlega voru undirritaðir milli a ð i I a v i n n u • markaðarins. Með þessum bráða- birgðalögum er af- numin vísitölu- binding kaupgjalds allt fram til ágústloka í haust og því komið í veg fyrir þær hækkanir, sem koma áttu til fram- kvæmda á kaup- gjaldi þann 1. júní n.k. til þess að bæta launþegum upp óða- verðhækkanir síðustu mánaða.. Þær verðhækkanir eiga launþegar því að bera óbættar og þar með hefur for sætisráðherra með stuðningi Alþýðu- bandalagsins ógilt með lögum þá kjarasamninga, sem verkalýðs- hreyfingin gerði í vor. Þá segir einmg i bráða- birgðalögunum, að frekari hækkanir á vörum og þjónustu, en orðnar eru, skuli ekki leyfðar fram til ágústloka, nema að fengnu leyfi réttra yfirvalda og með sam- þykki rikisstjörnarinnar. Þetta mun vera það, sem rikisstjórnin ætlar að kalla verðstöðvun, en sams konar fyrirkomulag hefur þó gilt um flestar verðákvarðanir i landinu undanfarna mánuði og hefur það þó ekki komið i veg fyrir einhverjar mestu verðhækkanir i allri Islandssögunni. t þriðja lagi ákveða bráðabirgðalögin, að laun bænda skuli haldast óbreytt til 1. ágúst n.k. á sama hátt og laun annarra launþega. t fjóðra lagi ákveða bráðabirgðalögin svo það, að bann verði sett við hækkun fiskverðs og skuli það verð, sem ákveðið var um s.l. áramót., gilda áfram til ágústloka. t fimmta lagi er svo ákveðið i bráðabirgðalögunum, að fjárfestingarlánasjóðir, sem fjármagnaðir eru með kaupum á verð- tryggðum skuldabréfum — en þar er einkum um að ræða Byggingasjóð rikis- ins er fjármagnar hin svokölluðu húsnæðis- málastjórnarlán — skuli taka upp visitölubindingu á lánveitingum sinum. Er sem sé ætlunin að inn- leiða visitölubindinguna aftur inn i húsnæðislána- kerfið, en þá framkvæmd töldu núverandi stjórnar- flokkar eitt mesta mis- yndisverk Viðreisnar- stjórnarinnar i siðustu þingkosningum. —STOFNUÐ „SAMTÖK JAFNADARMANNA”- Makka við Magnús Torfa og Möðruvellinga ÞRÍR ALÞÝÐUFLOKKSMENN í FRAMKVÆMDANEFND ,,Ég verð nú að segja eins og er, að mér fyndist það dá- litið hart, ef ekki getur farið saman að vera félagi í Al- þýðuflokknum og aðstandandi að Um stofnun Samtaka jafnaðarmanna sagði Benedikt Gröndal, vara- formaður Alþýðuflokks- ins, i gærkvöldi. ,,Ég tel, að það skref, sem þessi hópur hefur stigið muni ekki reynastfarsæltfyrir framgang jafnaðar- mannastefnu og vinstri stefnu á íslandi. t Alþýðuflokknum hef- ur ávallt verið rúm fyrir mismunandi skoðanir i þeim málum, sem nú virðast valda ágreiningi. Reynsla siðustu ára hefur „Samtökum jafnaðarmanna", sagði H eIg i Sæmundsson i við- tali við Alþýðublaðið igærkvöldi, en Helgi er einn fimm- menninga í fram- tvimælalaust sýnt, að ár- angursrikast er fyrir jafnaðarmenn að starfa lýðræðislega saman i ein- um flokki, en kljúfa ekki fylkingu sina i æ fleiri hluta”. Aðspurður um það, Jivort aðild að Samtökum jafnaðarmanna og fé- lagsskapur i Alþýöu- flokknum færi saman, sagðist Benedikt ekkert vilja segja um það, enda hefði „ekki á það reynt” og enginn rætt það sér- staklega. / kvæmdanefnd, sem kosin var á stofn- fundi „Samtaka jafnaðarmanna" í gær. Þessi nýju samtök hafa samþykkt samvinnu við SFV og Möðruvellinga i alþingiskosningunum og tilnefnt Kristján Bersa fulltrúa sinn i fram- kvæmdanefnd þeirri, sem SFV og Möðruvellingar hafa sett á laggirnar undir forystu Magnúsar Torfa ólafssonar, en hann hefur lýst þvi yfir, að hvers konar kosninga- samstarf við Alþýðu- flokkinn i alþingis- kosningunum sé dauða- dæmt. Helgi sagðist ekki vilja láta hafa það eftir sér að hér væri um „klofning i Alþýðuflokknum” að ræða og sagðist hann ekki hugsa sér að ganga úr flokknum, þótt hann hefði lengi velt þvi fyrir sér að segja sig úr flokksstjórn- inni, sem hann á sæti i. Helgi Sæmundsson sagði i viðtali við Alþýðu- blaðið, að það hefði lengi staðið til að stofna jafnaðarmannafélag á „idealiskum grundvelli”. Kappsmál þess félags er herstöðvarlaust land, sameining islenskra jafnaðarmanna, sósialismi og kjörorðið: Frelsi, jafnrétti, bræðra- lag. Auk Helga eru i fram- kvæmdanefnd hinna nýju samtaka: Haraldur Ólafsson, lektor, Njörður P Njarðvik, lektor og formaður útvarpsráðs, en það varð hann sem full- trúi SFV, Kristján Bersi Ólafsson, skólastjóri og fyrrverandi ritstjóri Al- þýðublaðsins, eins og Helgi er lika og Sigvaldi Hjálmarsson, fyrrver- andi fréttastjóri Alþýðu- blaðsins. Ófarsælt skref Alfelagiö vill ekki borga meira fyrir rafmagnið og þess vegna liggja viðræður um stækkanir niðri „Viö setjum sem skilyrði, fyrir stækk- un álversins i Straumsvík, að raforku- verðið til þess verði endurskoðað og sett ný endurskoðunarákvæði inn í samning- inn, sem kveði á um reglubundna endur- skoðun þess framvegis. En sem kunnugt er, á verðið að vera óbreytt til ársins 1997 án tillits til orkuverðs i heiminum, skv. samningnum, sem gerður var 1966," sagði Magnús Kjartansson, iðnaðarráð- herra, i viðtali við blaðið i gærkvöldi. „Það vilja ráðamenn Islenska Álfé- lagsins h/f hinsvegar ekki sættast á, og hafa viðræður við okkur um hugsanlega stækkun þvi legið niðri um tima, þótt ég telji ekki að þeim sé þar með endanlega lokið," sagði ráðherra. Magnús kvaðst þegar í upphafi, að samningurinn var gerður, hafa talið raforkuverðið alltof lágt, og teldi það enn. Þá tilkynnti iðnaðarráðuneytið i gær, að það hefði falið alþjóðlegu endurskoðunarfyrirtæki að endur- skoða reikninga tslenska álfélagsins, i samvinnu við islenska endurskoðendur, skv. grein i aðal- samningnum þess efni^að isl. rikisstjórninni sé það heimilt, en þetta hefur ekki verið gert, siöan ISAL hóf starfsemi sina. Magnús sagði, að ekki lægi,, nein sérstök ástæða” fyrir þessari endurskoðun nú, Hún hefði hinsvegar aldrei verið framkvæmd fyrr, og það eitt væri ærin ástæöa. —

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.